Prófessor í líftölfræði við HÍ segir upp stöðu sinni við skólann

Sigrún Helga Lund hefur sagt upp starfi sínu vegna dræmra við­bragða stjórn­enda skól­ans við kvört­unum hennar vegna erf­iðra sam­skipta og kyn­ferð­is­legs hátta­lags af völdum yfir­manns hennar í starfs­manna­við­tali.

Sigrún Helga Lund
Sigrún Helga Lund Mynd: Háskóli Íslands

Sigrún Helga Lund, pró­fessor í líf­töl­fræði við Miðstöð í lýð­heilsu­vís­indum við Háskóla Íslands, hefur sagt upp starfi sínu vegna dræmra við­bragða stjórn­enda skól­ans við kvört­unum hennar vegna erf­iðra sam­skipta og kyn­ferð­is­legs hátta­lags af völdum yfir­manns hennar í starfs­manna­við­tali.

Frá þessu greinir Sigrún í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Hún segir að sum­arið 2016 hafi hún lýst áhyggjum yfir erf­iðum sam­skiptum og kyn­ferð­is­legu hátta­lagi af völdum yfir­manns hennar í starfs­manna­við­tali. Engin við­brögð hafi fylgt þeirri kvörtun, ástandið hafi versnað ört og þegar það hafi loks verið orðið óbæri­legt hafi hún svarað fyrir sig og löðr­ung­aði yfir­mann­inn. Þá fyrst hafi Háskól­inn brugð­ist við en á allt annan máta en hana hafi órað fyrir.

„Þrátt fyrir að ég sýndi marg­vís­leg sönn­un­ar­gögn um alvar­legt and­legt ofbeldi og ein­elti var engin til­raun gerð til að rann­saka málið. Ég var rekin af vinnu­staðnum og skipað að fara í veik­inda­leyfi. Þegar ég neit­aði að hlýða var mér hótað áminn­ingu sem HÍ neydd­ist þó til að láta niður falla enda málið allt á sandi byggt,“ segir Sigrún.

Sigrún bendir á að á sama tíma hafi metoo-umræðan risið sem hæst, þar sem HÍ hafi barið sér hvað mest á brjóst.

Yfirmaðurinn braut þrjár greinar siðareglna HÍ

„Kjafta­sögur fljúga hratt á litla Íslandi og það er ekki auð­velt að vernda mann­orð sitt gegn svo valda­miklum aðilum,“ segir Sigrún. Að lokum seg­ist hún þó hafa náð styrk til að kæra málið til siða­nefndar háskól­ans sem kvað upp dóm í júlí síð­ast­liðnum. Þar hafi verið stað­fest að yfir­maður hennar hafði brotið þrjár greinar siða­reglna, þar með talda jafn­ræð­is­reglu 1.3.2:

Starfs­fólk og nem­endur Háskól­ans gæta þess að mis­muna ekki hver öðrum, til dæmis vegna kyns, kyn­þáttar, kyn­hneigðar, ald­urs, fötl­unar, þjóð­ernis, trú­ar­bragða eða skoð­ana. Þeir leggja ekki hver annan í ein­elti og eru á varð­bergi gagn­vart ein­kennum þess.

Sigrún segir að það hafi ekki verið fyrr en að lög­fræð­ingur hennar hafi stafað nið­ur­stöð­una ofan í hana að hún átt­aði sig á að hún hafði unnið málið. Hún hefði aldrei trúað því hvað gas­lýs­ingin væri sterk.

Heyrði ekki meira frá skólanum

Málið var komið í hendur rekt­ors, að hennar sögn, og í fyrsta sinn bærð­ist með henni von um rétt­læti. Hún seg­ist hafa fengið fregnir af því að siða­nefnd hefði fundað með rektor og beið hún spennt eftir að heyra nánar frá honum. Fjórir mán­uðir hafi liðið og á morg­un­fundi um jafn­rétt­is­mál í hátíð­ar­sal HÍ hafi hann sagt við hana að í Háskóla Íslands hefðu þau lagt áherslu á að hlusta á sögur kvenna, draga af þeim lær­dóm og bregð­ast fljótt og fum­laust við.

Sigrún segir að aldrei hafi neitt heyrst eftir það.

„Nú er nær hálft ár liðið síðan dómur féll, ekki stakt orð borist frá rektor og allt ástand óbreytt - ef ekki verra. Nú er svo komið að ég get ekki hugsað mér að hefja enn annað starfsár á sama vinnu­stað.

Ég segi því hér með upp starfi mínu sem pró­fessor í líf­töl­fræði við Miðstöð í lýð­heilsu­vís­indum við Háskóla Íslands,“ segir hún í stöðu­upp­færsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár