Krefur önnur sjávarútvegsfyrirtæki um afstöðu til framferðis Samherja

Íslands­deild Transparency International sendi erindi á stjórn­ar­for­mann og fram­kvæmda­stjóra SFS í gær. Þar var skorað á fyr­ir­tæki sem hafa und­ir­ritað sam­fé­lags­stefnu SFS um að taka afstöðu til þess hvort fram­ferði Samherja væri í anda þeirrar stefnu.

Tugir fyrirtækja hafa undirritað samfélagsstefnu SFS. Íslandsdeild Transparency International vill að þau taki afstöðu til þess framferðis Samherja sem hefur opinberast á undanförnum dögum.
Tugir fyr­ir­tækja hafa und­ir­ritað sam­fé­lags­stefnu SFS. Íslands­deild Transparency International vill að þau taki afstöðu til þess fram­ferðis Samherja sem hefur opin­ber­ast á und­an­förnum dögum. Mynd: Rakel Tómasdóttir

Íslands­deild Transparency International skorar á Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) og þau sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem hafa und­ir­ritað stefnu sam­tak­anna um sam­fé­lags­á­byrgð, um að upp­lýsa um hvort þau telji fram­ferði Samherja sam­ræm­ast stefnu SFS um sam­fé­lags­á­byrgð, sem SFS hefur sett sér og fyr­ir­tækin með und­ir­ritun sinni lýst yfir að þau ætli að fylgja.

Fyr­ir­tæki innan SFS settu sér stefnu um sam­fé­lags­á­byrgð síð­asta haust og hafa tugir fyr­ir­tækja und­ir­ritað hana nú þegar. Samherji er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem hafa und­ir­ritað stefn­una.

Í erindi sem fram­kvæmda­stjóri Íslands­deild­ar­innar, Atli Þór Fanndal, sendi á fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­for­mann SFS í gær er skorað á þau fyr­ir­tæki sem hafa und­ir­ritað stefn­una að sýna íslensku þjóð­inni, „eig­anda auð­lind­ar­innar sem þau hafa einka­rétt til að nýta, þá lág­marks­virð­ingu að upp­lýsa hana um hvort þau telja fram­ferði Samherja sam­ræm­ast stefnu SFS um sam­fé­lags­á­byrgð sem sam­tökin hafa sett sér og fyr­ir­tækin hafa með und­ir­ritun sinni lýst yfir að þau ætli að fylgja.“

Íslands­deild Transparency segir að íslenska þjóðin hljóti að furða sig á því „að SFS og fyr­ir­tæki sem hafa und­ir­ritað stefnu sam­tak­anna um sam­fé­lags­á­byrgð skuli ekki hafa talið til­efni til að stíga fastar niður“ og for­dæma fram­ferði Samherja og „skæru­liða­deildar“ fyr­ir­tæk­is­ins sem hefur opin­ber­ast í nýlegum umfjöll­unum Kjarnans og Stund­ar­innar.

[adspot]

„Það vekur spurn­ingar um til­gang verk­efn­is­ins að enn sé Samherji hluti af verk­efn­inu og þar með listað af Sam­tök­unum sem fyr­ir­tæki í sátt við und­ir­rit­aðar reglur,“ segir í erind­inu.

„Stjórn SFS verður að spyrja sig hvort almenn­ingur og við­skipta­vinir fyr­ir­tækj­anna geti rétti­lega dregið þá ályktun af veikum við­brögðum sam­tak­anna sem virð­ast bara telja rétt og eðli­leg að þegja þunnu hljóði á meðan Samherji gengur fram með for­dæma­lausum aðgerðum gegn blaða­mönnum inn­an­lands sem og erlendis, stétt­ar­fé­lögum, upp­ljóstr­urum, eft­ir­lits­stofn­unum, sjálf­stæðum félaga­sam­tökum og þar af leið­andi sam­fé­lag­inu öllu,“ segir enn­fremur, í erindi Íslands­deildar Transparency International.

Hafa kallað eftir breiðfylkingu

Íslands­deildin, sem er á meðal þeirra sem „skæru­liða­deildin“ safn­aði upp­lýs­ingum um og vildi beita sér gegn, hefur þegar kallað eftir „breið­fylk­ingu almenn­ings, félaga­sam­taka, stétt­ar­fé­laga, sam­taka upp­ljóstr­ara, fræða­sam­fé­lags, stjórn­mál­anna og allra þeirra sem vett­lingi geta valdið gegn til­raunum fyr­ir­tæk­is­ins og „skæru­liða“ til að grafa undan sam­fé­lags­sátt­mál­anum og gildum þeim er hann byggir á.“[links]

Í yfir­lýs­ing­unni sem félagið sendi frá sér síð­ustu helgi sagði að Samherji hefði á engum tíma­punkti sýnt vilja til umbóta eftir að Namib­íu­mál fyr­ir­tæk­is­ins kom upp heldur hefði hann þvert á móti varið fé og vinnu­stundum í að grafa undan eft­ir­lits­stofn­unum, blaða­mönnum og þar með sam­fé­lag­inu öllu.

„Fyr­ir­tæki sem hafa ekk­ert að fela stunda ekki árásir á fólk sem berst fyrir bættu sam­fé­lagi og almanna­heill. Fyr­ir­tæki sem eru með­vituð um almanna­hag þurfa ekki „skæru­liða­deild“ sem lætur sig dreyma um að „stinga, snúa og strá svo salti í sárið,“ sagði Transparency.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár