Ráðuneyti leiðréttir sig: Framboðum ekki skylt að skrá sig sem stjórnmálasamtök

Þvert á það sem dóms­mála­ráðu­neytið sagði í gær er þeim stjórn­mála­sam­tökum sem ætla að bjóða fram til sveit­ar­stjórna í vor ekki skylt að skrá sig form­lega sem stjórn­mála­sam­tök hjá Rík­is­skatt­stjóra fyrir kosn­ingar.

Stjórnmálasamtök þurfa ekki að skrá sig formlega sem slík fyrir kosningar, en þurfa hins vegar að skrá sig ef þau ætla að fjárframlög frá sveitarfélögum eftir kosningar.
Stjórn­mála­sam­tök þurfa ekki að skrá sig form­lega sem slík fyrir kosn­ingar, en þurfa hins vegar að skrá sig ef þau ætla að fjár­fram­lög frá sveit­ar­fé­lögum eftir kosn­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Þeim stjórn­mála­sam­tökum sem hyggj­ast bjóða sig fram til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga í vor er ekki skylt að skrá sig form­lega sem stjórn­mála­sam­tök fyrir kosn­ing­arnar, sam­kvæmt upp­færðri frétta­til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Í til­kynn­ing­unni, sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í gær, sagði upp­haf­lega að sam­tök sem ætl­uðu sér að bjóða fram lista til sveit­ar­stjórna þyrftu að skrá sig form­lega sem stjórn­mála­sam­tök og talað um þau nýnæli sem fylgi­fisk þess að ný kosn­inga­lög hefðu tekið gildi um síð­ustu ára mót.[links]

En þetta var „mis­sagt“ í til­kynn­ing­unni sem birt­ist í gær, segir ráðu­neytið.

Skráning stjórn­mála­sam­taka er þannig ekki for­taks­laus skylda fyrir þau sam­tök sem ætla að bjóða fram til sveit­ar­stjórna 14. maí næst­kom­andi.

Þurfa að skrá sig ef þau ætla að fá fjárframlög

Hins vegar er, að sögn ráðu­neyt­is­ins, skylda fyrir stjórn­mála­sam­tök að skrá sig sem slík hjá Rík­is­skatt­stjóra ef þau ætla að þiggja fjár­fram­lög frá sveit­ar­fé­lögum, en þeir flokkar sem eiga full­trúa í sveit­ar­stjórnum eða fá að minnsta kosti 5 pró­sent atkvæða í kosn­ingum fá slík fram­lög.

[adspot]

Kjarninn sagði frá efni til­kynn­ingar ráðu­neyt­is­ins í gær og sömu­leiðis því að sem stendur eru ein­ungis Viðreisn og Sam­fylk­ingin form­lega skráð sem stjórn­mála­sam­tök í sér­stakri stjórn­mála­sam­taka­skrá sem birt er á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Ákvæði um að stjórn­mála­sam­tök geti skráð sig sér­stak­lega sem slík hjá Rík­is­skatt­stjóra var bætt inn í lög um starf­semi stjórn­mála­sam­taka í fyrra.

Í þeim lögum segir að Rík­is­skatt­stjóri skrái stjórn­mála­sam­tökin og starf­ræki í því skyni stjórn­mála­sam­taka­skrána, sem birt skuli almenn­ingi á vef stjórn­ar­ráðs­ins ásamt upp­lýs­ingum sem fylgi umsóknum stjórn­mála­sam­tak­anna um skrán­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár