Fasteignahluti Þjóðskrár færður til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Öll verk­efni tengd fast­eigna­skrá og fast­eigna­mati verða flutt frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Engar upp­sagnir fylgja þess­ari upp­stokkun, sam­kvæmt til­kynn­ingu inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Öll verk­efni tengd fast­eigna­skrá og fast­eigna­mati verða flutt frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Frá þessu er sagt í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins, en mark­miðið er sagt að það að „ein­falda og efla þjón­ustu við fólk og fyr­ir­tæki á sviði hús­næð­is­mála og tryggja enn frek­ari sam­hæf­ingu milli rík­is­stofn­ana og sveit­ar­fé­laga“.

Þjóðskrá Íslands mun eftir þessa breyt­ingar ekki hafa neitt að gera með utan­um­hald um skrán­ingu fast­eigna, en mun hins vegar sam­kvæmt til­kynn­ingu inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins „áfram veita öfl­uga þjón­ustu við skrán­ingu ein­stak­linga.“ Hjá Þjóðskrá starfa um 100 manns í dag, en um helm­ingur þeirra mun fær­ast í ný störf hjá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun.

„Engar upp­sagnir verða í tengslum við þessi umskipti og starfs­stöðvar utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins áfram starf­ræktar,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Þessar breyt­ingar voru kynntar á fundum innan beggja stofn­ana í dag og til stendur að vinna að þeim í nánu sam­starfi stofn­an­anna tveggja og búið er að skipa sér­stakan stýri­hóp til þess verks. Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra mun leggja fram frum­varp á vor­þingi um breyt­ingar á lögum sem tengj­ast þessum breyt­ingum og þá munu breyt­ing­arnar form­lega taka gildi.

Samkvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins munu öll verk­efni sem nú heyra undir Fast­eigna­svið Þjóð­skrár, þ.e. fast­eigna­skrá, fast­eigna­mat og útreikn­ingur á álagn­ingu sveit­ar­fé­laga, flytj­ast yfir til HMS og sam­ein­ast starf­semi tengdri mann­virkja­skrá.

Ýmis verk­efni á stoð­þjón­ustu­sviðum Þjóð­skrár fær­ast einnig yfir, s.s. á sviði hug­bún­að­ar­þró­unar, rekst­urs, gagna og sér­vinnslu, þjón­ustu og eða sölu, sem snýr að fast­eigna­skrá og tengdum skrám.

Einn staður fyrir erindi tengd fasteignum og húsnæðismálum

Í til­kynn­ingu er haft eftir Sigurði Inga Jóhanns­syni inn­við­a­ráð­herra að með því að færa fast­eigna­skrána til HMS geti „fólk nú leitað á einn stað með erindi tengd fasteigum og hús­næð­is­málum.“

[adspot]

„Með þessum breyt­ingum er stigið stórt skref til að sam­hæfa og ein­falda þjón­ustu á vegum hins opin­bera á sviði hús­næð­is­mála. Til­gang­ur­inn er að auka yfir­sýn til að gera stjórn­völdum kleift að gera mark­viss­ari aðgerðir til að ná jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði. Þjóðskrá Íslands gegnir mik­il­vægu hlut­verki eftir breyt­ing­arnar og þar starfar öfl­ugt fag­fólk, sem mun taka þátt í að efla enn frekar þjón­ustu á vegum stofn­un­ar­innar,“ er haft eftir Sigurði Inga í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Hermann Jónasson for­stjóri HMS segir „skýr sókn­ar­færi til að bæta þjón­ustu á þessu mik­il­væga sviði“ og Aðal­steinn Þor­steins­son, starf­andi for­stjóri Þjóð­skrár, segir breyt­ingar veita Þjóðskrá tæki­færi til að skil­greina hlut­verk sitt með skýrum hætti með skýr­ari skilum á milli stofn­ana, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fasteignamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár