Vonir um að meginhluti þjóðar fái bóluefni á næstu þremur, fjórum eða fimm mánuðum

Ráðu­neyt­is­stjóri í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu seg­ist gera ráð fyrir því að ríki hafi svarað fyr­ir­spurnum um bólu­efna­samn­inga frá Bloomberg með mis­mun­andi hætti. Vonir standi til að meg­in­hluti þjóð­ar­innar verði bólu­settur á „næstu mán­uðum.“

Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu.
Ásta Valdi­mars­dóttir ráðu­neyt­is­stjóri í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Mynd: Almannavarnir

„Við sótt­varna­læknir óskum öllum lands­mönnum gleði­legra jóla og biðjum alla að fara var­lega, því þetta er ekki búið,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Fund­ur­inn verður sá síð­asti fyrir jól og var Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn mættur aftur eftir veik­inda­leyfi.

Land­læknir sagði veiruna á sveimi í sam­fé­lag­inu og reynslan sýndi að hún næði sér á strik í hvert skipti sem fólk slak­aði á. „Það eru vís­bend­ingar uppi um að far­ald­ur­inn geti verið á upp­leið og sú mikla hreyf­ing sem er á fólki und­an­farið og hópa­mynd­anir er kjör­inn vett­vangur fyrir veiruna og áhyggju­efni á þessum tíma,“ sagði Alma.

Bólusetningar meginumræðuatriði fundarins

Nokkuð hefur verið rætt og fjallað um bólu­setn­ingar hér á landi und­an­farna daga. Í gær fundu stjórn­völd sig knúin til þess að leið­rétta í gær frétt í banda­ríska vef­miðl­inum Bloomberg þar sem sagði að Íslend­ingar hefðu ein­ungis tryggt sér bólu­efni fyrir rösk­lega 28 pró­sent þjóð­ar­innar. Þess má geta að í upp­færðri sam­an­tekt Bloomberg segir nú að Ísland hafi tryggt sér skammta fyrir 218 þús­und manns, 61 pró­sent lands­manna.

Alma land­læknir sagði að það ríkti ákveðin óvissa um hversu hratt okkur myndi ber­ast bólu­efni og „hvenær við verðum búin að bólu­setja nógu marga til að stjórn náist á far­aldr­inum.“ Björn Ingi Hrafns­son fjöl­miðla­maður full­yrti á fund­inum að hann hefði rætt við fólk „inni í stjórn­kerf­inu“ sem hefði tjáð sér að frétt Bloomberg væri í raun ekk­ert röng.

Ásta Valdi­mars­dóttir ráðu­neyt­is­stjóri í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu lagði áherslu á það í máli sínu að jafn­vel væri búið að tryggja nægi­legt bólu­efni til þess að tryggja allt að 435 þús­und manns hér á landi bólu­setn­ingu, ef svo fer að bólu­efni Janssen – Johnson & Johnson – verði gefið með einum skammti, en ekki tveimur.

Hvenær bólu­efnin koma nákvæm­lega ríki þó enn óvissa um. Stjórn­völd hafa sett upp síð­una bólu­efni.is, sem verður upp­færð með nýj­ustu opin­beru upp­lýs­ingum.

Ráðu­neyt­is­stjór­inn sagð­ist ekki almenni­lega átta sig á því af hverju það væri mis­ræmi í frétt Bloomberg og því sem íslensk stjórn­völd segja. Hún gerði þó ráð fyrir því að ríki hefðu svarað upp­lýs­inga­beiðnum mið­ils­ins með mis­mun­andi hætti og væru jafn­vel að veita miðl­inum upp­lýs­ingar um mögu­lega skammta sem þau gætu fengið úr COVAX, bólu­efna­sam­starfi Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, sem er aðal­lega hugsað til að tryggja lág­tekju­ríkjum bólu­efni. Það hefði Ísland ekki gert.

„Þrír, fjórir, fimm mánuðir“

„Auðvitað er erfitt að segja til um hvenær nægi­legt bólu­efni berst til lands­ins, en við erum búin að tryggja okkur þetta með samn­ingum,“ sagði Ásta. Hún sagði vonir standa til þess að búið yrði að bólu­setja meg­in­hluta lands­manna á næstu mán­uðum.

[links]

„Þegar ég segi næstu mán­uðum, meina ég þrír, fjórir, fimm mán­uðir,“ sagði Ásta.

Á milli jóla og nýárs koma fyrstu skammt­arnir af bólu­efni Pfizer og BioNTech til lands­ins, alls 10 þús­und skammtar. Svo koma viku­legar send­ingar af efn­inu út mars­mánuð, í heild­ina fyrir 25-30 þús­und manns.

Ásta sagð­ist velta því fyrir sér af hverju það virt­ist svo víða eft­ir­sókn­ar­vert að ríki væru að tryggja sér bólu­efni fyrir marg­faldan íbúa­fjölda sinn og benti á að það hefði verið gagn­rýnt á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna að auðug ríki væru að tryggja sér mikið umfram­magn af bólu­efnum í samn­ingum.

Hún sagði að íslensk stjórn­völd hefðu talið hag sínum betur borgið að vera í sam­floti með Evr­ópu­sam­band­inu varð­andi kaup á bólu­efnum og að það væri til þess fallið að styrkja samn­ings­stöðu okkar.

Breska afbrigðið veldur usla

Alma land­læknir ræddi um afbrigði veirunnar sem hefur valdið miklu fjaðrafoki í Bret­landi og raunar víðar í Evrópu, en þónokkur ríki hafa lokað á flug­ferðir til og frá Bret­landi vegna vís­bend­inga um að það sé eitt ákveðið afbrigði orðið mjög útbreitt þar í landi og að það smit­ist hraðar en aðrir stofnar veirunnar.

Breskir ráða­menn rök­studdu stór­hertar aðgerðir sínar yfir jólin með því að þetta afbrigði væri sér­lega smit­andi. Frakkar eru búnir að loka á alla vöru­flutn­inga til og frá Bret­landseyjum, til öryggis. Bresk stjórn­völd sitja í dag neyð­ar­fundi vegna stöðu mála.

„Þetta afbrigði er með óvenju­margar stökk­breyt­ingar á þessu svo­kall­aða „spike-“próteini, sem við höfum kallað gadda­prótein. Það virð­ist ekki vera þannig að þetta afbrigði valdi erf­ið­ari sjúk­dómi en önnur, það eru engar vís­bend­ingar um að það sé hægt að sýkj­ast aftur af þessu afbrigði eða að bólu­setn­ing muni ekki virka vernd­andi gegn því, en það er verið að rann­saka þetta frekar og fylgj­ast mjög vel með,“ sagði Alma.

Fólk á að fara í sýnatöku ef það finnur fyrir minnstu einkennum

Alma land­læknir sagði að lyk­ill­inn að því að halda far­aldr­inum í skefjum núna á næst­unni væri að fólk héldi sig heima og færi svo í sýna­töku, ef það fyndi fyrir minnstu ein­kennum sem gætu sam­ræmst COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár