AirBnB-íbúðir á höfuðborgarsvæðinu aftur orðnar fleiri en 2.000 talsins

Þegar mest lét á árunum 2017, 2018 og 2019 voru yfir 3.000 íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til leigu á AirBnB. Í veiru­far­aldr­inum féll fjöld­inn veru­lega, en í sumar skreið fjöldi íbúða í útleigu á ný yfir 2.000.

Vegna faraldursins komu margar AirBnB íbúðir inn á fasteignamarkaðinn, ýmist til almennrar leigu eða kaupa. Nú eru á ný yfir 2.000 íbúðir til útleigu á síðunni.
Vegna far­ald­urs­ins komu margar AirBnB íbúðir inn á fast­eigna­mark­að­inn, ýmist til almennrar leigu eða kaupa. Nú eru á ný yfir 2.000 íbúðir til útleigu á síð­unni. Mynd: Samsett

Í sumar fór fjöldi íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem skráðar eru á leigu­síð­una AirBnB undir þeim for­merkjum að hægt sé að leigja allt heim­ilið, á ný yfir 2.000, eftir að fjöld­inn hafði dreg­ist veru­lega saman árin 2020 og 2021, í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Enn er þó nokkuð í að fjöldi þeirra íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem skráðar eru á AirBnB nái sömu hæðum og yfir sum­ar­mán­uð­ina árin 2017, 2018 og 2019, en þá voru jafnan yfir 3.000 íbúðir skráðar til útleigu í heild sinni á leigu­síð­unni.

Þetta kemur fram í skýrslu um fast­eigna­mark­að­inn í Reykja­vík, sem fyr­ir­tækið Arcur ráð­gjöf vann að beiðni borg­ar­yf­ir­valda.

Í grein­ingu fyr­ir­tæk­is­ins segir að árið 2021 hafi farið hægt af stað, hvað varðar aukn­ingu skráðra íbúða á AirBnB, en að fram­boðið hafi auk­ist smám saman þegar leið á árið.

[adspot]

Í jan­úar hafði fram­boð eigna á AirBnB ein­ungis auk­ist um 2,6 pró­sent frá jan­ú­ar­mán­uði 2021, en í júlí var aukn­ingin frá því í júlí­mán­uði í fyrra orðin rúm 96 pró­sent. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum voru svo 89,5 pró­sent fleiri íbúðir til útleigu en á sama tíma fyrra, eða rúm­lega 2.000 eignir.

Í grein­ingu Arcur segir að það sé ljóst að nokkur fjöldi íbúða sé nú nýttur í þjón­ustu við ferða­menn, jafn­vel þó að fjölgun gisti­rýma á hót­elum hafi verið tals­verð á sama tíma. Samkvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni voru hót­el­rými á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 5.500 tals­ins í sumar.

Flestar íbúðirnar í eða nærri miðborginni

Í grein­ingum sem hafa verið gerðar á und­an­förnum árum um stað­setn­ingu þeirra íbúða sem eru aug­lýstar til leigu á AirBnB hefur komið fram að flestar eru þær í Reykja­vík og hæst hlut­fall þeirra í sjálfri mið­borg­inni, póst­núm­eri 101.

Í rann­sókn á áhrifum AirBnB-útleigu á hús­næð­is­mark­að­inn sem unnin var árið árið 2019 kom fram að 80 pró­sent skráðra AirBnB-eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væru í Reykja­vík og 37 pró­sent í mið­borg­inni.

Sautján pró­sent eign­anna voru í 105 Reykja­vík, auk þess sem sjö pró­sent í voru póst­núm­eri 107 Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fasteignamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár