Sjávarútvegurinn geti ekki endalaust verið í „spennitreyju ósættis og deilna“

Fram­bjóð­andi Við­reisnar segir þjóð­ina hafa kallað eftir breyt­ingu á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og að hægt sé að fá meira út úr veiði­gjald­inu. Fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir önnur ríki horfa til íslenska kerf­is­ins enda arð­samt og sjálf­bært.

Sigmar Guðmundsson var á meðal gesta í Silfri dagsins á RÚV
Sigmar Guð­munds­son var á meðal gesta í Silfri dags­ins á RÚV Mynd: Skjáskot/RÚV

Að breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu er ekk­ert mál ef fólk kýs þá flokka sem vilja fara í slíkar breyt­ingar að mati Sigmars Guð­munds­sonar, fram­bjóð­anda Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann sagði þjóð­ina hafa kallað eftir breyt­ingu á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu, það sýndu margar kann­anir, og að ekki væri hægt að láta „þennan verð­mætasta atvinnu­veg okkar enda­laust vera í ein­hverri spenni­treyju ósættis og deilna.“

Sigmar var einn gesta í Silfrinu á RÚV í dag. Þar tók­ust fram­bjóð­endur á um stefnu flokk­anna fyrir kom­andi Alþing­is­kosn­ingar sem og það sem hefur áunn­ist á kjör­tíma­bil­inu. [links]

Viðreisn vill meðal ann­ars að lít­ill hluti afla­heim­ilda verði boð­inn út á hverju ári og að gerðir séu samn­ingar til langs tíma svo stöð­ug­leika í grein­inni verði ekki ógnað. „Við erum bara að tala um að aft­ur­kalla lít­inn hluta kvót­ans á hverju ári og and­lag þess er síðan notað til þess að ákvarða veiði­gjald sem yrði þá tals­vert hærra en það er í dag. Það er svo skrítið það er eins og það megi aldrei ræða um að kerfið eigi ekki bara að vera arð­bært og gott heldur líka sann­gjarnt og rétt­látt,“ sagði Sigmar. [adspot]

Sjálfbært og arðsamt kerfi

Næst til að taka til máls á eftir Sigmari var Diljá Mist Ein­ars­dóttir, fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Hún benti á það að sjáv­ar­út­vegs­kerfið á Íslandi væri það eina í OECD sem leggur meira til sam­neysl­unnar en það fær í styrki frá rík­inu og að fyr­ir­komu­lag veiði­gjalda væri mark­aðstengt, því það er tengt afkomu fyr­ir­tækj­anna.

Þá sagði hún önnur ríki horfa til íslenska kerf­is­ins. „Við erum búin að koma á fót kerfi sem ríki ann­ars staðar í heim­inum líta til að miklu leyti af því að við erum bæði búin að koma upp arð­sömum og sjálf­bærum veiðum, sem er ólíkt því sem áður var.“

Álag á stærstu fyrirtækin

Kristrún Frosta­dóttir, fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, sagði að hægt væri að koma í veg fyrir eigna­sam­þjöppun og fjár­magnað önnur verk­efni á sjálf­bæran hátt með breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu. Að hennar mati þarf þó að vanda til verka.

„Í Sam­fylk­ing­unni höfum við sagt að við viljum að það sé tekið almenni­legt sam­tal og farið í skoðun á því hvort við eigum að fara þessa útboðs­leið, að fá mark­aðs­gjald fyrir auð­lind­ina. Við vitum alveg að þetta mun ekki ger­ast á fyrsta vetri rík­is­stjórn­ar­innar,“ Sagði Kristrún. Til að byrja með ætli flokk­ur­inn að setja álag á stærstu útgerðir lands­ins til að fá meira út úr veiði­gjald­inu.

Vill bregðast við „óhóflegri stærð auðhringa“

„Að sama fyr­ir­tæki eigi alla virð­is­keðj­una og geti stjórnað því hvar hagn­að­ur­inn er tek­inn alveg frá því að fisk­ur­inn er veiddur alveg þangað til að hann er bor­inn fram í eld­húsi ein­hvers staðar úti í heimi, þetta er alveg frá­leitt að við látum þetta við­gang­ast,“ sagði Gunnar Smári Egilsson, fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, um fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið.

Hann sagði flokk­inn ann­ars vegar vilja breyta kerf­inu til þess bregð­ast við „óhóf­legri stærð auð­hringa“ sem hefðu allt of mikil tök á þjóð­fé­lag­inu að hans mati. Hins vegar sagði hann flokk­inn vilja hlusta á þjóð­ina sem sé ósátt við kerfið.

„Þjóðin lifir inni í þessu kerfi og veit að þetta er slæmt kerfi. Við viljum hlusta á það og við höfum lagt til að það verði til fiski­þing sem að marki stefnu til lengri tíma. Þvi þetta er sam­eign þjóð­ar­innar og þjóðin á að marka stefnu til lengri tíma. Til skemmri tíma leggjum við til að kvóta­kerfið verði aflagt og tekið verði upp daga­kerfi,„ sagði Gunnar Smári og bætti því við að Fær­ey­ingar hefðu notað slíkt kerfi með góðum árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár