Boðar hertar aðgerðir á landsvísu „sem fyrst“

Sótt­varna­læknir boðar hertar aðgerðir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og vill að þær verði sam­ræmdar um allt land. Lang­flest smit hafa komið upp á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þeim fjölgar nú á Norð­ur­landi. Á Aust­ur­landi er ekk­ert smit.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Um helm­ingur þeirra sem greind­ist með COVID-19 í gær var ekki í sótt­kví eða tutt­ugu manns og eru smitin flokkuð sem sam­fé­lags­smit. „Ef við lítum á kúrfu sam­fé­lags­smita þá er hún heldur á leið upp á við sem er óæski­leg þróun,“ sagði Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. 42 greindust inn­an­lands í gær, færri sýni voru tekin en und­an­farna daga eða um 2.000.

140 til­felli eru rakin til hins svo­kall­aða Land­skots­smits. Þar af eru um 90 til­felli á Landa­koti, sjö á Reykja­lundi og 27 á Sól­völlum og 21 til­felli teng­ist hóp­sýk­ing­unni óbeint. Af því hefur sótt­varna­læknir sér­stakar áhyggjur þar sem slík smit geta dreifst og farið út í sam­fé­lagið.

Hóp­sýk­ing hefur einnig komið upp í Öldusels­skóla. 44 til­felli tengj­ast henni. Flestir þeirra sem hafa smit­ast eru nem­endur en einnig hafa smit greinst utan skól­ans sem tengj­ast þó þess­ari hóp­sýk­ingu.

Þá hafa litlar hóp­sýk­ingar greinst víða að und­an­förnu. Þau tengj­ast fjöl­skyldum, íþróttum, veislum og vinnu­stöðum, sagði Þórólfur. „Það vekur ákveðnar áhyggjur.“

Alls hafa 2.500 manns greinst með COVID-19 frá upp­hafi þriðju bylgju far­ald­urs­ins 15. Sept­em­ber. Um þús­und manns eru í ein­angrun með virkt smit núna. 62 liggja inni á Land­spít­al­anum með COVID-19. Tveir eru á gjör­gæslu­deild og einn í önd­un­ar­vél. Í gær lést ein­stak­lingur á níræð­is­aldri vegna COVID-19. Alls hafa 125 verið lagðir inn á sjúkra­hús í þriðju bylgj­unni. Þrír hafa lát­ist í þeirri bylgju og þrettán frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

„Vonir höfðu verið bundnar við það að sam­fé­lags­smit myndi fækka en raunin hefur orðið,“ sagði Þórólfur. „Þeim hefur heldur fjölgað. Það er ákveðið áhyggju­efni.“

Þegar allt þetta er haft í huga og með til­liti til þungrar stöðu á Land­spít­al­anum telur Þórólfur ekki svig­rúm til til­slakanna á aðgerðum inn­an­lands. Hann er með í smíðum minn­is­blað til heil­brigð­is­ráð­herra þar sem hann mun leggja til harð­ari aðgerðir og betur sam­ræmdar og að þær nái yfir allt landið en síð­ustu vikur hafa tak­mark­anir verið harð­ari á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þórólfur sagði útfærslu aðgerða ekki liggja fyrir að fullu en hann sagð­ist von­ast til þess að þær tækju gildi sem fyrst. „Ef stjórn­völd fall­ast á þessar til­lögur þá sé ég fyrir mér að hertar aðgerðir þurfi ekki að standa lengur en í 2-3 vikur ef allt gengur vel.“

Spurður nánar út í hinar hertu aðgerðir svar­aði Þórólfur: „Við erum að tala um að herða. Menn geta þá ímyndað sér hvernig það geti verið.“

Sótt­varna­læknir var á fund­inum spurður hvort að hann telji að fólk muni fylgja enn hert­ari aðgerðum þar sem mis­brestur hafi orðið á því að gild­andi aðgerðum sé fylgt. Ein skýr­ingin á því að ekki hefur tek­ist að hemja útbreiðsl­una þrátt fyrir tak­mark­anir til þessa er sú að margar und­an­þágur hafa verið í gildi, „grá svæði“ eru til staðar. „Ég held að það sé eitt af því sem við þurfum að gera; að hafa regl­urnar skýr­ari og [veita] færri und­an­þágur.“

Þórólfur minnti að lokum á að enn sé langt í land. „Við þurfum áfram að standa saman og gera það sem við þurfum að gera þar til að gott og öruggt bólu­efni kemur á mark­að­inn.“

Alma Möller land­læknir sagði að staðan á Land­spít­ala væri gríð­ar­lega snúin. Á Landa­koti væri staðan þung og „ótrú­lega krefj­andi“.

Þá sagði hún stöð­una á Norð­ur­landi einnig vera að þyngj­ast vegna fjölg­unar smita. Þar er álag á heil­brigð­is­stofn­anir, m.a. vegna sýna­töku.

Alma nefndi að það afbrigði veirunnar sem nú væri að grein­ast hér á landi kunni að vera meira smit­andi en þau sem við höfum hingað til feng­ist við. „Þess vegna þarf að skerpa á smit­vörnum og hvert og eitt okkar að leggja sitt af mörkum eins og við getum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár