Veikleikar í umgjörð, löggjöf og eftirliti með skráðum trú- og lífsskoðunarfélögum

Dóms­mála­ráð­herra segir til­efni til að huga að end­ur­skoðun laga um skráð trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög, þar á meðal end­ur­skoðun ákvæða um skýrslu­gjöf félag­anna til eft­ir­lits­að­ila og upp­lýs­ingar um fjár­hag þeirra og ráð­stöfun fjár­muna.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Veik­leikar eru í umgjörð, lög­gjöf og eft­ir­liti með skráðum trú­fé­lögum og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum á Íslandi sam­kvæmt nýlegu áhættu­mati sem rík­is­lög­reglu­stjóri hefur unnið um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og byggt er á úttekt aðgerða­hóps á stöðu varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hér á landi.

Þetta kemur fram í svari Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Andrési Inga Jónssyni, þing­manni Vinstri grænna, um fjár­mál trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

Ísland hefur verið í sam­starfi við alþjóð­legan aðgerða­hóp gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka frá árinu 1991. Með aðild sinni að FATF skuld­batt Ísland sig til að sam­ræma lög­gjöf sína til­mælum aðgerða­hóps­ins.

Tilefni til að endurskoða lög um skráð trú- og lífsskoðunarfélög

Í svar­inu segir enn fremur að veik­leik­arnir lúti einkum að ófull­nægj­andi ákvæðum um hæfi fyr­ir­svars­manna félag­anna, bók­haldi þeirra og fjár­reiðum. Í áhættu­mat­inu segir að með til­liti til þessa þyrfti að end­ur­skoða lög um skráð trú­fé­lög og lífs­skoð­un­ar­fé­lög og huga að heim­ildum eft­ir­lits­að­ila til þess að sinna eft­ir­liti og knýja á um úrbætur gef­ist til­efni til.

„Með hlið­sjón af þeim ábend­ingum verður að líta svo á að til­efni sé til að huga að end­ur­skoðun laga um skráð trú­fé­lög og lífs­skoð­un­ar­fé­lög, þar á meðal end­ur­skoðun ákvæða um skýrslu­gjöf félag­anna til eft­ir­lits­að­ila og upp­lýs­ingar um fjár­hag þeirra og ráð­stöfun fjár­muna. Hvort skylda beri skráð trú­fé­lög og lífs­skoð­un­ar­fé­lög til að skila árs­reikn­ingum í sam­ræmi við lög nr. 3/2006, um árs­reikn­inga, hefur ekki komið til álita, en yrði tekið til athug­unar verði lögin end­ur­skoðuð,“ segir í svari dóms­mála­ráð­herra.

Félögin afar ólík hvað varðar fjölda félaga, starfsemi og umfang

Andrés spurði einnig hvernig eft­ir­liti með fjár­málum trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga væri háttað sam­kvæmt lögum. Í til­efni af fyr­ir­spurn­inni afl­aði ráðu­neytið sér upp­lýs­inga frá sýslu­manns­emb­ætt­inu á Norð­ur­landi eystra sem ann­ast hefur skrán­ingu trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga frá 1. febr­úar 2014 en það fer að öðru leyti með verk­efni sem sýslu­manni eru falin í lögum um skráð trú­fé­lög og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Samkvæmt lög­unum ber trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lagi sem óskar skrán­ingar að senda sýslu­manni lög félags­ins og allar aðrar reglur sem kunna að gilda um ráð­stöfun fjár­muna félags­ins. Í lög­unum er fjallað um eft­ir­lit með skráðum trú­fé­lögum og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum. Samkvæmt þeim skulu félögin fyrir lok mars­mán­aðar ár hvert senda sýslu­manni skýrslu um starf­semi sína á næst­liðnu ári og jafn­framt gera grein fyrir öllum breyt­ingum sem orðið hafa á þeim atriðum sem ber að veita upp­lýs­ingar um þegar sótt er um skrán­ingu. Sér­stak­lega er tekið fram að gera skuli grein fyrir því hvernig ráð­stöfun fjár­muna hefur verið háttað.

Í svar­inu segir að í fram­kvæmd hafi þetta eft­ir­lit farið fram með þeim hætti að á vef sýslu­manna sé að finna eyðu­blað þar sem fylla ber út ein­faldar upp­lýs­ingar um fjár­reiður síð­asta árs. Ekki sé skylt að skila upp­lýs­ing­unum á þessu eyðu­blaði en skylt sé að veita upp­lýs­ing­arnar.

„Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­manni eru félög þau sem um ræðir afar ólík hvað varðar fjölda félaga, starf­semi og umfang. Stærri félögin hafi sum hver skilað inn árs­reikn­ingum árit­uðum af end­ur­skoð­anda á meðan þau minni skili inn lág­marks­upp­lýs­ingum. Gögnin eru yfir­farin og ef veru­legar breyt­ingar verða á milli ára eða ef ein­hverjir liðir þarfn­ast nán­ari skýr­ingar er félög­unum send fyr­ir­spurn. Næsta fátítt er að sögn sýslu­manns að reikn­ingar skýri sig ekki að mestu sjálfir,“ segir í svar­inu.

Dró úr skýrsluskilum 2016 til 2018

Jafn­framt spurði þing­maður VG hversu tíð sein skil og van­skil hefðu verið af hálfu trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga á skýrslum um starf­semi á ára­bil­inu 2013 til 2018.

Kolbrún greinir frá því að þegar sýslu­mað­ur­inn á Norð­ur­landi eystra hafi tekið við skrán­ingu og eft­ir­liti með skráðum trú­fé­lögum og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum, þann 1. febr­úar árið 2014, hafi öllum skráðum félögum verið sent eyðu­blað til útfyll­ingar á árunum 2014 og 2015 og þau minnt á skyldu þeirra til að skila fyrr­greindum upp­lýs­ingum, auk þess sem gengið hafi verið nokkuð eftir því að upp­lýs­ing­arnar bær­ust.

„Leiddi það til þess að skil á skýrslum voru nær 100 pró­sent. Á árunum 2016 til 2018 var félög­unum ekki sent bréf til að minna á skil á skýrslum og dró þá tölu­vert úr skýrslu­skilum. Ef félag sendir ekki skýrslu og óskar ekki eftir rök­studdum fresti til að skila er gengið eftir því að það sé gert. Alla jafna er skýrslum skilað eftir að áminn­ing berst. Í mörgum til­vikum verða þó veru­legar tafir á því að skýrslum sé skilað þar sem árs­upp­gjör eru oft á tíðum ekki til­búin fyrr en síðla árs, en senda skal sýslu­manni skýrslu fyrir lok mars­mán­aðar ár hvert,“ segir í svari ráð­herra.

Kemur til álita að gera ríkari kröfur um skil á skýrslum og herða viðurlög

Þegar Kolbrún var spurð hvort rétt væri að herða við­ur­lög við því að trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög skili ekki eða van­ræki að skila skýrslu um starf­semi á til­settum tíma þá svar­aði hún að sam­kvæmt lögum um skráð trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög skuli sýslu­maður veita skráðu félagi, sem ekki upp­fyllir lengur skil­yrði fyrir skrán­ingu félags eða van­rækir skyldur sínar sam­kvæmt lögum, skrif­lega við­vörum og setja því frest til að bæta úr því sem áfátt sé. Ef ekki væri bætt úr því innan til­tek­ins frests gæti sýslu­maður ákveðið að fella skrán­ingu félags úr gildi, en áður en það væri gert skuli gefa stjórn félags kost á að tjá sig um málið. Önnur úrræði hefði sýslu­maður ekki.

„Þar sem skrán­ing trú­fé­lags eða lífs­skoð­un­ar­fé­lags hefur í för með sér til­tekin lög­bundin rétt­indi og skyldur fyrir slík félög, þar á meðal rétt til hlut­deildar í álögðum tekju­skatti í formi sókn­ar­gjalda, telur ráð­herra koma til álita að gera rík­ari kröfur um skil á skýrslum og herða við­ur­lög sé þeirri skyldu ekki sinnt,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár