Mynd: Hörður Sveinsson

„Honum tókst ekki að skemma mig“

„Nú, þegar hann hefur fengið uppreist æru, þá líður mér dálítið eins og allt það sem ávannst með kærunni, skýrslu­tökunum, réttar­höldunum og dóminum hafi bara verið strokað út.“ Þetta segir kona sem var misnotuð af Hjalta Sigurjóni Haukssyni í barnæsku. „Ég hef ekkert að fela og ekkert til að skammast mín fyrir.“

„Mig hryllir við orðinu sálarmorð. Þetta var ekki sálarmorð, því honum tókst ekki að skemma mig. Og honum mun aldrei takast það.“

Þannig lýsir hún stjúpföður sínum og brotum hans, ung kona sem var misnotuð nær daglega af Hjalta Sigurjóni Haukssyni frá því hún var um fimm ára gömul og allt þar til hún flutti að heiman 17 ára. 

Stundin greindi frá því þann 25. ágúst að Hjalti hefði fengið uppreist æru og verið sæmdur óflekkuðu mannorði af forseta Íslands að tillögu innan­ríkis­ráðherra. Konan frétti það fyrst frá blaða­manni og varð brugðið. 

„Ég hafði fylgst með fréttum af Róberti Downey og þolendum hans, en það hvarflaði aldrei nokkurn tímann að mér að Hjalti hefði líka fengið uppreist æru. Þegar ég frétti af því leið mér eins og það hefði verið keyrt yfir mig sjö sinnum á valtara. Ég var gjör­samlega lömuð, dofin og upplifði mig máttlausa,“ segir hún. 

„Þegar ég frétti af því leið mér eins og það hefði verið keyrt yfir mig sjö sinnum á valtara. Ég var gjör­samlega lömuð, dofin og upplifði mig máttlausa.“ 

„Svo varð ég alveg ofboðs­lega reið. Ég hef alltaf þurft að burðast með þennan bakpoka sem geymir fortíðina mína. Bakpokinn er fastur á mér. Ég tek hann ekki af mér á mánudegi af því mig langar að losna við hann og ég get ekki skilið hann eftir heima um helgar þegar ég fer í sumar­bústað að slappa af. Ég get heldur ekki farið í ráðuneytið eða á Bessa­staði og skilið bakpokann eftir þar. En það getur hann, maðurinn sem braut gegn mér. Um leið og hann sleppur við byrðina lendir hún öll á mér.“

Misnotaði vald sitt

Rúm þrettán ár eru liðin síðan Hjalti var dæmdur í 5 og hálfs árs fangelsi fyrir brotin gegn stjúpdóttur sinni og gert að greiða henni eina og hálfa milljón króna í miska­bætur.

 

Tjáir sig ekkiHjalti Sigurjón Hauksson ætlar ekki að bregð­ast við umfjöllun um brot sín gegn stjúp­dótt­ur­inni að svo stöddu.

Um er að ræða þyngsta dóm sem fallið hafði vegna kynferðis­brota gegn barni á þessum tíma, en Hæstiréttur og þar áður Héraðs­dómur Reykja­víkur töldu full­sannað að Hjalti hefði gerst sekur um „grófa kynferðis­lega misnotkun gagn­vart kæranda sem stóð yfir í langan tíma, eða um 12 ár allt frá unga aldri hennar“. Hjalti hafði misnotað freklega vald sitt yfir stúlkunni sem stjúpfaðir og valdið henni djúp­stæðum skaða.

Árið 2002 kærði hún Hjalta til lögreglu og greindi frá því að hann hefði misnotað sig allt frá því hún myndi eftir sér. „Ég kærði ekki til að bjarga sjálfri mér, heldur vegna þess að ég gat ekki hugsað mér að hann kæmist upp með að gera öðrum það sem hann hafði gert mér,“ segir hún. 

Á þessum tíma hafði hún flutt að heiman og kynnst eigin­manni sínum sem hún á tvö börn með í dag. „Maðurinn minn er það allra besta sem hefur komið fyrir mig. Hann og foreldrar hans breyttu öllu og pabbi minn og konan hans.“ Eftir að hafa yfirgefið æsku­heimilið og flutt inn til kærastans og foreldra hans hófst nýtt tímabil í lífi hennar. Um leið tók við erfið glíma við að gera upp fortíðina. „Skýrslu­tökurnar og dóms­meðferðin reyndu mjög á,“ segir hún. „Ég var gjör­samlega búin á þessum tíma.“ 

Þegar dómurinn féll leið henni samt eins og til einhvers hefði verið unnið. Þar með fékk hún loksins viðurkenningu og stað­festingu samfélagsins á því að Hjalti Sigurjón Hauksson hefði brotið gegn henni. Að sökin væri hans; einungis hann bæri ábyrgð á því sem hafði gerst – ekki hún.

„Ég get ekki fengið forseta til að kvitta upp á eitthvert plagg sem losar mig undan því sem maðurinn gerði á minn hlut.“

„Nú, þegar Hjalti hefur fengið uppreist æru, þá líður mér dálítið eins og allt það sem ávannst með kærunni, skýrslu­tökunum, réttar­höldunum og dóminum hafi bara verið strokað út,“ segir hún. „Að sigurinn sem vannst þegar hann var dæmdur og þurfti að sitja inni, það er eins og allt þetta hafi einhvern veginn verið afmáð. Það versta er að sjálf get ég ekki ýtt á neinn takka, ég get ekki fengið forseta til að kvitta upp á eitthvert plagg sem losar mig undan því sem maðurinn gerði á minn hlut. Ég þarf enn að leita mér aðstoðar og glíma við afleiðingarnar. Hann fær hins vegar að byrja með autt blað, rétt eins og ef þetta hefði aldrei gerst.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppreist æru

MenningUppreist æru

„Við erum ennþá meðvirk með spillingunni“

Karl Ágúst Úlfsson er einn ástsælasti leikari og höfundur þjóðarinnar. Hann hefur látið sig samfélagsmál varða í áratugi, fyrst á vettvangi Spaug­stofunnar, sem valdamenn töldu að væri á mála hjá óvin­veittum öflum. Hann segir að sig svíði þegar níðst er á lítil­magn­anum og hvernig feðra­veldið verji sig þegar kynferð­is­legt ofbeldi kemst á dagskrá. Ný bók hans, Átta ár á samviskunni, er safn smásagna um fólk í sálar­háska.

20 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár