Óróinn í samfélaginu kom Þórólfi á óvart

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir seg­ist hafa fundið fyrir þrýst­ingi frá ákveðnum fyr­ir­tækjum varð­andi sótt­varna­að­gerðir í far­aldri COVID-19. „Ég hélt að það væri nóg að segja: „Nú lokum við þarna, við verðum að gera það.“ Að allir myndu fara eftir því.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Nei, ég myndi ekki segja að til átaka hafi komið,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í ítar­legu við­tali við Kjarnann spurður hvort að ein­hver átök hafi verið um til­lögur hans um sótt­varna­að­gerðir hingað til. Hann sagð­ist hafa átt „alveg ein­stak­lega gott sam­band“ við heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra og reyndar einnig aðra ráð­herra. „Ég verð að hrósa Svandísi [Svav­ars­dóttur] sér­stak­lega fyrir ein­stak­lega gott sam­starf.“

Hann sagði að hins vegar hefði verið ákveð­inn þrýst­ingur fyrir hendi en hann hafi litið á það sem eðli­leg skoð­ana­skipti.

[adspot]

„Það er ekk­ert óeðli­legt við það að menn séu að verja sína hags­muni. Það eru aðrir aðilar í sam­fé­lag­inu en stjórn­völd sem hafa beitt miklu meiri þrýst­ingi. Þá er ég að tala um ákveðna starf­semi og fyr­ir­tæki. Það er eitt­hvað sem við sáum ekki fyrir í við­bragðs­á­ætl­ana­gerð­inni. Þessi órói í sam­fé­lag­inu. Ég hélt að það væri nóg að segja: „Nú lokum við þarna, við verðum að gera það.“ Að allir myndu fara eftir því. En það er ekki þannig. Það vilja allir fá sína eigin for­skrift. Allir hópar vilja sínar leið­bein­ingar.“

[links]Þórólfur sagði í við­tal­inu að hann teldi almenn­ing enga grein gera sér fyrir þeirri vinnu sem farið hefur í slík mál, til dæmis hjá starfs­fólki almanna­varna og hjá sótt­varna­lækni og land­lækni. „Það hefur þurft að leggja dag við nótt allt árið við að útbúa leið­bein­ingar fyrir alls konar fyr­ir­tæki og starf­semi ein­stak­linga og svara fyr­ir­spurnum. Þetta hefur þurft að gera í hvert skipti sem er hert og í hvert skipti sem slakað hefur verið á.“

Þið hljótið nú að hafa rang­hvolft ein­hvern tím­ann aug­unum yfir fyr­ir­spurnum og óskum um und­an­þágur ...

„Sumar þeirra hafa kannski hljó­mað nokkuð und­ar­lega í okkar eyrum en auð­vitað er fólk að spyrja í ein­lægni,“ svar­aði sótt­varna­læknir. „Það vill vanda sig, er óör­uggt og þá sendir það póst. Frá upp­hafi opn­uðum við á þessi sam­skipti og reyndum að svara öllum. Þessar fyr­ir­spurnir voru upp undir þús­und suma dag­ana.

En við töldum nauð­syn­legt að fara þessa leið, að fólk gæti spurt okkur spurn­inga. Til að skapa ró og sam­vinnu í sam­fé­lag­inu frekar en að láta marga verða pirraða.“

Þórólfur sagði að eitt af því sem hefði verið fróð­legt að fylgj­ast með í far­aldr­inum væri mann­legt eðli og hegðun. „Bæði hvað fólk er fljótt til sam­vinnu og eins hvað margir eru fljótir til and­stöðu. Þetta hefur komið mér svo­lítið á óvart.“

Viðtalið við Þórólf í heild er hægt að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár