Eitt nýtt smit staðfest

Ekkert smit í gær. Eitt í dag. Sótt­varna­læknir hefur ítrekað sagt að tala um stað­fest smit gæti sveifl­ast nokkuð milli daga á næst­unni.

Staðfest smit af völdum kór­ónu­veirunnar hér á landi eru orðin 1.790 og hefur þeim því aðeins fjölgað um eitt síð­asta sól­ar­hring­inn. Mjög hefur hægt á nýgreindum smitum síð­ustu daga. Tekist hefur að rekja upp­runa hvers ein­asta smits sem hefur greinst.

Smitið greind­ist hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sem tók 608 sýni í gær. 77 sýni voru rann­sökuð á veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans og reynd­ist ekk­ert þeirra jákvætt.

Ekkert nýtt smit greind­ist í gær á Vest­fjörðum. Fimm náðu bata og eru nú 49 virk smit í umdæm­inu, öll á norð­an­verðum Vest­fjörðum. Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða tók 22 sýni til rann­sóknar í gær og hefur tekið alls 607 sýni.

[adspot]

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vefnum COVID.is hafa 1.570 manns náð bata af sjúk­dómnum hér á landi. Virk smit eru 210. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 hér á landi eru tíu dáin.

Fjórtán liggja nú á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins, þar af fjórir á gjör­gæslu.

Tæplega 46 þús­und sýni hafa verið tekin frá upp­hafi far­ald­urs­ins í lok febr­úar.

[links]Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir í við­tali við Kjarnann í morgun að enn séu ekki komin til sög­unnar nægi­lega örugg mótefna­mæl­inga­próf sem stað­fest geta ónæmi fyrir veirunni. Unnið er að því hörðum höndum víða um lönd að finna bestu aðferð­ina við að mæla mótefni, meðal ann­ars hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Hann segir í við­tal­inu að hann telji ekki víst að ónæm­is­passar verði nokkurn tím­ann að veru­leika eins og hug­myndir hafi verið uppi um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár