Lilja segir sátt við heimafólk vera forsendu fyrir hálendisþjóðgarði

Í viku­lok­unum í morgun sagði Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði sett fram nokkur skil­yrði vegna hálend­is­þjóð­garðs. Helst þurfi að skerpa á málum þeirra sem eru í næsta umhverfi þjóð­garðs.

Til þess að sátt ríki um mið­há­lend­is­þjóð­garð þarf að ná meiri sátt við heima­fólk og aðra í nærum­hverfi þjóð­garðs að mati Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Lilja var einn gesta Viku­lokanna á Rás 1 fyrr í dag þar sem meðal ann­ars var rætt um fyr­ir­hug­aðan þjóð­garð. Í þætt­inum sagði Lilja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði sett fram ákveðin skil­yrði vegna þjóð­garðs­ins sem hefðu verið kynnt fyrir umhverf­is­ráð­herra, Guðmundi Guð­brands­syni.

Hún sagði málið vera mjög vel unnið og að umhverf­is­ráð­herra hefði lagt mikið á sig til þess að reyna að ná sátt um málið. Helstu aðfinnslur Fram­sókn­ar­flokks­ins snúi hins vegar að því að sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur þeirra sem eru í nán­asta umhverfi þjóð­garðs­ins, svo sem sveit­ar­fé­laga, sé ekki nægi­lega tryggður. „Við teljum að það þurfi að skerpa betur á þessu og það þurfi að ná þess­ari sátt og ég held að það séu vís­bend­ingar uppi um að svo sé,“ sagði Lilja.

[links]

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um er ekki ein­ing um málið innan stjórn­ar­flokk­anna. Nú í vik­unni sendi Jón Gunn­ars­son, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, frá sér grein þar sem hann sagði að þjóð­garður yrði ekki að veru­leika í vetur. Í grein sinni spurði Jón meðal ann­ars að því hvaða hags­munum yrði fórnað ef þjóð­garður yrði að veru­leika: „Ekk­ert mat var lagt á aðra hags­muni sem þó liggur í augum uppi að eru mjög mikl­ir. Hverju erum við að fórna með því að loka á alla aðra mögu­lega nýt­ingu á hálend­in­u?“

Ræða þurfi málið til botns ef þjóðin er ósátt

Aðrir gestir viku­lokanna voru þau Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar. Loga finnst leitt hvernig íbúum ólíkra svæða hefur verið still upp í mál­inu: „Ég held að við 350 þús­und manna þjóð þurfum nú ekki á enn einu mál­inu að halda þar sem að er verið að reyna að stilla þessu upp eins og heima­menn séu eitt og aðrir Íslend­ingar annað, þetta er hags­muna­mál allra Íslend­inga.“

Hann sagði það einnig dap­ur­legt að þraut­reyndur þing­maður og Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, hefði kom­ist jafn klaufa­lega að orði í pontu þings­ins og raun var þegar hann tal­aði um „grenj­andi minni­hluta“. Logi kall­aði í kjöl­farið eftir því að umræðan um málið sé hóf­stillt og upp­lýsandi.

Að mati Loga er margt gott að finna í frum­varp­inu og það vel unnið. „Þó er það þannig að ef að það er stór hluti þjóð­ar­innar sem er ósáttur þá leiðir það bara af sjálfu sér að þá þarf að ræða málið til botns,“ sagði hann.

Of mikil miðstýring að mati Hönnu Katrínar

Hanna Katrín sagði að enn væri ágrein­ingur um ýmiss mál er varða þjóð­garð­inn. „Þetta mál er bara ekk­ert full­búið og við hin sitjum bara og horfum á og ég er, bara svo ég segi eins og er, ég er varla til­búin í að fara í þriðja umgang í að setja mig og við í Viðreisn inn í þetta mál, því við vitum að þetta er ekki svona sem að stjórn­ar­flokk­arnir ætla að leggja þetta fram, það verða ein­hverjar breyt­ingar,“ sagði hún í þætt­inum.

Henni þókn­ast heldur ekki sumar af þeim lausnum sem lagðar hafa verið til til að koma til móts við ólík sjón­ar­mið. „Síðan er verið að mæta gagn­rýn­is­röddum með því að ein­hvern veg­inn að girða fyrir hér og þar og til þess til dæmis að mæta kröfum um aukna aðkomu sveit­ar­fé­laga þá er búið að búa til mjög flókið kerfi alls­konar stjórna og hópa sem gerir það að verkum að mið­stýr­ingin verður svo mikil,“ sagði Hanna Katrín. Að hennar sé heil­mikil vinna eftir, vinna sem þurfi að ráð­ast í til að lægja öldur ósættis um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár