Vill vinna Hafnarfjörð fyrir jafnaðarmenn 29 árum eftir að hann hætti sem bæjarstjóri

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri, ráð­herra og sendi­herra vill verða odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði og stefnir að því að tvö­falda bæj­ar­full­trúa­tölu flokks­ins. Hann hefur verið fjar­ver­andi úr póli­tík frá árinu 2005.

Guðmundur Árni Stefánsson.
Guð­mundur Árni Stef­áns­son. Mynd: Facebook-síða Guðmundar Árna Stefánssonar.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri, ráð­herra og sendi­herra, hefur lýst því yfir að hann vilji leiða Sam­fylk­ing­una í Hafn­ar­firði í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Prófkjör flokks­ins fer fram 12. febr­úar næst­kom­andi. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir hann vera viss um að Sam­fylk­ingin geti orðið stærsti flokkur bæj­ar­ins. „Fái ég stuðn­ing flokks­fé­laga minna í próf­kjör­inu, þá stefni ég óhikað að því að Sam­fylk­ing vinni góðan sigur í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í maí og tvö­faldi bæj­ar­full­trúa­tölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosn­ingum geti Sam­fylk­ingin í góðu sam­starfi við aðra flokka tekið við for­ystu um stjórn bæj­ar­ins.“

Guð­mundur Árni, sem verður 67 ára í haust, hefur áður verið leið­andi afl í bæj­ar­stjórn­arpóli­tík í Hafn­ar­firði. Hann sat í bæj­ar­stjórn í tólf ár á síð­ustu öld, þar af sem bæj­ar­stjóri í sjö. Guð­mundur Árni steig upp úr þeim stóli 1993, fyrir 29 árum síðan, og sett­ist á þing í kjöl­farið fyrir Alþýðu­flokk­inn.

„Nú kannast ég við þig. Ekki af baki dottinn“

Í áður­nefndri stöðu­upp­færslu segir hann að það sé sann­ar­lega verk að vinna í Hafn­ar­firði, en sem stendur er sveit­ar­fé­lag­inu stýrt af meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks og óháðra og Rósa Guð­bjarts­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks, er bæj­ar­stjóri. „Átta ára þreytu­leg valda­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum kallar á ný vinnu­brögð þar sem verkin þurfa að tala í sam­ráði við ólíka hópa og ein­stak­linga. Ég veit að Sam­fylk­ingin er til­búin í þau verk. Mála­flokk­arnir þar sem þarf að taka á eru um allt; má nefna mál sem varða skipu­lag, félags­mál, atvinnu­mál, leik­skóla, grunn­skóla, íþróttir, loft­lag, jafn­rétti, hús­næði fyrir alla, svo fátt eitt sé talið.

[adspot]Það er mik­il­vægt að allir Hafn­firð­ingar geti verið stoltir af bænum sínum. Það kallar á ný vinnu­brögð, opið stjórn­kerfi, kraft­mikla upp­bygg­ingu og virka aðkomu bæj­ar­búa að end­ur­bótum.“

Á meðal þeirra sem skrifa ummæli við færsl­una er Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra. Hún skrifar: „Nú kann­ast ég við þig. Ekki af baki dott­inn.“

Sagði af sér ráðherraembætti 1994

Guð­mundur Andri starf­aði við blaða­mennsku áður en hann hóf þátt­töku í póli­tík. Á níunda ára­tugnum var hann kos­inn í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar og varð bæj­ar­stjóri. Hann sett­ist á þing árið 1993 og varð síðar sama ár heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra.

Ári síðar varð Guð­mundur Árni félags­mála­ráð­herra en gegndi emb­ætt­inu aðeins í nokkra mán­uði. Hann baðst lausnar úr starf­inu í kjöl­far skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um emb­ætt­is­verk hans. Skýrslan fjall­aði ítar­lega um aðdrag­anda starfs­loka Björns Önund­ar­sonar trygg­inga­yf­ir­læknis í nóv­em­ber 1993, en hann fékk greiddar þrjár millj­ónir króna vegna upp­gjörs á áunnu náms­leyfi gegn því að hann segði upp störf­um. Á blaða­manna­fundi sagði Guð­mundur Árni að umfjöllun fjöl­miðla og ann­arra um sig og sín störf, sem hefði sjaldn­ast byggst á mála­vöxtum heldur fyrst og síð­ast á end­ur­tekn­ing­um, hefði aug­ljós­lega skaðað sig og haft skað­væn­leg áhrif á störf sín í félags­mála­ráðu­neyt­inu. Í frétt í Morg­un­blað­inu af blaða­manna­fund­inum segir að Guð­mundur Árni hafi sagt að ákvörð­unin hafi verið tekin til að láta minni hags­muni víkja fyrir meiri.

Sendiherra í 16 ár

Hann sat samt sem áður áfram á þingi til 2005 þegar hann var skip­aður sendi­herra Íslands í Svíþjóð. Síðan þá, í alls 16 ár, hefur Guð­mundur Árni starfað sem slíkur. m.a. í Stokk­hólmi, Washington, Nýju Delí og nú síð­ast í Winnipeg í Kanada.

Í stöðu­upp­færslu sinni á Facebook segir Guð­mundur Árni að hann hafi notið þess­ara starfa. „Í des­em­ber síð­ast­liðnum óskaði ég eftir heim­flutn­ingi vegna fjöl­skyldu­að­stæðna og einnig verð ég í leyfi næstu mán­uði frá störfum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.“

Margir jafn­að­ar­menn í Hafn­ar­firði hafi sett sig í sam­band við hann á síð­ustu vikum og óskað eftir því að hann legði lið við að styrkja stöðu jafn­að­ar­manna í bænum, þar sem Sam­fylk­ingin hefur verið í minni­hluta, en sveit­ar­fé­lagið var áður fyrr oft­ast undir stjórn jafn­að­ar­manna. „Ég hef ákveðið að verða við þessu kalli og er þess full­viss, að með góðri liðs­heild, skýrri stefnu og mark­vissum vinnu­brögðum geti Sam­fylk­ingin orðið stærsti flokkur bæj­ar­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár