Tapaðar kröfur upp á 640 milljónir

Arion banki var stærsti kröfu­haf­inn í þrotabú Ingólfs Helga­sonar. Hann var úrskurð­aður gjald­þrota í mars en til­kynnt var um skipta­lok í dag. Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur.

Fékk tveggja og hálfs árs dóm
Fékk tveggja og hálfs árs dóm Ingólfur Helgason var dæmdur í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu árið 2015. Mynd: Skjáskot af RÚV

Engar eignir fund­ust í þrota­búi Ingólfs Helga­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, sem úrskurð­aður var gjald­þrota fyrr á þessu ári. Gjald­þrota­skiptum lauk þann 20. júní 2018 án þess að greiðsla feng­ist upp í lýstar kröfur sem námu sam­tals 639,6 millj­ónum króna. Þetta kemur fram í Lög­birt­inga­blað­inu í dag, en Vísir greindi fyrst frá.

Stundin hafði sam­band við Lúðvík Örn Stein­ars­son, skipta­stjóra bús­ins, sem stað­festi að Arion banki hefði verið stærsti kröfu­haf­inn og átt stærstan hluta hinna töp­uðu krafna. Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gerði árang­urs­laust fjár­nám hjá Ingólfi þann 26. októ­ber síð­ast­lið­inn að beiðni bank­ans.

Ingólf­ur var dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi árið 2015 í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings. Stað­festi Hæsti­réttur dóm­inn árið 2016. Hafði Ingólfi áður verið gert að greiða slita­stjórn Kaup­þings rúman millj­arð og svo Arion banka sam­tals 167 millj­ónir vegna óupp­gerðra skulda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár