Segir viðbrögð háskólarektors hafa valdið sér vonbrigðum

Sigrún Helga Lund sem sagði pró­fess­ors­stöðu sinni í líf­töl­fræði lausri hjá Háskóla Íslands í gær segir við­brögð háskóla­rekt­ors hafa valdið sér von­brigðum. Það sé greini­legt að það eigi að sópa mál­inu undir teppið.

Sigrún Helga Lund
Sigrún Helga Lund Mynd: Háskóli Íslands

Sigrún Helga Lund sem sagði pró­fess­ors­stöðu sinni í líf­töl­fræði lausri hjá Háskóla Íslands í gær segir við­brögð háskóla­rekt­ors hafa valdið sér von­brigðum. Það sé greini­legt að það eigi að sópa mál­inu undir teppið.

[links]Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem lög­fræð­ing­ur­inn Sigrún Jóhanns­dóttir sendi til fjöl­miðla fyrir hönd Sigrúnar Helgu í dag.

Sigrún Helga gaf það upp sem ástæðu að Háskól­inn hefði ekki tekið á kæru hennar til siða­nefndar vegna óvið­eig­andi fram­komu yfir­manns innan skól­ans. Kjarninn fjall­aði um málið í gær en þar kom fram að hún hefði kvartað til Háskóla Íslands vegna erf­iðra sam­skipta og kyn­ferð­is­legs hátta­lags af völdum yfir­manns hennar í starfs­manna­við­tali.

Óbærilegt að vinna við þessar kringumstæður

Í til­kynn­ing­unni kemur jafn­framt fram að ekki hafi verið tekið á kyn­ferð­is­legri áreitni í siða­reglum háskól­ans og því hafi kæran ekki snúið beint að henni.

„Siða­nefnd háskól­ans Háskól­ans taldi yfir­mann Sigrúnar hins­vegar sekan um að hafa brotið gegn þremur ákvæðum siða­reglna, hann hafi ekki sýnt Sigrúnu Helgu virð­ingu og látið per­sónu­leg tengsl hafa áhrif á sam­vinn­una. Alvar­leg­asta brotið var talið snúa að því ákvæði sem fjallar um mis­munun, meðal ann­ars á grund­velli kyns og ein­elti á vinnu­stað. Þá taldi nefndin að sann­anir skorti fyrir því að sögu­sagnir og dreif­ing á meið­andi ummælum um Sigrúnu væru á ábyrgð hans, en sagði þó að „ætla mætti að tengsl væru þar á milli“,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu sem lá fyrir um miðjan júlí komu engin við­brögð frá Jóni Atla Bene­dikts­syni háskóla­rektor, sam­kvæmt Sigrúnu Helgu. Hún segir óbæri­legt að vinna við slíkar kring­um­stæður. Yfir­mað­ur­inn sé í stöðu til þess að gera lítið úr henni og hennar vinnu og úrskurð­ur­inn hafi engin áhrif.

„Ég vildi að siða­nefnd tæki afstöðu til þess hvort það væri eðli­legt að yfir­menn innan Háskól­ans væru að reyna að sofa hjá und­ir­mönnum sínum og það hefði áhrif á starfs­ör­yggi þeirra og fram­gang á vinnu­stað. Þetta er ekki eins­dæmi því miður. Margir höfðu sam­band við mig eftir að fjallað var um málið í gær. Fólk sem hefur sömu sögu að segja og vill gjarnan ræða við fjöl­miðla,“ segir Sigrún Helga.

Setti sig aldrei inn í málið

Sigrún Helga hitti háskóla­rektor á fundi í gær eftir að fjallað var um málið í fjöl­miðlum. Þar segir hún að hann hafi skýrt frá því að hann hafi aldrei skoðað úrskurð­inn eða sett sig inn í málið.

Í kjöl­far þess að hún sagði upp stöðu sinni í gær kom yfir­lýs­ing frá Sigurði Yngva Krist­ins­syni, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands, þar sem hann hafnar alfarið ásök­unum um að hafa áreitt Sigrúnu Helgu. Fram kemur í yfir­lýs­ingu Sigrúnar Helgu í dag að hún hafi aldrei ætlað að fara út í nafn­birt­ingar eða neitt slíkt, leðju­slagur þjóni engum til­gangi. „Hann velur að fara fram með þessum hætti. Ég er mjög hneyksluð á þessum við­brögðum en hann getur auð­vitað valið að segja ósatt til að fegra sinn hlut. Hann þarf greini­lega ekki að ótt­ast við­brögð háskóla­rekt­ors,“ segir hún.

Gagnrýnir stjórnendur skólans

Sigrún Helga gagn­rýnir að stjórn­endur HÍ hafi ekki brugð­ist við nið­ur­stöðu siða­nefndar með ein­hverjum hætti, þar sem reglur hafi verið brotnar. „Það er alvar­legt mál að háskóla­rektor lít­ils­virði siða­nefnd­ina með þessum hætti. Ef það hefur engar afleið­ingar í för með sér að brjóta regl­urnar hefur siða­nefndin enga þýð­ingu,“ segir hún.

Hún segir að fram hafi komið í máli rekt­ors að þar sem málið verð­s­kuldi ekki form­lega áminn­ingu geti hann ekki brugð­ist við með öðrum hætti. „Það er frekar ódýrt að fórna mér og mínu mann­orði af því þeir hafa ekki getu til að standa með konum í þess­ari aðstöðu á sama tíma og þeir eru að gera mikið úr jafn­rétti innan skól­ans. Það er alveg ljóst að þegar stjórn­endur skól­ans hafa ekki kjark til að ljúka mál­inu er óbæri­legt fyrir mig að starfa innan skól­ans.“

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár