Óvissustigi lýst yfir vegna aukinnar virkni í Öræfajökli

Ákvörð­unin var tekin í sam­ráði við Lög­regl­una á Suð­ur­landi.

Almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra hefur lýst yfir óvissu­stigi vegna vís­bend­inga um aukna virkni í Öræfajökli. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum.

Ákvörð­unin var tekin í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­landi sem verður með vakt á þjóð­veg­inum við Kvíá í nótt, að því er segir í til­kynn­ingu frá Rík­is­lög­reglu­stjóra.

Í til­kynn­ing­unni segir þó, að ekk­ert bendi ennþá til þess að eld­gos sé að hefj­ast.

Til­kynn­ingin frá almanna­vörnum er eft­ir­far­andi:

„Vegna vís­bend­inga um aukna virkni í Öræfajökli hefur rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­landi, lýst yfir óvissu­stigi almanna­varna. Jarð­skjálfta­virkni hefur farið stig­vax­andi í Öræfajökli síð­asta árið og til­kynn­ingar um jarð­hita­lykt bár­ust í gær. Nú undir kvöldið var stað­fest að breyt­ingar á yfir­borði Öræfa­jök­uls hafa orðið.

Engin merki eru um gos­óra eða yfir­vof­andi eld­gos.

Land­helg­is­gæslan mun fljúga með vís­inda­menn til að kanna aðstæður og taka sýni í fyrra­málið.

Lög­reglan á Suð­ur­landi verður með vakt á þjóð­veg­inum við Kvíá í nótt en sú ráð­stöfun verður end­ur­skoðuð eftir flug vís­inda­manna um svæðið.

Veð­ur­stofan hefur aukið vöktun á svæð­inu og fylgist vel með í sam­ráði við jarð­vís­inda­menn Háskóla Íslands og Almanna­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra.

Frekari mæl­ingar verða gerðar í og við jökul­inn á næstu dögum sem gefa von­andi betri mynd af atburð­ar­rásinni sem er í gangi.

Óvissu­stig almanna­varna er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitt­hvað sé að ger­ast af nátt­úru- eða manna­völdum sem á síð­ari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað

Að lýsa yfir óvissu­stigi er hluti af verk­ferlum í skipu­lagi almanna­varna til að tryggja form­leg sam­skipti og upp­lýs­inga­gjöf á milli við­bragðs­að­ila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár