Reitun hafði áhyggjur af umræðu um Þórð Má

Grein­ing­ar­fyr­ir­tæki sem vinnur svo­kallað UFS áhættu­mat fyrir Festi hafði áhyggjur af umræðu í kringum fyrrum stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tæk­is­ins í síð­ustu viku en dró þær áhyggjur til baka eftir yfir­lýs­ingu stjórnar Festi í fyrra­dag.

Þórður Már Jóhannesson fyrrum stjórnarformaður Festi.
Þórður Már Jóhann­es­son fyrrum stjórn­ar­for­maður Festi.

Grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Reitun sá sér ekki annað fært er að bregð­ast við þeirri umræðu sem var í tengslum við fyrr­ver­andi for­mann stjórnar Festi, Þórð Má Jóhann­es­son, og lét fyr­ir­tækið við­skipta­vini sína vita um það í trún­aði. Það dró hins vegar áhyggjur sínar til baka eftir að stjórn Festi sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hún greindi frá því að hún hygð­ist end­ur­skoða starfs­reglur sínar.

Þetta kemur fram í svari Reitunar við fyr­ir­spurn Kjarnans en mið­ill­inn fékk ábend­ingu um það að fyr­ir­tækið hefði gert athuga­semd við félagið Festi, þ.e. að mögu­leg end­ur­skoðun á ein­kunn til lækk­unar væri í skoðun í kjöl­far ásak­ana í garð fyrrum stjórn­ar­for­manns félags­ins.

Reitun vinnur svokölluð UFS möt, sem gera grein fyrir hvernig fyr­ir­tæki standa frammi fyrir áhættum sem snúa að umhverfis- og félags­þáttum og stjórn­ar­háttum, á skráðum útgef­endum hluta­bréfa og skulda­bréfa í Kaup­höll­inni fyrir fjár­festa. Hluti af samn­ingi er jafn­framt að vakta ein­kunn og láta vita ef ein­hverjir þættir gætu haft telj­andi áhrif á hana. Þessi vinna er unnin í trún­aði milli Reitunar og við­skipta­vinar, að því er fram kemur í svari fyr­ir­tæk­is­ins.

Þá segir enn fremur í svar­inu að Reitun sendi út nokkuð reglu­lega upp­færslur á UFS mötum sínum eða láti vita ef eitt­hvað sé að ger­ast hjá við­kom­andi útgef­anda sem geti breytt ein­kunn. Hingað til hafi þessir þættir fyrst og fremst snúið að stjórn­ar­þáttum og félags­þáttum. Orð­spors­á­hætta og ímynd­ar­á­hætta ásamt áhættu tengt við­skipta­tengslum vegi þar oft­ast þyngst.

„Reitun sá sér ekki annað fært en að bregð­ast við þeirri umræðu sem verið hefur í tengslum við fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann Festis og lét sína við­skipta­vini vita um það í trún­aði. Það var metið svo að ef umræðan þró­að­ist áfram án þess að félagið myndi bregð­ast við að þá gæti það haft áhrif á þá áhættu­þætti sem nefndir voru,“ segir í svar­inu.

Stjórn Festi athafðist ekki fyrr en konan fór í viðtal

Mikið fjaðrafok var í kringum Festi í síð­ustu viku þegar kona kom fram í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur og greindi frá meintu kyn­ferð­is­broti þriggja manna í sum­ar­bú­stað árið 2020. Einn þess­ara manna var for­maður stjórnar Festi, Þórður Már. Stjórnin vissi af ásök­un­unum í nokkurn tíma en aðhafð­ist ekki fyrr en málið komst í hámæli í síð­ustu viku.

Þórður Már óskaði eftir því á stjórn­ar­fundi á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku að láta af störfum. „Stjórn féllst á erind­ið. Í kjöl­farið skipti stjórn með sér verkum upp á nýtt. Guð­jón Reyn­is­­son var kjör­inn nýr for­­maður stjórnar og Mar­grét Guð­­munds­dóttir vara­­for­­mað­­ur,“ sagði í til­­kynn­ingu frá Festi á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku.

Drógu fyrri áhyggjur um aukna áhættu til baka

Festi sendi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar í gær en í henni var greint frá því að það væri mat stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins að þörf væri á því að end­ur­skoða starfs­reglur stjórn­ar.

[links]„Að feng­inni þess­ari reynslu er það mat stjórnar Festi að þörf sé á að end­ur­skoða starfs­reglur stjórn­ar. Mark­mið þeirrar end­ur­skoð­unar er að bæta reglur og gera vinnu­lag skýr­ara ef fram koma upp­lýs­ingar sem benda til mögu­legs van­hæfis stjórn­ar­manna og hefur stjórn ákveðið að hefja þá vinnu strax. Festi er með skýrar reglur fyrir alla stjórn­endur og starfs­menn félags­ins og dótt­ur­fé­laga sem verða lagðar til grund­vallar við end­ur­skoðun á starfs­reglum stjórn­ar. Það er mark­mið og vilji stjórnar Festi að vera ætíð til fyr­ir­myndar um góða stjórn­ar­hætti og mun nið­ur­staða end­ur­skoð­unar á starfs­reglum stjórnar verða kynntar á aðal­fundi 22. mars n.k.

Stjórn Festi for­dæmir allt ofbeldi og telur mik­il­vægt að hlustað sé á þolend­ur. Það er skylda okkar að breyt­ast með sam­fé­lag­inu og í sam­ein­ingu eigum við að búa til örugg­ara umhverfi fyrir okkur öll,“ sagði enn fremur í til­kynn­ing­u Festi í gær.

Í svari Reitunar til Kjarnans kemur fram að eftir að Festi gaf út til­kynn­ing­una í gær, þar sem skýrt hafi verið af hverju félagið hefði ekki brugð­ist fyrr við og hvernig það ætl­aði að breyta vinnu­lagi og heim­ildum í fram­hald­inu, þá hafi Reitun látið sína við­skipta­vini vita í trún­aði um það og dregið fyrri áhyggjur um aukna áhættu til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár