Björn Leví biðst afsökunar – „Þingmenn eiga að geta sagt frá“

Þing­maður Pírata skilur ekki þá þver­móðsku rík­is­stjórn­ar­innar að biðj­ast ekki afsök­unar á sótt­varna­að­gerðum og biðst sjálfur afsök­unar. Þótt hann telji sigi ekki getað haft nein áhrif á fram­vindu mála, „þá afsakar það ekki að reyna það ekki.“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég per­sónu­lega von­að­ist til að þetta væri búið þegar svona margir voru orðnir bólu­settir. Eftir á að hyggja hafði ég ekki for­sendur til þess að ætla annað en vonin um að far­ald­ur­inn væri búinn skyggði samt á alla aðra mögu­leika hjá mér. Ég er í starfi þar sem ég ætti að gera betur hins vegar og gerði þau mis­tök í þessu til­felli. Ég biðst inni­lega afsök­unar á því,“ skrifar Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í færslu á Facebook í morgun. Hann seg­ist ekki hafa farið fram á afsök­un­ar­beiðni frá rík­is­stjórn­inni „en ætli hún sé ekki bara sjálf­sögð, sér­stak­lega eftir þetta?“

Með færsl­unni deilir Björn Leví frétt Vísis frá því í gær þar sem haft var eftir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að hún ætl­aði ekki að biðja þjóð­ina afsök­unar, líkt og Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi Sós­í­alista­flokks­ins, segir þjóð­ina eiga inni hjá rík­is­stjórn­inni vegna „kol­rangrar sótt­varn­ar­stefnu“.

Katrín sagði að engrar afsök­un­ar­beiðni væri þörf „á því að árangur okkar Íslend­inga er með því besta sem ger­ist í heim­inum þegar kemur að bar­átt­unni við þennan far­aldur. Ég ætla ekki að þakka rík­is­stjórn­inni þennan árangur ein­göngu. Hann er auð­vitað fyrst og fremst okkar góða fag­fólki og fram­línu­fólki að þakka og aðal­lega þjóð­inni sjálfri“.

[adspot]

Björn Leví skrifar að í öllum far­aldr­inum hafi stjórn­völd verið í „gríð­ar­lega miklum“ sam­skiptum við sótt­varna­yf­ir­völd „en nær engum sam­skiptum við stjórn­ar­and­stöð­una“. Hann segir því að upp­lýs­ingar um „mögu­legar“ sviðs­myndir hafi verið „engar“. Ekki hafi þó vantað beiðnir um sam­ráð, skrifar þing­mað­ur­inn, og rifjar upp ræðu sína frá því í apríl þar sem hann sagði stjórn­ar­and­stöð­una hafa reynt að fá að sjá á spil meiri­hlut­ans í um það bil heilt ár. „Við erum að sjá þetta ítrekað hjá öllum ráðu­neytum, líka hjá ráðu­neyti hæst­virts heil­brigð­is­ráð­herra, þar sem toga þarf út upp­lýs­ingar með töngum og þegar það tekst þá eru þær ekki full­nægj­andi,“ sagði Björn m.a. í ræð­unni.

[links]Hann skrifar í Facebook-færsl­unni í morgun að stjórn­völd hljóti að hafa haft mögu­legar sviðs­myndir í huga, að minnsta kosti vitað af þeim, er tak­mörk­unum var aflétt í lok júní. Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis um aflétt­ingar inn­an­lands sé fjallað um að „þetta væri ekki búið,“ rifjar Björn Leví upp.

„Alvar­leg­ustu mis­tökin virð­ast þó hafa legið í því hvernig landa­mærin voru opnuð,“ heldur hann áfram. „Ef ekki að formi, þá að magni. En engin sviðs­mynd var dregin upp í minn­is­blað­inu um smit bólu­settra – sem hefði þó átt að geta verið mögu­leiki. Þar hafa stjórn­völd ekk­ert að afsaka fyrir sér­stak­lega nema kannski að hafa gleymt þeim mögu­leika.“

Hann spyr hvort að rík­is­stjórnin ætti að biðj­ast afsök­unar. „Það kostar ekk­ert. Þannig að ég skil ekki þver­móðsk­una í að neita að gera það. Stjórn­völd eru í þjón­ustu við okkur öll og jafn­vel þó það væri ekki hægt að benda á að neitt sé þeim að kenna þá er þetta fólkið sem ákveður að taka sér þessa ábyrgð. Stað­reyndin er hins vegar sú að það er hægt að benda á ýmis­legt sem betur hefði mátt fara - þannig að það er alveg til­efni til þess að biðj­ast afsök­unar. Að minnsta kosti miklu frekar en að þver­taka fyrir það.“

Engin þolinmæði fyrir efasemdir

Í við­bót við færsl­una, sem sett er fram í kommenti, biðst Björn Leví sjálfur afsök­unar og seg­ist sjá eftir því að hafa ekki rýnt í for­sendur og aðstæður betur og mögu­lega gagn­rýnt það þegar aflétt­ingar tak­mark­ana voru kynntar. „Samhliða því veit ég ekki hvort ég hefði þorað að láta í ljós efa­semdir á þeim tíma, það var engin þol­in­mæði fyrir slík orð í þjóð­fé­lag­inu – á meðan það er samt skylda stjórn­valda að þora að segja slíkt og ég tel sjálfan mig með þar. Þingmenn eiga að geta sagt frá, líka þegar það er óþægi­legt. Sér­stak­lega þá.

Ég dreg minn lær­dóm af þess­ari reynslu og sé eftir að hafa ekki gert betur.

Þó mér finn­ist eins og ég hefði ekki getað haft nein áhrif á fram­vindu mála, þá afsakar það ekki það að reyna það ekki. Það, frekar en allt annað, er ástæðan fyrir því að ég er að bjóða fram þjón­ustu mína. Einmitt til þess að hafa áhrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár