Skora á stjórnvöld að bjóða upp á grænkerafæði í skólum

Samtök græn­kera á Íslandi skora á stjórn­völd að bjóða upp á græn­ker­a­fæði í skólum, sjúkra­húsum og öðrum opin­berum stofn­unum í ljósi lofts­lags­breyt­inga.

Samtök græn­kera á Íslandi hafa sent út áskorun til umhverf­is­ráð­herra, rík­is­stjórnar og sveit­ar­fé­laga um að auka vægi græn­ker­a­fæðis í skóla­mötu­neytum og öðrum rík­is­stofn­unum til að sporna gegn ham­fara­hlýnun. Samtökin benda á að stjórn­völd hafi ekki gripið til aðgerða þegar kemur að því að draga úr neyslu dýra­af­urða en dýra­eldi í land­bún­aði orsakar hluta los­unar sem stjórn­völd bera ábyrgð á.

Um helmingur af losun landbúnaðar tilkominn vegna dýraeldis

Í áskor­un­inni er vitnað í orð Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is­ráð­herra við minn­ing­ar­at­höfn um jökul­inn Ok um síð­ustu helgi. Þar hét hann því að gera það sem hann gæti til þess að koma í veg fyrir að fleiri jöklar á Íslandi hverfi. Samtökin segja hins vegar að lítið virð­ist vera á döf­inni hjá stjórn­völdum varð­andi einn mik­il­væg­asta þátt­inn í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum, sem er það að draga úr neyslu dýra­af­urða.

„Stjórn­völd hafa ekki gefið nein skýr skila­boð frá sér varð­andi þennan þátt en land­bún­aður telur 13 pró­sent af losun miðað við Kýótó-bók­ina (en 21 pró­sent af losun sem fellur undir beina ábyrgð íslenskra stjórn­valda). Um 50% af þess­ari losun land­bún­aðar er metangaslosun vegna dýra­eldis en metan­gas er gróð­ur­húsa­loft­teg­und sem er 25 sinnum skað­legri umhverf­inu en koltví­sýr­ingur en að sama skap þeim eig­in­leikum gætt að hrein­ast fljótar úr and­rúms­loft­inu en koltví­sýr­ingur,“ segir í áskor­un­inni.

Hvetja stjórnvöld til að bjóða börnum upp á grænkerafæði

Samtökin benda á að íslensk börn hafi sent skýr skila­boð um að grípa þurfi til aðgerða með lofts­lags­verk­föllum á föstu­dögum alla síð­ustu skóla­önn. Þrátt fyrir það standi krökkum ekki til boða að velja sér græn­ker­a­fæði í skólum.

„Mörg börn þurfa að fara með nesti í leik- og grunn­skóla upp á hvern ein­asta dag þar sem skól­arnir fara fram á lækn­is­vott­orð til að börnin geti fengið græn­ker­a­fæði. Það er marg­sannað að plöntu­miðað matar­æði er full­nægj­andi að öllu leyti á öllum ævi­skeiðum og því væri rök­rétt skref að bjóða upp á þann kost í öllum skóla­mötu­neytum lands­ins.“

Hvetja sam­tökin því stjórn­völd til þess að bjóða upp á græn­kera­val­kosti í skólum og sýna fram á kolefn­is­spor ólíkra mál­tíða. Þetta muni spara fé þar sem græn­ker­a­fæði sé almennt ódýr­ara, ásamt því að auð­velda mat­reiðslu í skólum þar sem flest algeng­ustu ofnæmi séu fyrir dýra­af­urðum.

Að lokum segir að áskor­unin eigi við um allar stofn­anir ríkis og sveit­ar­fé­laga, þar á meðal sjúkra­hús en sam­kvæmt sam­tök­unum reyn­ist oft erfitt að fá græn­ker­a­fæði þar. Hægt er að lesa áskor­un­ina í heild sinni hér að neð­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár