Boris Johnson segir af sér í dag – Skipan klíparans í háttsett embætti það sem felldi hann

Yfir 50 ein­stak­lingar hafa sagt af sér emb­ætti í Bret­landi á síð­ustu dögum vegna þess að þeir treysta ekki lengur Boris Johnson til að leiða landið, þar með talið margir ráð­herrar.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, mun segja af sér sem leið­togi Íhalds­flokks­ins síðar í dag. Flestir stærstu fjöl­miðlar Bret­lands full­yrða að hann sé búinn að kom­ast að þess­ari nið­ur­stöðu og að Johnson muni form­lega til­kynna um afsögn sína með yfir­lýs­ingu síðar í dag.

Johnson ætlar sér hins vegar að sitja áfram sem for­sæt­is­ráð­herra fram á haust, en næsti lands­fundur Íhalds­flokks­ins fer fram í októ­ber og þar verður nýr leið­togi kos­inn.

Miklar bolla­legg­ingar eru þegar byrj­aðar um hver verði eft­ir­maður Johnson í stóli for­sæt­is­ráð­herra. Sú atburða­rás sem leiddi til yfir­vof­andi afsagnar Johnson hófst með því að heil­brigð­is­ráð­herr­ann Sajid Javid og fjár­mála­ráð­herr­ann Rishi Sunak sögðu af sér. Javid gagn­rýndi svo Johnson í ræðu sem hann hélt í þing­inu en áður hafði Sunak sagt að hann og Johnson væru í grund­vall­ar­at­riðum ósam­mála um stefnu í efna­hags­málum.

Nadhim Zahawi var skip­aður sem eft­ir­maður Sunak en hann sner­ist gegn Johnson í morgun, tveimur dögum eftir að hafa verið skip­aður og sagði að for­sæt­is­ráð­herr­ann yrði að víkja. Allir þessir þrír eru taldir lík­legir til að sækj­ast eftir því að verða næstu for­menn Íhalds­flokks­ins. Önnur nöfn sem nefnd hafa verið eru Suella Braverman, sem hefur þegar lýst yfir áhuga, Penny Mordaunt, Tom Tugend­hat og Jeremy Hunt.

Hneykslismál, eftir hneykslismál eftir hneykslismál

Afsögn Borisar Johnson á sér langan aðdrag­anda. Hann hefur verið ótrú­lega dug­legur við að skapa sér sjálfur ýmis­konar vand­ræði sem hann hefur svo þurft að biðj­ast afsök­unar á. Nær­tæk­ast er að nefna hneyksl­is­mál í kringum umfangs­miklar og kostn­að­ar­samar end­ur­bætur á íbúð­ar­innar sem hann býr í við Downingstræti 11 í fyrra eftir að Dominic Cummings, fyrr­ver­andi ráð­gjafi Johnson, greindi frá því að end­ur­bæt­urnar hefðu verið fjár­magn­aðar með leyni­legum fjár­fram­lögum sem hefðu ekki verið til­kynnt sem stór fjár­fram­lög til stjórn­mála­manna.

Hið svo­kall­aða Par­tygate-hneyksli, þar sem Johnson og starfs­menn hans í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu urðu ítrekað upp­vísir að því að brjóta reglur um sam­komu­tak­mark­anir sem rík­is­stjórnin hafði gert bresku þjóð­inni að fylgja til að halda drykkju­sam­kvæmi, fór langt með að ýta Johnson út af svið­inu. Johnson var meðal ann­ars sektaður fyrir að vera við­staddur eina veisl­una, eigin afmæl­is­veislu, og varð með því fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands frá upp­hafi til að verða sektaður fyrir lög­brot.

Í kjöl­far þess var boðað til atkvæða­greiðslu um van­traust­s­til­lögu á hendur Johnson eftir að Graham Brady, for­maður 1922-­­nefndar Íhalds­flokks­ins, sem sér um helstu for­yst­u­­mál Íhalds­­­flokks­ins, greindi Johnson frá því að nefnd­inni hefði borist bréf frá yfir 15 pró­sent þing­manna flokks­ins sem lýstu yfir van­trausti á Johnson. 54 bréf þurfa að ber­ast til að ná 15 pró­sent lág­mark­inu.

Johnson stóð þá van­traust­s­til­lögu af sér 6. júní síð­ast­lið­inn, en ein­ungis með naum­indum. Alls 148 þing­menn breska Íhalds­flokk­inn studdu til­lög­una en 211 greiddu atkvæði á móti henni. Það þýddi að ein­ungis um 60 pró­sent þing­manna studdu ráð­herr­ann, þar með talið þeir sem áttu allt vald sitt innan rík­is­stjórnar undir honum.

Johnson var þó víg­reifur eftir þetta og sagð­ist ætla að „leiða flokk­inn aftur til sig­urs“.

Klíparinn fyllti mælinn

Það tók þó ekki langan tíma þangað til að enn eitt hneyksl­is­málið féll til. Það nýjasta snýr að skipun Chris Pincher í emb­ætti vara­for­manns þing­flokks Íhalds­flokks­ins. Johnson á að hafa vitað af því að Pincher hafi áreitt menn kyn­ferð­is­lega þegar hann tók þá ákvörðun að skipa hann í emb­ættið. Breskir fjöl­miðlar, sem þekktir eru fyrir mikla orða­leiki, hafa ekki látið það tæki­færi fram­hjá sér fara í umfjöllun um málið að tengja það saman að Pincher, sem þýðir á íslensku klíp­ari, hafi verið orðið upp­vís af því að vera „pincher“.

Eftir að þetta varð opin­bert hófst hrina afsagna á meðal ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar og aðstoð­ar­manna innan hennar.

Í fjör­ugum fyr­ir­spurn­ar­tíma í neðri deild breska þings­ins sem hófst á hádegi á mið­viku­dag sagði Johnson að hann væri stað­ráð­inn í að sitja áfram sem for­sæt­is­ráð­herra, það væri skylda sem lögð hefði verið á herðar hans í kjöl­far síð­ustu kosn­inga árið 2019.

Biðstaða er uppi í breskum stjórnmálum eftir að Boris Johnson ákvað að segja af sér formennsku en sitja áfram sem forsætisráðherra fram á haust.
Biðstaða er uppi í breskum stjórn­málum eftir að Boris Johnson ákvað að segja af sér for­mennsku en sitja áfram sem for­sæt­is­ráð­herra fram á haust.

Í fyr­ir­spurna­tím­anum mætti Johnson gagn­rýni frá þing­mönnum úr röðum ólíkra flokka þar á meðal þing­mönnum síns eigin flokks, Íhalds­flokks­ins.

Segja má að stemn­ingin í neðri deild­inni hafi sveifl­ast nokkuð í fyr­ir­spurna­tím­anum. Töluvert var um frammíköll, hlátur og baul í þing­sal á meðan for­sæt­is­ráð­herra og þing­menn skipt­ust á orðum. And­rúms­loftið var aftur á móti alvöru­þrungið þegar Keir Starmer las upp lýs­ingu manns á meintri kyn­ferð­is­legri áreitni sem hann varð fyrir af hálfu Chris Pincher.

Johnson skip­aði Pincher vara­for­mann þing­flokks Íhalds­flokks­ins í febr­úar á þessu ári. Fyrr í þess­ari vik­unni kom það í ljós að for­sæt­is­ráð­herr­ann vissi af hátt­semi Pincher þegar hann skip­aði hann í emb­ætti, líkt og áður segir.

Pincher sagði af sér sem vara­for­maður 30. júní síð­ast­lið­inn eftir að hafa þuklað á tveimur mönnum á sam­komu vina­fé­lags íhalds­manna og Kýpur. Eftir að í ljós kom að Johnson hafi vitað af sam­bæri­legum eldri málum þar sem Pincher átti í hlut hófu stjórn­mála­menn Íhalds­flokks­ins að segja sig af sér í stórum stíl.

Yfir 50 sagt af sér

Í morgun var svo ljóst að tími Johnson sem leið­togi íhalds­manna væri á enda runn­inn. Atburða­rásin hófst með því að Brandon Lewis, ráð­herra mál­efna Norður-Írlands sagði af sér. Alls sjö aðrir ráð­herrar fylgdu í kjöl­farið og stærsta höggið var áður­nefnd ákvörðun hins nýja fjár­mála­ráð­herra Zahawi, sem hefur ein­ungis gengt emb­ætt­inu í tvo daga, að snú­ast gegn Johnson og segja honum að hann verði að fara. Alls hafa yfir 50 ein­stak­lingar sagt af sér emb­ættum á síð­ustu dögum vegna þess að þeir hafa misst trú á Johnson sem leið­toga. Einn ráð­herra var rek­inn, Michael Gove, en hann og Johnson hafa lengi eldað grátt silfur saman.

Enn sem komið er virð­ist Johnson ætla að reyna að sitja áfram sem for­sæt­is­ráð­herra fram á haust. Það eru þó margir innan breskra stjórn­mála sem telja það ómögu­legt. Hann er fyrir það fyrsta ekki með starf­hæfa rík­is­stjórn eftir allar upp­sagn­irnar og röð þeirra sem eru til­búnir til að setj­ast í tíma­bundna rík­is­stjórn for­sæt­is­ráð­herra á útleið, sem er auk þess rúinn öllu trausti, er ekki löng. Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands og leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins er á meðal þeirra sem á þetta hafa bent.

Aðrir helstu póli­tísku and­stæð­ingar Johnson og Íhalds­flokks­ins munu heldur ekki taka það í mál að hann sitji áfram. Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, sagði í yfir­lýs­ingu í morgun að það þyrfti ekki að skipta um Íhalds­mann á toppnum, heldur að skipta um rík­is­stjórn. „Við Þurfum nýtt upp­haf fyrir Bretland“. Með því er hann að kalla eftir nýjum kosn­ingum en síð­ast var kosið 2019 í Bret­landi.

Ef Johnson verður gert að hætta sem for­sæt­is­ráð­herra má búast við því að dóms­mála­ráð­herr­ann Dominic Raab, sem er líka aðstoð­ar­for­sæt­isáð­herra, taki við taumunum tíma­bundið.

Það er ef ekki verður boðað til nýrra kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

partygate

Mest lesið undanfarið ár