Stytta af Edward Snowden fjarlægð

Aðgerða­sinnar í New York vott­uðu upp­ljóstr­ar­anum virð­ingu sína. Styttan var sam­dæg­urs fjar­lægð af lög­reglu. Sjáðu við­tal John Olivers við Edward Snowden.

Hópur lista­manna í New York kom fyrir styttu af banda­ríska upp­ljóstr­ar­anum Edward Snowden í Brooklyn garði síð­ast­lið­inn mánu­dag. Hópurinn kom stytt­unni fyrir í óleyfi í dögun, en um miðjan dag var hún horfin. Lög­reglan hafði fjar­lægt hana. 

Edward Snowden
Edward Snowden

Stytt­unni hafði verið stillt upp á stórri súlu í garð­inum, en hún er hluti af minn­is­varða um 11.500 fang­els­aðra písl­ar­votta sem lét­ust um borð í breskum fanga­skipum í banda­ríska frels­is­stríð­inu árið 1776. Stað­setn­ing virð­ing­ar­votts­ins var engin til­viljun. 

Í við­tali við vef­síð­una Mashable sögð­ust aðgerða­sinn­arnir hafa valið þennan stað því hann væri hlað­inn merk­ingu og virð­ingu. Þá segja þeir stað­setn­ing­una við­eig­andi því saga Snowden væri í raun fram­hald á sögu þess­ara föllnu stríðs­fanga sem áttu þátt í stofnun Banda­ríkj­anna. Í sumum fjöl­miðlum sé Snowden úthróp­aður land­ráðs­maður og hryðju­verka­maður, en það sama hafi eflaust verið sagt um písla­vott­ana í frels­is­stríð­inu. Nú átti sig hins vegar flestir á mik­il­vægi máls­staðar þeirra. Eitt sinn hafi þeir verið glæpa­menn, nú séu þeir hetjur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár