Aðgerðapakki númer tvö kynntur klukkan 16 í dag

Rík­is­stjórnin hefur boðað til blaða­manna­fundar síðar í dag þar sem næsti aðgerða­pakki hennar vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar á íslenskt efna­hags­líf verður kynntur.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra boða til blaða­manna­fundar í dag um fram­hald efna­hags­að­gerða vegna Covid-19. Fund­ur­inn verður í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu og hefst hann klukkan 16:00.

[links]Lítið hefur lekið út um inni­hald pakk­ans en Bjarni sagði í gær í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi að stuðn­ingur við ein­yrkja og lítil fyr­ir­tæki og sér­tækur en tíma­bund­inn stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla væru allt atriði sem væru til skoð­unar. „Við höfum frá upp­hafi verið að horfa til smærri fyr­ir­tækja. Þar eru flest störfin og sam­kvæmt öllum hefð­bundnum skil­grein­ingum á litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum erum við að tala um bróð­ur­part­inn af öllum fyr­ir­tækjum í land­inu. Já, við horfum til fyr­ir­tækja sem hefur verið gert að loka starf­semi sinni og við höfum verið að spyrja okkur hvernig við getum komið til móts við þeirra sér­staka vanda, hvað sé sann­gjarnt að gera í því. Við höfum sömu­leiðis tekið eftir umræð­unni um stöðu fjöl­miðl­anna og við höfum gert okkur grein fyrir því að hluta­bóta­leiðin svarar ekki öllum álita­málum sem upp koma hjá fyr­ir­tækjum sem hafa kannski ekki þörf fyrir allt það starfs­fólk sem er þar með ráðn­ing­ar­sam­band.“

[adspot]Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, fjall­aði einnig um aðgerða­pakk­ann í grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag. Þar sagði hann að honum væri ætlað að veita mót­vægi vegna þeirra áhrifa sem far­ald­ur­inn hefur á við­kvæma hópa í okkar sam­fé­lagi. „Við ætlum að setja fók­us­inn á börnin og beina sjónum sér­stak­lega að því að styðja við for­eldra í við­kvæmri stöðu, svo sem vegna umönn­unar á lang­veiku eða fötl­uðu barni. Við munum einnig kynna fjöl­þættar aðgerðir sem miða að því að auka stuðn­ing við við­kvæma hópa en munum einnig halda áfram mark­vissum aðgerðum gegn heim­il­is­of­beldi, en reynslan sýnir að það eykst í því ástandi sem er nú.“

Einn mánuður frá aðgerðapakka eitt

Nákvæm­lega mán­uður er í dag frá því að rík­is­stjórnin kynnt fyrsta aðgerða­pakk­ann í Hörpu. Heild­ar­á­hrif þeirra voru sögð vera 230 millj­arðar króna, en beinu nýju fram­lögin vegna hans voru lík­ast til um þriðj­ungur þeirrar upp­hæðar. Sumt þar voru verk­efni sem þegar lágu fyrir, til dæmis í fjár­fest­ingu, önnur mið­uðu að því að fella niður gjöld sem væru hvort eð er ekki að fara að skila sér nema að litlu leyti, eins og afnám gistin­átt­ar­skatts, og sum voru ein­fald­lega tekju­öfl­un­ar­leiðir fyrir rík­is­sjóð, eins og það að heim­ila úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði sem yrði þá skatt­lagður sam­hliða.

Stóru beinu aðgerð­irnar sner­ust um hina svoköll­uðu hluta­bóta­leið, frestun opin­berra gjald­daga, auk­innar fyr­ir­greiðslu fyrir fyr­ir­tæki hjá banka við­kom­andi og því að ráð­ast í fjár­fest­ing­ar­á­tak, aðal­lega í hefð­bundnum innviðum sem útheima margar vinnu­manna­hendur.

Aðgerðir fjár­mála­stofn­ana hingað hafa því, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, fyrst og síð­ast snú­ist um að frysta afborg­anir af lánum við­skipta­vina. Stærri fyr­ir­tæki, sem eiga í nánu og miklu sam­starfi við bank­ann sinn eru þar betur sett en lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki sem eru með litla eða jafn­vel enga fyr­ir­greiðslu að jafn­aði, en þurfa á henni að halda nú um stundir til að kom­ast í gegnum það ástand sem skap­ast hefur vegna kór­ónu­veirunnar. 

Hin svoköll­uðu brú­ar­lán, sem veitt verða með rík­is­á­byrgð til fyr­ir­tækja sem hafa upp­lifað að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall, eru enn ekki komin til fram­kvæmda.

Þegar byrjað að undirbúa pakka þrjú

Við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja til vinn­nunar við aðgerðir stjórn­valda hafa flestir verið sam­mála um að í næstu aðgerða­pökkum – það er þegar byrjað að und­ir­búa þann þriðja – muni meðal ann­ars fel­ast að gripið verði til umfangs­meiri aðgerða til að styðja við ýmis­konar nýsköpun. Á meðal til­lagna sem rætt hafi verið um við stjórn­völd séu að fyr­ir­liggj­andi úrræði á borð við hluta­bóta­leið­ina og frestun á skatt­greiðslum verði látin ná yfir sprota­fyr­ir­tæki og að end­ur­greiðslur, til dæmis vegna rann­sóknar og þró­unar, verði hækk­aðar veru­lega.

Til­gang­ur­inn verður að styðja við starf­semi sem getur verið arð­bær til fram­búðar, þótt hún sé það ekki endi­lega í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár