Tony Blair ýkti ógnina af Írak fyrir innrásina

Bretar tóku ákvörðun um að taka þátt í inn­rásinni í Írak árið 2003 áður en búið var að reyna til fulls allar frið­sam­legar aðgerðir til að koma Saddam Hussein frá völdum. Hern­að­ar­að­gerðir á þessum tíma­punkti voru ekki síð­asta neyð­ar­úr­ræðið. Þetta er nið­ur­staða Chilcot-nefnd­ar­innar í Bret­landi, sem hefur rann­sakað hlut Bret­lands í Íraks­stríð­inu að beiðni breska þings­ins.

Skýrslan er mjög gagn­rýnin í garð Tony Blair, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

Í skýrsl­unni kemur fram að það hafi ekki verið nein yfir­vof­andi hætta sem staf­aði af Saddam Hussein. Hægt hefði verið að und­ir­búa aðgerðir gegn honum í mun lengri tíma en gert var.

Tony Blair er einnig sagður hafa vilj­andi ýkt hætt­una sem staf­aði frá Írak til þess að styrkja mál­stað sinn gagn­vart þing­mönnum og almenn­ingi í aðdrag­anda inn­rás­ar­innar. Hann hafi látið sem ógnin af Írak hafi verið meiri en hún var, og gert minna úr áhætt­unni við það að ráð­ast þar inn.

Þá hafi Blair og stjórn­völd, þrátt fyrir miklar aðvar­anir, van­metið afleið­ing­arnar af inn­rásinni. Und­ir­bún­ingur og skipu­lagn­ing að upp­bygg­ingu Íraks eftir Saddam hafi verið með öllu óvið­un­andi. Breskum stjórn­völdum hafi mis­tek­ist ætl­un­ar­verk sitt.

Blair er sagður hafa treyst um of á sjálfan sig og eigin dóm­greind.

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár