Greiðslubyrði 30 milljóna króna láns hækkaði um 18.600 krónur milli mánaða

Þau sem eru með óverð­tryggt íbúð­ar­lán á breyti­legum vöxtum greiddu 6.200 krónum meira fyrir hverjar tíu millj­ónir af lán­inu í sept­em­ber en þau gerðu í ágúst. Verð­tryggðu lánin verða vin­sæl á ný vegna nýrra reglna Seðla­bank­ans.

Greiðslubyrði íbúðalána hefur hækkað skarpt síðustu mánuði og fólk heldur að sér höndum í fasteignaviðskiptum, ef það getur.
Greiðslu­byrði íbúða­lána hefur hækkað skarpt síð­ustu mán­uði og fólk heldur að sér höndum í fast­eigna­við­skiptum, ef það getur. Mynd: Pexels

Greiðslu­byrði fólks af óverð­tryggðum íbúða­lánum á breyti­legum vöxtum hækk­aði úr 56.700 krónum á mán­uði í ágúst upp í 62.900 kr. í sept­em­ber fyrir hverjar 10 millj­ónir láns­ins. Fyrra hluta árs 2021 var greiðslu­byrðin um 38 þús­und eða 24.900 krónum lægri en nú.

„Hús­næð­is­kostn­aður fyrir heim­ili með óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum hefur því hækkað skarpt síðan þá og heim­ili sem standa frammi fyrir ákvörðun um fast­eigna­kaup horfa nú upp á hærri greiðslu­byrði en þau hefðu gert,“ segir í mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar, HMS, fyrir sept­em­ber.

Greiðslu­byrði á verð­tryggðum lánum hækk­aði milli ágúst og sept­em­ber úr 29.600 krórnum upp í 30.700 kr. á hverjar 10 millj­ónir króna, eða um 1.100 krónur, ef miðað er við 40 ára lán og úr 36.400 í 37.400, um þús­und krónur, ef miðað er við 30 ára lán.

Munurinn á greiðslu­byrði hefur því aftur verið að aukast eftir því um hvort verð­tryggt eða óverð­tryggt lán sé að ræða. Ástæða þess að greiðslu­byrði verð­tryggðra lána er lægri er sú að verð­bætur leggj­ast á höf­uð­stól lána.

[adspot]

Seðla­banki Íslands hækk­aði stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig í lok ágúst og standa þeir nú í 5,5 pró­sentum – hafa hækkað um 3,5 pró­sentu­stig á þessu ári einu saman. Ástæða þessa er mikil verð­bólga, sem mælist 9,7 pró­sent um þessar mundir, og búist er við að hún skríði upp í tveggja stafa tölu við næstu birt­ingu. Þessi mikla verð­bólga hefur að mestu verið drifin áfram af hækk­andi íbúða­verði.

Bank­arnir brugð­ust við stýri­vaxta­hækk­un­inni í lok ágúst með því að hækka breyti­lega vexti á óverð­tryggðum íbúða­lánum og eru þeir nú 7,4 pró­sent hjá Íslands­banka, 7 pró­sent hjá Lands­bank­anum og 7,34 pró­sent hjá Arion banka. Óverð­tryggðir vextir hafa ekki verið svo háir síðan 2015. Óverð­tryggðir vextir hjá líf­eyr­is­sjóðum eru að jafn­aði um 6,95 pró­sent.

Í mán­aða­skýrslu HMS er rifjað upp að á árunum 2013-2018 hafi vextir á breyti­legum íbúða­lánum bank­anna yfir­leitt verið 1,3- 1,6 pró­sentu­stigum hærri en stýri­vextir. Þegar stýri­vextir fóru að lækka 2019 lækk­uðu vextir bank­anna á íbúða­lánum oft minna en sem nam stýri­vaxta­lækk­un­unum. Þegar stýri­vextir hófu að hækka að nýju fór mun­ur­inn á stýri­vöxtum og íbúða­láns­vöxtum hins vegar að minnka á nýjan leik og er hann nú á bil­inu 1,5-1,9 pró­sent. Verð­tryggðir vextir hjá bönk­unum hafa einnig farið hækk­andi und­an­farið og eru nú að jafn­aði 2,1 pró­sent en voru að jafn­aði 1,4 pró­sent í fyrra.

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um rúm­lega 25 pró­sent á einu ári. Ef horft er aftur til upp­hafs kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hófst af alvöru hér­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 48 pró­sent.

Skýr merki eru nú komin fram um að vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans, sem eru gerðar í þeim til­gangi að draga úr verð­bólgu, séu farnar að bíta og að hús­næð­is­mark­að­ur­inn sé að kólna.

Í mán­að­ar­skýrslu HMS kemur t.d. fram að íbúðum til sölu hafi fjölgað hratt að und­an­förnu. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu nú 1.067 íbúðir til sölu og hafi ekki verið fleiri frá því í byrjun árs 2021. „Aukið fram­boð má að mestu rekja til eldri íbúða sem settar eru á sölu fremur en nýrra íbúða sem koma á markað, sem gefur til kynna að hægt hafi á umsvifum á mark­aði,“ segir í grein­ingu HMS.

Kaup­samn­ingum um íbúð­ar­hús­næði fer einnig fækk­andi, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem útgefnir kaup­samn­ingar voru aðeins 378 tals­ins í júlí.

Um 53,4 pró­sent íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seld­ust yfir ásettu verði í júlí sam­an­borið við 62,2 pró­sent í júní og 65 pró­sent þegar mest lét í maí.

Sér­stak­lega hefur dregið úr því að íbúðir selj­ist meira en 5 pró­sent yfir ásettu verði og sér í lagi meðal íbúða í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en í júlí seld­ust tæp 15 pró­sent íbúða þeirra svo mikið yfir ásettu verði á meðan hlut­fallið var hæst rúm 35,2 pró­sent í apríl.

Fleiri taka verðtryggð lán

Hjá bönk­unum hafa ný verð­tryggð útlán verið jákvæð síð­ast­liðna fjóra mán­uði eftir að hafa verið nei­kvæð frá upp­hafi árs 2020. Þó eru óverð­tryggð lán enn vin­sælli sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem birtar eru í mán­að­ar­skýrslu HMS.

Vaxta­stigið er ekki það eina sem hefur haft þau áhrif. Seðla­bank­inn setti í sumar sett nýjar reglur til að „varð­veita fjár­mála­stöð­ug­leika og treysta við­náms­þrótt lán­veit­enda og lán­taka gagn­vart ójafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði“. Í fyrsta lagi er hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls þegar fast­eigna­lán er veitt nú 80 pró­sent af mark­aðs­verði fast­eignar. Það má þó vera 85 pró­sent þegar um er að ræða fjár­mögnun kaupa á fyrstu fast­eign. Í öðru lagi hefur verið sett hámark greiðslu­byrðar fast­eigna­lána í hlut­falli við tekjur neyt­enda. Samkvæmt regl­unum má hámark greiðslu­byrðar nýrra fast­eigna­lána vera 35 pró­sent af mán­að­ar­legum ráð­stöf­un­ar­tekjum. Hámarks­hlut­fall fyrir þá sem eru að kaupa fast­eign í fyrsta sinn er 40 pró­sent.

Og þar sem það getur núna munað mjög miklu á afborgun óverð­tryggðs láns og verð­tryggðs – til kaupa á hús­næði á mark­aði sem er enn lítið far­inn að gefa eftir hvað verð varðar – getur eina fjár­mögn­un­ar­leiðin verið sú að taka verð­tryggt lán.

Samdráttur „nokkuð ljós“

Sér­fræð­ingar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar segja „nokkuð ljóst“ að fast­eigna­mark­að­ur­inn sé að drag­ast nokkuð hratt saman. Vís­bend­ingar séu um að hægt hafi á hækkun fast­eigna­verðs en óvíst sé hversu hratt það gæti gerst eða hversu mikið. Hækkun stýri­vaxta nú í ágúst auki lík­urnar á því að fljótt dragi úr verð­hækk­unum.

Í þjóð­hags­lík­ani Seðla­bank­ans kemur fram að hækkun vaxta á íbúða­lánum um eitt pró­sentu­stig leiði til 3,90 pró­senta lækk­unar á raun­virði hús­næðis næsta árs­fjórð­ung á eftir og um 9,4 pró­senta lækk­unar til lengri tíma.

Samkvæmt því gætu und­an­gengnar þrjár stýri­vaxta­hækk­anir frá því í maí leitt til lægra hús­næð­is­verðs, að mati sér­fræð­inga HMS. Aukinn kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna og tak­markað fram­boð hús­næðis gæti þó vegið upp á móti lækk­unum. „Það er til­tölu­lega sjald­gæft að hús­næði lækki að nafn­virði og því lík­legra að íbúða­verðs­hækk­anir verði hóf­legar en ef íbúða­verðs­hækk­anir eru lægri en verð­bólga jafn­gildir það raun­verðs­lækk­unum íbúða­verðs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fasteignamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár