Sjálfstæðisflokkurinn frestar landsfundi sínum

Rúm þrjú ár eru síðan að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hélt síð­ast lands­fund. Til stóð að halda hann í nóv­em­ber í fyrra og svo aftur í lok ágúst, í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga. Nú er búið að fresta honum um óákveð­inn tíma.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins ákvað á í dag að fresta fyr­ir­hug­uðum lands­fundi flokks­ins, en hann átti að fara fram dag­ana 27. – 29. ágúst. Ekki hefur verið ákveðið hvenær næsti lands­fundur flokks­ins fer fram heldur verður honum frestað um óákveð­inn tíma.

Í frétt á vef flokks­ins segir að þess í stað verði flokks­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins kallað saman sömu helgi á raf­rænum fundi. „Er þetta gert í ljósi stöð­unnar í útbreiðslu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér á landi.“

[adspot]Síðasti lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fór fram í mars 2018. Til stóð að halda fund­inn í Laug­ar­dals­höll dag­ana 13.-15. nóv­em­ber í fyrra en því var frestað vegna heims­far­ald­urs­ins.

Innan við mán­uður er síðan að Mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins ákvað á fundi sínum að 44. lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins myndi loks fara fram síð­ustu helg­ina í ágúst, og í aðdrag­anda kom­andi þing­kosn­inga sem fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Það var gert með til­kynn­ingu 9. júlí en skömmu áður hafði rík­is­stjórnin ákveðið að fella niður tak­mark­anir inn­an­lands.

Breyting varð á því í lok júlí þegar ný bylgja smita reið yfir landið og nýjar tak­mark­anir settar á og nú hefur fund­ur­inn verið blás­inn af um óákveð­inn tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár