Íslenskt samfélag er ekki gjörspillt í alþjóðlegum samanburði

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Gunnars Smára Egils­sonar um að íslenskt sam­fé­lag sé gjör­spillt.

Gunnar Smári Egilsson í forystusætinu á RÚV á mánudag.
Gunnar Smári Egilsson í for­ystu­sæt­inu á RÚV á mánu­dag. Mynd: Skjáskot/RÚV

Gunnar Smári Egilsson for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins sagði í For­ystu­sæt­inu á RÚV á mánu­dags­kvöld að Íslend­ingar lifðu í spilltu sam­fé­lagi og viðr­aði meðal ann­ars hug­mynd um að „búa til nýtt lýð­veldi“ ef ljóst þætti að vilji þjóð­ar­innar væri ekki að kom­ast í gegn við stjórn lands­ins – og tal­aði þar sér­stak­lega um dóms­kerfið.

„Ef við erum með þannig sam­fé­lag að Hæsti­réttur er þannig upp­byggður eftir langvar­andi spill­ingu að þjóð­ar­vilj­inn nær þar ekki í gegn þá höfum við það ráð að ein­fald­lega búa til nýtt lýð­veldi, eins og Frakkar hafa gert, eins og margar þjóðir hafa gert,“ sagði Gunnar Smári og bætti síðan að Íslend­ingar þyrftu að fara að átta sig á því að þeir lifðu í „gjör­spilltu sam­fé­lagi.“

En er íslenskt sam­fé­lag „gjör­spillt“ eins og full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins full­yrti? Um það er hægt að deila, enda er afar vanda­samt að mæla spill­ingu og flestar mæl­ingar á því fyr­ir­bæri byggja á hug­lægu mati sér­fræð­inga, almenn­ings, stjórn­enda í atvinnu­lífi eða ann­arra aðila. Þegar litið er til sam­an­burðar á alþjóða­vísu er þó nokkuð óum­deilt að Ísland kemur vel út, en á nýjasta spill­ing­ar­mæli­kvarða Transparency International eru ein­ungis 16 ríki sem talin eru minna spillt en Ísland, af alls 180 ríkjum sem kvarð­inn tekur til.

Ísland hefur þó fallið niður þennan lista á und­an­förnum árum. Eins og Kjarninn rakti í frétta­skýr­ingu í febr­úar er það þó ein­ungis ein mæl­ing sem hefur dregið Ísland niður á sam­settum kvarða Transparency International á und­an­förnum árum.[links]

Það er mat tveggja íslenskra fræði­manna, sem skila nið­ur­stöðum til þýsku hug­veit­unnar Ber­tels­mann Stiftung, á því að hversu miklu leyti þeir sem sitja í opin­berum emb­ættum séu hindr­aðir í að mis­nota stöðu sína í þágu eig­in­hags­muna.

Ef þessi eina mæl­ing næði ekki til Íslands inni í sam­settum kvarða Transparency International hefði Ísland hafnað ofar á lista, eða í 9. sæti yfir minnst spilltu lönd heims árið 2020.

Stór hluti almennings upplifir að tengsl skipti máli til að ná langt

Full­yrð­ingum sínum um spill­ingu á Íslandi til stuðn­ings vís­aði Gunnar Smári stutt­lega til nýrrar alþjóð­legrar við­horfa­könn­unar sem kynnt var í síð­ustu viku, sem leiddi í ljós að varð­andi til­tekin atriði sem flokka má til mæl­inga á spill­ingu, voru svör Íslend­inga lík­ari svörum Rússa en ann­arra íbúa á Norð­ur­lönd­unum.

[adspot]

Til dæmis sögðu 83,6 pró­sent íslenskra þátt­tak­enda í könn­un­inni að það skipti máli að þekkja rétta fólkið til þess að kom­ast lengra en aðrir í þjóð­fé­lag­inu. Til við­bótar sögðu 50,2 pró­sent að póli­tísk sam­bönd skiptu máli hvað það varðar. Þetta gefur til kynna að íslenskur almenn­ingur telji að stórum hluta að tengsl skipti miklu máli í íslensku sam­fé­lagi.

Jón Gunnar Bernburg og Sigrún Ólafs­dóttir pró­fess­orar í félags­fræði við Háskóla Íslands fram­kvæmdu þessa alþjóð­legu við­horfskönnun og í sam­tali við Frétta­blaðið á dög­unum sagði Jón Gunnar að hann túlk­aði nið­ur­stöð­urnar sem svo að sýn almenn­ings end­ur­spegl­aði það sem er í umræð­unni.

„Það er ómögu­legt að segja hvað er end­ur­speglun á umræðu eða að hve miklu leyti þetta við­horf end­ur­speglar per­sónu­lega reynslu. En það hefur lengi verið í umræðu á Íslandi að póli­tísk sam­bönd séu einn lyk­ill vel­gengni hér á landi,“ sagði Jón Gunnar við blaðið og sömu­leiðis að póli­tískur klíku­skapur væri eitt form spill­ingar.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Mælingar á spill­ingu byggja nær allar á hug­lægu mati og í reynd er ómögu­legt að halda því fram að ein­hver sem upp­lifir mikla spill­ingu í íslensku sam­fé­lagi, eins og Gunnar Smári seg­ist gera, hafi rangt fyrir sér.

Við­ur­kenndasta sam­setta mæl­ingin á alþjóða­vísu, spill­ing­ar­mæli­kvarði Transparency International, setur Ísland þó í 17. sæti af 180 hvað mælda spill­ingu varðar þrátt fyrir að við stöndum hinum Norð­ur­lönd­unum nokkuð að baki. Vís­bend­ingar eru þó vissu­lega til staðar eins og áður var getið um að almenn­ingur á Íslandi upp­lifi tölu­verða spill­ingu í sam­fé­lag­inu.

Það er því mat Stað­reynda­vakt­ar­innar að Gunnar Smári setji fram hálf­sann­leik er hann full­yrðir að sam­fé­lagið á Íslandi sé gjör­spillt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár