Kostur að fólk sé ósammála

Finnur Dellsén heim­spek­ingur sér það sem ákveðið styrk­leika­merki kenn­ingar þegar ekki allir eru sam­mála henni. Í þessu sam­hengi talar hann meðal ann­ars um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum.

Finnur Dellsén
Finnur Dellsén Mynd: Bára Huld Beck

Finnur Dellsén, dós­ent í heim­speki við Háskóla Íslands, telur að sú afstaða að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum mjög vel rök­studda en hann var í ítar­legu við­tali við Kjarnann sem birt­ist um ára­mótin.

Ein af ástæðum þess að hún er vel rök­studd, að hans mati, er að lang­flestir vís­inda­menn, eða um 97 pró­sent, hafa kom­ist að þess­ari nið­ur­stöðu. „Það að ein­hverjir vís­inda­menn séu á annarri skoðun er ekki endi­lega ekki eitt­hvað sem við ættum að hafa miklar áhyggjur af,“ segir hann.

Ástæðan fyrir því að við ættum ekki að hafa áhyggjur af þeim sem eru í miklum minni­hluta, að sögn Finns, er sú að við ættum að búast við því, nán­ast sama hvert mál­efnið er, að ein­hverjir séu ósam­mála nið­ur­stöð­unni sem allir aðrir eru sam­mála um. Þannig sjái Finnur það þvert á móti sem ákveðið styrk­leika­merki á kenn­ingu að þeir séu til sem eru ósam­mála henni.

[links]„Ef 100 pró­sent lofts­lags­vís­inda­manna væru sam­mála um að breyt­ing­arnar séu af manna­völdum þá myndi ég hafa meiri áhyggjur en ég hef núna. Þá væri ástæða til að trúa því að eitt­hvað skrítið væri í gangi með þessa vís­inda­menn vegna þess að þessi vís­indi eru mjög flókin. Það er mjög flókið að kom­ast að því hverjar orsakir lofts­lags­breyt­inga eru – það er ekki jafn ein­falt og stundum er látið í veðri vaka þar sem heim­ur­inn hefur hlýnað og á sama tíma hefur gróð­ur­húsa­loft­teg­undum verið hleypt út í and­rúms­loftið. Það er ekki svo ein­falt að hægt sé að draga þá ályktun að annað sé orsök fyrir hinu. Við vitum að það er ákveðin hugs­ana­villa að þegar tveir hlutir fara saman þá sé þar af leið­andi orsaka­sam­hengi þarna á milli. Það er ekki þannig.“

Þannig ætti að koma okkur veru­lega á óvart ef allt í einu 100 pró­sent vís­inda­manna væru sam­mála um þessi mál. „Ég myndi segja að 97 pró­sent sé nokkurn veg­inn það hlut­fall sem sem við ættum að búast við að segði að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum ef lofts­lags­breyt­ingar væru af manna­völdum.“

Finnur segir að mjög algengt sé að fólk noti þessi þrjú pró­sent sem eru ósam­mála heild­inni sem for­sendu fyrir eigin skoð­unum. „Þetta er eitt­hvað sem ger­ist oft með sér­fræð­inga, að fólk dregur fram þá sem hentar þeirra mál­stað. Ég hef veru­legar áhyggjur af þessu og tel ég að við ættum að breyta því hvernig við hlustum á sér­fræð­inga,“ segir hann. Í stað þess að leita eftir skoð­unum ein­stakra sér­fræð­inga ættum við að spyrja okkar hvað sér­fræð­ing­arnir á til­teknu sviði eru flestir sam­mála um. Það sé miklu áreið­an­legri leið­ar­vísir að því hvað sé satt á við­kom­andi sviði.

„Í þessu til­felli eru 97 pró­sent lofts­lags­vís­inda­manna á því að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum og ég held að við ættum ekki að hlusta sér­stak­lega á neinn af þeim sem mynda þessi þrjú pró­sent. Við ættum frekar að horfa á það að nán­ast allt annað lofts­lags­vís­inda­fólk er sam­mála um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum. Það er miklu meira upp­lýsandi í almennri og opin­berri umræðu um öll mál. Lofts­lags­breyt­ingar eru mjög gott dæmi um þetta,“ segir hann.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár