Aukin afköst í fjarvinnu og meiri frítími

Að þurfa ekki að keyra til vinnu og að getað tekið æfingu í stof­unni eru meðal þeirra kosta sem Margrét Pála Valdi­mars­dóttir, ráð­gjafi hjá Íslands­banka, sér við fjar­vinnu. Starfs­fólks bank­ans mun héðan í frá að jafn­aði vinna heima einn dag í viku.

Margrét Pála Valdimarsdóttir kann því vel að vinna heima.
Margrét Pála Valdi­mars­dóttir kann því vel að vinna heima. Mynd: Aðsend

Eftir að hafa unnið heima í níu vikur og líkað það mjög vel sýndi Margrét Pála Valdi­mars­dóttir, ráð­gjafi hjá Íslands­banka, því mik­inn áhuga að fá að halda því áfram, að minnsta kosti annað slagið. Það gerði reyndar meiri­hluti allra starfs­manna bank­ans sem hefur nú ákveðið að allir vinni að jafn­aði heima einn dag í viku.

Margrét Pála starfar í ráð­gjafa­veri Íslands­banka í höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í Norð­ur­turn­inum í Kópavogi. Þegar sam­komu­bann var sett á um miðjan mars flutti hún sig heim, eins og margir aðrir. Hún fékk tölvu­skjá með sér og kom sér svo fyrir við eld­hús­borðið og hóf að svara fyr­ir­spurnum við­skipta­vina og erindum sem ber­ast með tölvu­pósti. „Mér fannst mjög þægi­legt að vinna heima,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann. „Ég held að mér hafi tek­ist að afkasta meiru.“

Heima við tókst Margréti Pálu að ein­beita sér betur að verk­efnum dags­ins, þar var meiri ró en á vinnu­staðnum. Hún seg­ist þó hafa saknað ákveð­inna hluta af vinnu­staðnum – fyrst og fremst mötu­neyt­is­ins. „Og sam­starfs­fé­lag­anna auð­vitað líka.“

Um leið og fjölda­tak­mörk­unum var aflétt og starfs­menn Íslands­banka gátu farið að mæta aftur á vinnu­stað­inn sýndi Margrét Pála því mik­inn áhuga að fá að vinna heima hluta vik­unnar. „Ég von­aði að það yrði mögu­legt og að upp á þann sveigj­an­leika að vinna stundum að heiman yrði boðið,“ segir hún. Sú ósk hennar hefur orðið að veru­leika því Íslands­banki hefur ákveðið að starfs­fólk vinni að jafn­aði einn dag í viku heima. Um til­rauna­verk­efni er að ræða og gangi það vel verður fyr­ir­komu­lagið inn­leitt hjá öllum sviðum bank­ans.

Nýlega var gerð könnun meðal starfs­fólks Íslands­banka eftir að meiri­hluti þess hafði unnið heima vegna COVID-19. Nið­ur­stöð­urnar sýna fram á mik­inn áhuga starfs­fólks að halda áfram að vinna heima hluta úr viku, félags­leg tengsl hafa hald­ist ágæt og afkasta­geta auk­ist í mörgum til­vikum. Fyr­ir­komu­lagið mun einnig draga úr kolefn­is­spori bank­ans en ferðir starfs­fólks til og frá vinnu vega hvað þyngst í kolefn­is­mæl­ingum und­an­far­inna ára. Þá eru þessar aðgerðir einnig taldar hafa jákvæð rekstr­ar­á­hrif, segir í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Fyrir tæpum tveimur vikum mætti Margrét Pála aftur til starfa í Norð­ur­turni. Helst vill hún geta unnið heima einn til tvo daga í viku. „Það væri mjög þægi­legt.“

En hvaða fleiri kosti en ró og frið sér Margrét við fjar­vinnu?

[links]„Mér fannst mjög þægi­legt að geta tekið æfingu í hádeg­inu heima. Þegar ég er á vinnu­staðnum þarf ég að fara út úr húsi á æfingu og það allt tekur miklu lengri tíma. Það er mun fljót­legra að skreppa inn í stofu og taka æfingu.“ Vissu­lega sparist svo einnig tími við að taka sig til og keyra í vinn­una. Allt verði þetta til þess að frí­tími utan vinnu leng­ist.

Margrét býr í Garðabæ og það tekur hana ekki langan tíma að keyra í vinn­una. Hún vill þó gjarnan sleppa við það annað slagið og telur að fjar­vinnu­fyr­ir­komu­lagið gæti létt almennt á umferð­inni, verði það útbreitt.

Í sam­komu­banni urðu mörg fyr­ir­tæki að tak­marka þann fjölda starfs­manna sem vann á vinnu­staðnum og þús­undir sett­ust við tölv­urnar heima við. En þessi „þving­aða fjar­vinna“ sem þurfti að taka upp hefur hins vegar sýnt að slíkt fyr­ir­komu­lag er ger­legt án þess að fram­leiðni minnki. „Ég held að það hafi komið mörgum yfir­mönnum og stjórn­endum á óvart hvað þetta gekk ótrú­lega vel,“ segir Margrét. Ráð­gjafar hafi setið við sím­ann heima eða svarað tölvu­póstum og allt hafi tek­ist vel, þrátt fyrir að mikið álag hafi verið vegna ástands­ins. „Allir sýndu mikla sam­stöðu. Og allt þetta flýtti fyrir þess­ari þróun, að gera fjar­vinnu mögu­lega hjá mörgum fyr­ir­tækjum á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár