Tannburstarnir í skóginum

Jordan, tann­bursta­fram­leið­and­inn þekkti, hefur aug­lýst eftir not­uðum tann­burstum sem áhugi er á að reyna að end­ur­vinna. Í norskum skógi hafa fleiri þús­und tann­burstar frá Jordan legið í ára­tugi og rif­ist er um hver beri ábyrgð á að tína þá upp.

Þeir skipta þúsundum, tannburstarnir í norska skóginum.
Þeir skipta þús­undum, tann­burst­arnir í norska skóg­inum. Mynd: NRK

Á dög­unum greindu norskir fjöl­miðlar frá því að í Åsnes-Finns­skógi norð­austur af Ósló, nærri landa­mær­unum að Svíþjóð, væri að finna tann­bursta í þús­unda vís í haugum. Burstar þessir hafa verið í skóg­inum frá því að Jordan tann­bursta­fram­leið­and­inn var með verk­smiðju í smá­bænum Flisa. Jordan hafði gert sam­komu­lag við land­eig­and­ann um að nota skóg­inn til förg­unar bursta sem ein­hverra hluta vegna þóttu ekki af nægi­legum gæðum til að enda í hillum versl­ana. Þetta var á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar.

En nú þegar félagið Orkla hefur keypt Jordan hefur allt frá upp­götvun rusla­haugs­ins í haust verið deilt um hver eigi að bera kostn­að­inn að hreins­un­inni.

Á sama tíma er Jordan hins vegar að hvetja fólk til að skila sér not­uðum tann­burstum vegna til­rauna sem fyr­ir­tækið vill gera á end­ur­nýt­ingu þeirra. „Þeir hefðu getað fengið 100 kíló af tann­burstum á fimm mín­útum ef þeir hefðu farið í Åsnes-skóg,“ hefur norska rík­is­tút­varpið eftir Robert Tollef­sen sem fer fyrir sam­tök­unum Plast­p­írat­arnir.

Jordan hefur beðið not­endur tann­bursta sinna í Noregi og Portúgal um að skila not­uðum burstum til sín í fyrr­nefndi til­raun til end­ur­vinnslu. Allt í nafni lofts­lags­ins að sjálf­sögðu. „Það getur vel verið að tann­burst­arnir, eða ein­hverjir þeirra að minnsta kosti, sem er að finna í land­fyll­ing­unni [í skóg­inum] fari inn í þetta verk­efni,“ hefur NRK eftir upp­lýs­inga­full­trúa Jordan. „Það væri vissu­lega mjög áhuga­vert og eitt af því sem við erum að skoða.“

Upp­lýs­inga­full­trú­inn bendir hins vegar á að við­ræður standi yfir milli þriggja aðila, sveit­ar­fé­lags­ins, Orkla og land­eig­and­ans, um hvernig staðið verður af hreins­un­inni í skóg­inum. Finna þurfi „bestu lausn­ina“ í sam­vinnu þess­ara aðila. Hvort að tann­burst­arnir í skóg­inum henti til end­ur­vinnslu er líka annað mál. Um það veit Jordan ekki á þess­ari stundu þar sem starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa ekki sótt bursta til skoð­unar.

Toll­e­fesen plast­p­írati segir að mögu­leg end­ur­vinnsla tann­bursta sé að sjálf­sögðu hið besta mál. „Þeir fá prik fyrir það,“ segir hann. „Það verða allir að hugsa í lausnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár