Þórólfur samdi munnlega við Íslenska erfðagreiningu vegna landamæraskimana

„Gert er ráð fyrir því að ÍE muni senda reikn­ing fyrir efn­is­kostn­aði og launa­kostn­aði,“ segir í svari Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um aðkomu ÍE að skimunum ferða­fólks.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir munnlegt samkomulag í gildi á milli sín og Íslenskrar erfðagreiningar vegna aðkomu fyrirtækisins að landamæraskimunum.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir munn­legt sam­komu­lag í gildi á milli sín og Íslenskrar erfða­grein­ingar vegna aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins að landamæra­skimunum. Mynd: Lögreglan

Stjórn­völd gerðu engan nýjan skrif­legan samn­ing við Íslenska erfða­grein­ingu (ÍE) vegna aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins að skimunum fyrir COVID-19 á landamæra­stöðvum, heldur fer útfærsla á skimunum fram sam­kvæmt munn­legu sam­komu­lagi Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis við fyr­ir­tækið og fyrri skrif­legum samn­ingum sem höfðu verið gerðir um aðkomu ÍE að skimunum fyrir COVID-19 hér inn­an­lands.

„Gert er ráð fyrir því að ÍE muni senda reikn­ing fyrir efn­is­kostn­aði og launa­kostn­aði,“ segir í svari sótt­varna­læknis við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem óskað var eftir skrif­legum samn­ingi að aðkomu ÍE að skimunum ferða­fólks, ef slíkur hefði verið gerður, eða öllum upp­lýs­ingum sem fram­reið­an­legar væru um munn­legt sam­komu­lag sem hefði verið gert um sama efni.

Kári Stef­áns­son for­stjóri ÍE hafði áður sagt að hann reikn­aði með því að sá kostn­aður sem fyr­ir­tækið tæki á sig vegna aðkomu sinnar að landamæra­skimunum yrði greiddur af rík­inu. Fyr­ir­tækið sér um að skima þau sýni sem tekin eru á Kefla­vík­ur­flug­velli, sem hafa verið hátt í þús­und á dag und­an­farna daga.

Sótt­varna­læknir segir í svari sínu við fyr­ir­spurn­inni að aðkoma ÍE að grein­ingum á sýnum byggi á vinnslu­samn­ingi sótt­varna­læknis við Land­spít­al­ann frá árinu 2015 ann­ars vegar og hins vegar á vinnslu­samn­ingi ÍE við við sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans frá 12. mars síð­ast­liðnum.

[links]Hann bætir við að þessir vinnslu­samn­ingar byggi á sótt­varna­lögum, per­sónu­vernd­ar­lögum og reglum Per­sónu­verndar um öryggi per­sónu­upp­lýs­inga. Þá sé kveðið á um það í reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra að ein­ungis megi rann­saka sýni sem aflað er með skimun á landamæra­stöðvum með til­liti til kór­ónu­veirunnar og þeim skuli eytt að því búnu.

Íslenskri erfðagreiningu ekki veitt neitt sérleyfi

Í svar­inu segir einnig að stjórn­völd hafi ekki heitið ÍE neinum sér­kjörum, sér­leyfi eða sér­stökum aðgangi að gögnum sem safn­ast við skimun­ina, heldur séu gögnin á for­ræði sótt­varna­læknis sam­kvæmt sótt­varna­lögum og öllum aðgengi­leg til rann­sókna, sam­kvæmt verk­lags­reglum emb­ættis land­læknis.

Því er svo bætt við að ÍE hafi sam­hliða vinnu við skimanir fyrir COVID-19 ákveðið að stunda rann­sókn­ar­vinnu á sjúk­dómnum og hefði sótt um til­skilin leyfi til þar til bærra aðila vegna þeirra vinnu.

Fyr­ir­spurnin sem Kjarninn kom til sótt­varna­læknis var sam­hljóða fyr­ir­spurn Hauks Más Helga­sonar blaða­manns og rit­höf­unds, sem hann sendi á for­sæt­is­ráðu­neytið 8. júní, og sneri að aðkomu Íslenskrar erfða­grein­ingar að fram­kvæmd landamæra­skim­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár