Hvað verður um Boris Johnson?

Boris Johnson var for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í 1.139 daga. Röð hneyksl­is­mála leiddi til afsagnar hans en fram­tíð hans í stjórn­málum er óljós. Í loka­ræðu sinni líkti hann sér við eld­flaug sem væri nú til­búin til „mjúk­legrar brot­lend­ingar“.

Boris Johnson hélt sína síðustu ræðu sem forsætisráðherra í morgun.
Boris Johnson hélt sína síð­ustu ræðu sem for­sæt­is­ráð­herra í morgun. Mynd: EPA

„Þá er komið að þessu,“ sagði Boris Johnson í upp­hafi loka­ræðu sinnar sem for­sæt­is­ráð­herra við Downingstræti 10 í morgun, áður en hann hélt til skosku háland­anna þar sem Elísabet II Eng­lands­drottn­ing tók við afsagn­ar­bréfi Johnson. 1.139 daga stjórn­ar­tíð hans á for­sæt­is­ráð­herra­stóli er því form­lega lokið.

Í ræðu sinni hvatti hann bresku þjóð­ina til að styðja Liz Truss, nýjan leið­toga Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra. Hennar bíða stór verk­efni en hún hefur heitið því að kynna áætlun síðar í vik­unni um hvernig bregð­ast eigi við hækk­andi orðu­verði og búist er við að hún muni grípa til þess ráðs að frysta orku­reikn­inga í allt að 18 mán­uði.

Í ræð­unni líkti Johnson sjálfum sér við eld­flaug sem hefur „upp­fyllt hlut­verk sitt“ og væri nú „mjúk­lega að hefja sig til brot­lend­ingar á afskekktum stað á Kyrra­haf­inu“. Johnson upp­skar hlátur fyrir þessi orð sín.

Spurn­ingin er einmitt hvað verður um Johnson?

Hann er ekki lengur for­sæt­is­ráð­herra, svo nokkuð er víst, en hann er enn þing­maður fyrir Uxbridge og South Ruislip. Ekki liggur hins vegar fyrir hversu lengi hann hyggst halda þing­mennsk­unni áfram. Yfir­stand­andi kjör­tíma­bil mun standa yfir út árið 2024 en næstu kosn­ing­arnar verða í síð­asta lagi í jan­úar 2025. Truss getur óskað eftir því við drottn­ingu að boða fyrr til kosn­inga, en ber ekki skylda til þess.

Allur gangur á því hvort forsætisráðherrar sitji áfram á þingi

Framtíð Johnson á þing­inu gæti einnig ráð­ist af eft­ir­málum Par­tygate-hneyksl­is­ins svo­kall­aða þar sem rann­sókn­ar­nefnd á vegum breska þings­ins mun nú rann­saka hvort John­son hafi vís­vit­andi afvega­leitt þing­menn í umræðum um sam­kvæmi sem haflin voru á tímum strangra sótt­varna­reglna. Þegar nefndin hefur kom­ist að nið­ur­stöðu mun hún leggja fram til­lögur sem þing­menn greiða atkvæði um, sem gætu meðal ann­ars falist í ein­hvers konar refsi­að­gerðum gegn for­sæt­is­ráð­herra.

Theresa May, for­veri hans sem for­sæt­is­ráð­herra, hélt þing­mennsku áfram eftir að hún lét af emb­ætti 2019 og situr enn á þingi. Þegar David Cameron, leið­togi Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, lét af störfum 2016 sagði af sér þing­mennsku nokkrum mán­uðum eftir að hann lét af emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Hneykslin minnistæðust

Hvað arf­leifð Johnson sem for­sæt­is­ráð­herra varðar verður hans lík­lega frekar minnst fyrir ýmis vand­ræði sem honum tókst sjálfum að koma sér í og svo þurft að biðj­ast afsök­unar á frekar en að hafa farið fyrir stærsta sigri Íhalds­flokks­ins í 30 ár í kosn­ing­unum í des­em­ber 2019, þegar flokk­ur­inn tryggði sér 364 af 650 sætum á breska þing­inu, og að hafa klárað að leiða Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Gælu­nafnið „Teflon“ fest­ist fljótt við Johnson þar sem hann byrj­aði snemma eftir að hann tók við emb­ætti að sverja af sér hvert hneyksl­is­málið á eftir öðru. Nær­tæk­ast er að nefna hneyksl­is­mál í kringum umfangs­miklar og kostn­að­ar­samar end­ur­bætur á íbúð­ar­innar sem hann býr í við Down­ing­stræti 11 í fyrra eftir að Dom­inic Cumm­ings, fyrr­ver­andi ráð­gjafi John­son, greindi frá því að end­ur­bæt­urnar hefðu verið fjár­magn­aðar með leyni­legum fjár­fram­lögum sem hefðu ekki verið til­kynnt sem stór fjár­fram­lög til stjórn­mála­manna.

[links]Par­tyga­te-hneykslið, þar sem John­son og starfs­menn hans í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu urðu ítrekað upp­vísir að því að brjóta reglur um sam­komu­tak­mark­anir sem rík­is­stjórnin hafði gert bresku þjóð­inni að fylgja til að halda drykkju­sam­kvæmi, fór langt með að ýta John­son út af svið­inu. John­son var meðal ann­ars sektaður fyrir að vera við­staddur eina veisl­una, eigin afmæl­is­veislu, og varð með því fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands frá upp­hafi til að verða sektaður fyrir lög­brot.

Í kjöl­far þess var boðað til atkvæða­greiðslu um van­­traust­s­til­lögu á hendur John­son eftir að Gra­ham Brady, for­­maður 1922-­­­nefndar Íhalds­­­flokks­ins, sem sér um helstu for­yst­u­­­mál Íhalds­­­­­flokks­ins, greindi John­son frá því að nefnd­inni hefði borist bréf frá yfir 15 pró­­sent þing­­manna flokks­ins sem lýstu yfir van­­trausti á John­son. 54 bréf þurfa að ber­­ast til að ná 15 pró­­sent lág­­mark­inu.

[adspot]John­son stóð þá van­traust­s­til­lögu af sér 6. júní síð­ast­lið­inn, en ein­ungis með naum­ind­um. Alls 148 þing­menn breska Íhalds­flokk­inn studdu til­lög­una en 211 greiddu atkvæði á móti henni. Það þýddi að ein­ungis um 60 pró­sent þing­manna studdu ráð­herr­ann, þar með talið þeir sem áttu allt vald sitt innan rík­is­stjórnar undir hon­um.

Johnson hugð­ist halda ótrauður áfram en kornið sem fyllti hneyksl­is­mæl­inn var skipun Chris Pincher í emb­ætti vara­for­manns þing­flokks Íhalds­flokks­ins. John­son á að hafa vitað af því að Pincher hafi áreitt menn kyn­ferð­is­lega þegar hann tók þá ákvörðun að skipa hann í emb­ætt­ið.

Johnson greindi frá afsögn sinni í byrjun júlí en sat áfram sem for­sæt­is­ráð­herra þar til kjöri um nýjan leið­toga flokks­ins lauk í síð­ustu viku. Úrslitin voru kynnt í gær og voru nokkuð óvænt, að minnsta kosti ef litið er til upp­haf kosn­inga­bar­áttu leið­toga­kjörs­ins þegar átta gáfu kost á sér til að leiða flokk­inn. Fáir bjugg­ust við því að Liz Truss myndi standa uppi sem sig­ur­veg­ari. Á end­anum hafði hún betur gegn Rishi Sunak fjár­mála­ráð­herra.

Vantraust á Truss til að koma Johnson aftur að?

Raunar hefur það borist í tal að hópur þing­manna Íhalds­flokks­ins ætli að beita sér fyrir því að leggja fram van­traust á Truss í þeim til­gangi að koma Johnson aftur að, helst fyrir jól.

Eins og fyrr segir þarf for­manni 1922-nefnd­ar­innar að ber­ast bréf frá 54 þing­mönnum flokks­ins svo greidd séu atkvæði um van­traust á leið­toga flokks­ins en for­maður nefnd­ar­innar hefur haft þann hátt­inn að greina ekki frá fjölda bréfa fyrr en til­skyldum fjölda er náð.

„Dramatískt“ að segja skilið við starfið og heimilið samtímis

Það eru ýmsar aðrar breyt­ingar sem Johnson þarf að takast á við á næst­unni, svo sem að finna sér nýtt heim­ili.

„Það er frekar dramat­ískt,“ sagði Gordon Brown þegar hann lét af emb­ætti sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands 2010, um það að hætta sem for­sæt­is­ráð­herra og missa heim­ilið sitt sam­tímis.

Johnson hefur nú flutt út úr íbúð sinni við Downingstræti þar sem hann hefur búið síð­ast­liðin þrjú ár og tekið á móti ýmsum þjóð­ar­leið­togum, meðal ann­ars Justin Trudeau að ógleymdum Donald Trump. Johnson og eig­in­kona hans, Carrie Johnson, verða þó ekki í vand­ræðum með að finna sér nýtt heim­ili, Johnson á nokkrar eignir en London's Evening Standard full­yrðir að hjónin hafi fest kaup á húsi í Herne Hill í suð­aust­ur­hluta Lundúna þar sem þau munu koma sér fyrir ásamt börnum sínum tveimur, Wilf sem er tveggja ára og Romy, átta mán­aða.

Breskir fjöl­miðlar velta því fyrir sér hvað Johnson ætli að taka sér fyrir hendur næstu daga þar sem við blasir frí­tími sem hann hefur ekki búið við síð­ustu ár. Forverar hans í starfi tóku hvíld­inni ýmist fagn­andi eða ein­beittu sér að áhuga­málum sínum.

„Þú ert mjög þreyttur þannig þú sefur um stund,“ sagði Gordon Brown í hlað­varps­við­tali þar sem hann gerir upp for­sæt­is­ráð­herra­fer­il­inn. John Major fór aðra leið þar sem hann sagði að nú væri tími fyrir hádeg­is­mat og krikket.

Johnson er áhuga­maður um tennis og hefur blaða­maður BBC vakið athygli á því að Johnson gefst nú kostur á að skella sér til Banda­ríkj­anna til að fylgj­ast með opna banda­ríska mót­inu í tennis sem nú stendur yfir. Johnson er sem stendur í Lundúnum, en þangað flaug hann eftir fund sinn með drottn­ingu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár