Eitt smit á Austurlandi í 3. bylgju – til álita kemur að slaka á aðgerðum á landsbyggðinni

„Í ljósi þess að mjög fá smit eru nú að grein­ast utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þá kæmi til álita að mínu mati að beita minna tak­mark­andi aðgerðum á þeim svæðum,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Aðeins eitt smit greind­ist á Aust­ur­landi í 3. bylgju.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Blekið var enn blautt á minn­is­blaði sótt­varna­læknir, þar sem hann lagði til til­slak­anir á tak­mörk­unum, er smitum fór að fjölga á ný og það sem meira var, fjölgun smita meðal fólks sem ekki var í sótt­kví við grein­ingu. Þegar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir samdi minn­is­blað sitt til heil­brigð­is­ráð­herra og sendi þann 25. nóv­em­ber höfðu sjö greinst með veiruna dag­inn áður. Og svip­aður eða minni fjöldi dag­ana á undan. Allt virt­ist á réttri leið.

En svo kom skell­ur­inn.

Daginn eftir að minn­is­blaðið hafði verið sent greindust skyndi­lega tutt­ugu manns með veiruna. 21 til við­bótar hafði greinst sól­ar­hring síðar. „Eftir að minn­is­blaðið var skrifað þá hafa einmitt orðið veru­legar breyt­ingar á COVID-19 far­aldr­inum hér á landi,“ skrifar Þórólfur í nýju minn­is­blaði sem sent var ráð­herra 29. nóv­em­ber, fjórum dögum eftir að bjart­sýnin hafði verið ríkj­andi og til­slak­anir virst innan seil­ingar. Hóp­sýk­ingar hafa komið upp, skrifar Þórólfur. Ein þeirra, þótt fámenn hafi verið, kom upp á heim­ili Víðis Reyn­is­sonar, yfir­lög­reglu­þjóns hjá rík­is­lög­reglu­stjóra. Víðir greind­ist sjálfur með COVID-19 í síð­ustu viku. Hann smit­að­ist af eig­in­konu sinni en enn hefur ekki tek­ist að rekja það smit.

18. nóv­em­ber tók gildi enn ein reglu­gerð um tak­mörkun á sam­komum inn­an­lands vegna COVID-19. Hún gildir til mið­nættis í dag. Í ljósi þró­unar far­ald­urs­ins lagði Þórólfur til í nýjasta minn­is­blaði sínu að í stað til­slak­ana sem hann hafði viðrað nokkrum dögum áður að aðgerðir sem kveðið var á um í reglu­gerð­inni frá 18. nóv­em­ber yrði fram­lengdar í að minnsta kosti viku. Að þeirri til­lögu fór heil­brigð­is­ráð­herra í morgun.

En þetta er þó ekki nýjasta minn­is­blaðið hans Þórólfs til ráð­herra því í gær, 30. Nóvember, sendi hann við­bætur þar sem hann bætir við nokkrum atriðum sem „geta haft þýð­ingu fyrir end­an­lega útfærslu reglu­gerð­ar­innar“.

[links]Við rakn­ingu á 91 til­felli sem greindust á tíma­bil­inu 20. til og með 27. nóv­em­ber þá kemur í ljós að 93 pró­sent þeirra greindust á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 3 pró­sent á Norð­ur­landi, 2 pró­sent á Vest­fjörðum og 1 pró­sent á Suð­ur­nesjum, bendir Þórólfur á. „Öll smitin sam­an­standa af þremur stofnum veirunnar sem borið hafa uppi far­ald­ur­inn sem hér hefur geisað und­an­farnar vikur og sum smitin má rekja beint til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Í yfir 90% greindra til­fella á tíma­bil­inu þá má jafn­framt rekja smitin til nokk­urra hópa­myndana innan fjöl­skyldna, í fyr­ir­tækjum og milli ótengdra aðila.“

Þá bendir hann enn­fremur á að dag­legur fjöldi þeirra sem hefur verið að grein­ast und­an­farið hefur verið nokkuð stöð­ugur. Þetta þýðir að hans sögn að far­ald­ur­inn virð­ist vera í línu­legum vexti og er það stutt af útreikn­ingum vís­inda­manna við Háskóla Íslands sem hafa reiknað að smit­stuð­ull far­ald­urs­ins (R stuð­ull) er nú um 1-1,5.

„Í ljósi þess að mjög fá smit eru nú að grein­ast utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þá kæmi til álita að mínu mati að beita minna tak­mark­andi aðgerðum á þeim svæðum,“ skrifar Þórólfur en bætir þó við: „Hins vegar er rétt að benda á að fyrir nokkrum vikum var einmitt minna íþyngj­andi aðgerðum beitt utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en fljót­lega komu upp stórar hóp­sýk­ingar í kjöl­farið einkum á Norð­ur­landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár