Eva Joly Bendir Íslend­ingum á að fylgj­ast með hags­muna­á­rekstrum þeirra sem taka ákvarð­anir í sam­fé­lag­inu.

Varar Íslendinga við

Eva Joly, Evrópuþing­maður og rannsóknar­dómari, segist vilja hjálpa Íslendingum að fá „eðlilega“ hlutdeild í arði alþjóðlegra stór­fyrirtækja sem starfa á landinu. Hún varar við stöðugum hagsmuna­árekstrum fólks í stjórnunar­stöðum á Íslandi og kallar samning Íslendinga við Alcoa samning fyrir þróunar­ríki.

Eftir viðtal við Evu í Kast­ljósinu í síðustu viku líkti Tryggvi Þór Herbertsson, fyrr­verandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og forstjóri fjár­festinga­bankans Askar capital, skoðunum hennar við hugmynda­fræði íslamíska ríkisins ISIS.

„Það segir margt um þann fyrr­verandi þingmann, en ekkert um mig. Ég tala yfirvegað um rökrænt efni. Ég er að varpa ljósi á mikilvæg mál sem varða Ísland,“ segir Joly.

Í kjölfar þess að Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson, stjórn­endur Kaupþings, voru dæmdir í fangelsi í síðustu viku er mikil­vægast, að hennar mati, að embætti sérstaks saksóknara fái að njóta heiðurs fyrir góðan árangur.

„Það sem er mikilvægt núna er að embætti sérstaks saksóknara sé ekki svipt heiðrinum sem það á skilið. Það þarf að viðhalda því þar til öll málin sem það vinnur að ná að fara í gegnum allt kerfið.“

Fáir vildu taka að sér stöðu sérstaks saksóknara á sínum tíma. Aðeins tveir sóttu um. Nýlega var einn háværasti gagn­rýnandi embættisins ráðinn útgefandi 365 og ritstjóri Frétta­blaðsins, stærsta dagblaðs landsins, sem er í eigu eiginkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eins af þeirra sem hafa verið grunaðir um efnahags­brot í aðdrag­anda hrunsins.

„Við vitum að þau eru gift. Ég get bara beðið fólk um að rifja upp það sem ég sagði í sjón­varpinu árið 2009. Ég meina: Það að vera sérstakur saksóknari gerir mann berskjaldaðan fyrir miklu hatri frá valda­miklu fólki, sem berst á móti. Og leiðin til að gera það er að vega að stofnununum. Gagnsæi er mikilvægt og það er mikilvægt að það séu til sjálf­stæðir fjöl­miðlar sem muna feril Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og vita frá hvaða sjónar­hóli hann talar. Í dag er mikilvægt að halda því á lofti að sérstakur saksóknari hefur unnið þrekvirki. Þetta fólk má segja það sem það vill, en það breytir ekki veru­leikanum, er það?“

Tímabært að vera á verði

Eva Joly hefur sérstakar áhyggjur af hagsmuna­árekstrum á Íslandi, ekki síst vegna smæðar samfélagsins. „Ég held að þetta sé alvarlegt vandamál fyrir Ísland. Sem betur fer höfum við blogg­arana og ennþá einhverja sjálf­stæða fjölmiðla. En ég held að það sé tímabært að segja að þið ættuð að vera á verði.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár