Dóra Björt: Sjálfstæðismenn leggja upp í enn eitt menningarstríðið

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata, gagn­rýnir ummæli Eyþórs L. Arnalds um mat­ar­stefnu meiri­hlut­ans í skólum og segir að svo virð­ist sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn standi ekki fyrir neitt annað en til­finn­inga­legt upp­nám yfir ímynd­uðum ofsóknum.

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata Mynd: Bára Huld Beck

„Jæja, þá eru Sjálf­stæð­is­menn að leggja upp í enn eitt menn­ing­ar­stríðið. Í þetta sinn er það gegn auknu vali á græn­meti og ávöxtum í mötu­neytum borg­ar­innar. Þetta nær ekki nokk­urri átt lengur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist ekki standa fyrir neitt annað en til­finn­inga­legt upp­nám yfir ímynd­uðum ofsóknum,“ skrifar Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, bæj­ar­full­trúi Pírata í borg­ar­stjórn, í færslu á Facebook og vísar þar til Facebook-færslu Eyþórs Laxdals Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Skoða að minnka framboð á dýraafurðum í grunnskólum Reykjavíkur

[links]Mikil umræða hefur skap­ast eftir að Samtök græn­kera á Íslandi sendu stjórn­völdum áskorun í síð­ustu viku um að hætta alveg að bjóða dýra­af­urðir eða draga veru­lega úr fram­boði þeirra í mötu­neytum skóla í ljósi ham­fara­hlýn­unar.

Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi VG og full­trúi í skóla- og frí­stunda­ráði Reykja­vík­ur­borgar, sagð­ist í kvöld­fréttum RÚV á sunnu­dag fanga þess­ari áskorun sam­tak­anna og að meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn væri ein­huga um að skoða að minnka fram­boð á dýra­af­urðum í grunn­skólum borg­ar­innar. Hún sagði jafn­framt í stöðu­færslu á Facebook að hún hafi lengi verið þeirrar skoð­unar að minnka ætti veru­lega eða hætta ætti öllu kjöt­fram­boði í mötu­neytum borg­ar­innar en að hún hafi hins vegar lært að sam­staðan og sam­talið skilar bestum árangri.

Stendur ekki til að troða veganisma í kokið á neinum

Eyþór Arnalds er hins vegar ekki sam­mála þeirri hug­mynd meiri­hlut­ans um að draga úr kjöt­neysla í skólum borg­ar­innar. „Skóla­matur í Reykja­vík gæti verið betri. Um það eru flestir sam­mála. En í stað þess að bæta mat­inn í grunn­skólum ætla full­trúar "meiri­hlut­ans" í borg­ar­stjórn að skerða pró­tín­inni­hald fyrir reyk­vísk skóla­börn!,“ skrif­aði Eyþór meðal ann­ars í færslu sinni á Facebook.

Dóra Björt hefur svarað þess­ari færslu Eyþórs og segir að alltaf séu skila­boðin sú að að lífs­gæði hefð­bund­inna Sjálf­stæð­is­manna standi ógn af „menn­ing­armarx­ist­unum“ í borg­ar­meiri­hlut­anum. Ef það eru ekki mötu­neyti starfs­manna sem séu fyrir þeim þá séu það reið­hjól, mat­hallir eða borg­ar­lína.

„Eyþór veit alveg sjálfur að það stendur ekk­ert til að troða vegan­isma ofan í kokið á einum né neinum. Honum er bara alveg sama hvað er rétt og hvað er rangt og stekkur eins og alltaf á tæki­færi til að skruma,“ segir Dóra Björt.

Ekki stríð gegn kjötætum

Hún segir að mat­ar­stefna Reykja­vík­ur­borgar hafi verið sam­þykkt af öllum flokkum og mark­mið hennar sé hollur og góður matur á vegum borg­ar­innar. „Það er ekki stríð gegn einka­bílnum að öðrum sé boðið að hjóla og taka strætó. Það er ekki stríð gegn veit­inga­húsum að starfs­fólkið okkar fái aðgang að mötu­neytum og það er ekki stríð gegn kjöt­ætum að bjóða upp á ávexti og græn­meti í skólum barna,“ skrifar Dóra Björt.

Hún segir sé stríð í gangi þá sé það gegn vit­rænni umræðu þegar odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins finni hjá sér þörf til að klæða sig í bol merktum kjöti og þing­maður flokks­ins beri aukið val í mötu­neytum skóla- og frí­stunda­sviðs við Austur-Berlín og vísar þar til athuga­semda Páls Magn­ús­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við stöðu­færslu Eyþórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár