Langa landamæratilraunin

Landamæra­gæsla sem Danir tóku upp og átti að gilda í tíu daga stendur enn og eng­inn veit hvenær henni lýkur. Kostn­að­ur­inn við gæsl­una er mik­ill og deilt er um gagn­sem­ina.

Landamæragæsla á Danmerkurenda Eyrarsundsbrúarinnar.
Landamæra­gæsla á Dan­merkur­enda Eyr­ar­sunds­brú­ar­innar. Mynd: EPA

Í byrjun árs 2015 tóku Danir upp gæslu og vega­bréfa­skoðun á landa­mærum Þýska­lands og Dan­merkur. Sú ákvörðun var tekin í kjöl­far kröfu Svía um skil­ríkja­skoðun á landa­mærum Dan­merkur og Sví­þjóðar. Svíar beittu fyrir sig sér­stöku ákvæði Schengen sam­komu­lags­ins (svo­nefndri flytj­anda­á­byrgð) sem skyldar fyr­ir­tæki sem ann­ast far­þega­flutn­inga milli landa að skoða skil­ríki far­þega við brott­för úr einu landi til ann­ars. Svíar voru mjög ósáttir við að Danir hleyptu öllu flótta­fólki sem streymdi til Dan­merkur, frá Þýska­landi, áfram til Sví­þjóðar. Dönsk stjórn­völd sáu sér ekki annað fært en verða við kröfu Svía en tóku jafn­framt upp eft­ir­lit á landa­mær­unum við Þýska­land. Að öðrum kosti hefðu þeir „setið uppi“ með þús­undir, jafn­vel tug­þús­undir flótta­fólks sem óskað hefðu land­vistar. Slíkt hefði orðið Dönum ofviða, að mati stjórn­valda.

Tíu daga tilraun sem stendur enn

Þegar Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti um landamæra­gæsl­una 4. jan­úar í fyrra (frum­varpið var lagt fram í nóv­em­ber 2015) sagði hann að hér væri um að ræða tíu daga til­raun sem hægt yrði að fram­lengja um tutt­ugu daga til við­bótar. Síðan for­sæt­is­ráð­herr­ann til­kynnti þetta verða brátt liðnir fjögur hund­ruð dagar og landamæra­gæslan er enn við lýði. Aðgerðin var strax fram­lengd um áður­nefnda tutt­ugu daga en hefur síðan verið fram­lengd um þrjá mán­uði í hvert sinn, núver­andi fram­leng­ing gildir til 4. febr­úar næst­kom­andi.

Misjöfn viðbrögð

Landamæra­gæslan var frá upp­hafi umdeild, jafnt utan þings sem innan. Mesta athygli vakti að lög­reglu og toll­gæslu væri heim­ilað, og gert skylt, að leggja hald á verð­mæti svo sem skart­gripi ýmis­konar, gull og reiðufé. Fólk mætti hafa með sér verð­mæti, reiðufé með­talið, sem næmi þrjú þús­und krónum dönskum (ca. 50 þús­und krónur) við kom­una til Dan­merkur. Allt umfram það skyldi gert upp­tækt. Stjórnin dró síðar nokkuð í land og upp­hæðin (pen­ingar og skart) sem fólk mátti hafa með sér hækkuð í tíu þús­und krónur (rúm­lega 150 þús­und íslenskar). Fólki skyldi einnig heim­ilt að halda hlutum sem hefðu sér­stakt til­finn­inga­legt gildi (t.d. ferm­ing­ar­ú­rið og hring­ur­inn sem amma átti). Í Danmörku eru þessi lög kölluð „smykk­eloven“, skart­gripa­lögin.

Líkt við þýsku nasistana

Frétt­irnar um skart­gripa­lögin fóru sem eldur í sinu og voru til umfjöll­unar í fjöl­miðlum víða um heim. Talað var um mann­vonsku og útlend­inga­hatur. „Stendur til að rífa gull­fyll­ingar úr tönnum flótta­fólks sem leitar til Dan­merkur?“ var fyr­ir­sögn í enskum net­miðli sem skír­skot­aði þannig til fram­ferðis nas­ista í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Þótt danska stjórnin, með Inger Støjberg, ráð­herra inn­flytj­enda­mála, í far­ar­broddi reyndi að útskýra regl­urnar tókst það mis­jafn­lega og varð ekki til að lægja öld­urnar. Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna gagn­rýndi ákvarð­anir dönsku stjórn­ar­innar og fram­kvæmda­stjóri SÞ skrif­aði Lars Løkke for­sæt­is­ráð­herra bréf þar sem hann lýsti áhyggjum sínum. Allt kom fyrir ekki, skar­gripa­frum­varpið varð að lögum og þau eru enn í gildi. Þeim hefur hins vegar ein­ungis fjórum sinnum verið beitt á þessu rúma ári sem liðið er frá gild­is­tök­unni.

Erfitt verkefni

Eins og áður sagði var það upp­haf­lega krafa Svía um eft­ir­lit og vega­bréfa­skoðun á landa­mærum Dan­merkur og Sví­þjóðar sem varð til þess að eft­ir­lit­inu var komið á. Sam­göngu­leiðir milli þess­ara tveggja landa liggja fyrst og fremst um Eyr­ar­sunds­brúna, milli Malmö og Kaup­manna­hafnar (með lestum og bílum) og með ferjum á milli Hels­ingja­eyrar á Norður-Sjálandi og Hels­ingja­borgar á Skáni. Landa­mæri Dan­merkur og Þýska­lands eru flókn­ari, þau eru 70 kíló­metra löng og þar eru þrettán landamæra­stöðvar. Flestar þeirra hafa um langt ára­bil verið ómann­aðar enda arfur frá gam­alli tíð. Auk þess eru ótal vegir og stígar sem liggja milli land­anna tveggja sem eng­inn fylgist með. Járn­brautin sem tengir löndin tvö liggur um Padborg og þar er, ásamt í bænum Flens­borg, mið­stöð toll­af­greiðslu, en hund­ruð flutn­inga­bíla fara um landa­mærin á degi hverjum. Við þetta bæt­ast ferj­urnar sem sigla til Rödby og Gedser. Af fram­an­greindu má sjá að landamæra­eft­ir­litið yrði ekki auð­leyst verk­efni sem auk þess krefð­ist mik­ils mann­afla.

Tvö hundruð á vaktinni hverju sinni

Þótt frá byrjun hafi verið ákveðið að eft­ir­litið yrði ein­ungis á þeim stöðum sem bílar og almenn­ings­far­ar­tæki fara um var talið að um það bil tvö hund­ruð lög­reglu­menn þyrfti til að sinna eft­ir­lit­inu hverju sinni, miðað við þrí­skiptar vaktir þýddi það sam­tals sex hund­ruð manns. Þann fjölda var ekki hægt að „grípa upp af göt­unni“ og lög­reglu­þjónar víðs vegar úr Danmörku voru þess vegna sendir til starfa við landa­mærin. Sú ákvörðun sætti mik­illi gagn­rýni því á stórum svæðum í land­inu var nán­ast engin lög­gæsla mán­uðum saman. Lög­reglan hefur á und­an­förnum árum mátt þola mik­inn nið­ur­skurð og lög­reglu­liðið mun fámenn­ara en t.d fyrir ára­tug. Óvissan og stöðugar fréttir af nið­ur­skurði hefur leitt til þess að færri en áður sækj­ast eftir störfum í lög­regl­unni. Fyrir nokkru ákvað rík­is­stjórnin að stytta lög­reglu­námið úr þremur árum í tvö, það hafði engin áhrif á aðsókn­ina, hún jókst ekki. Skömmu fyrir síð­ustu ára­mót var svo kynnt nýtt nám, kallað kadett­nám. Sex mán­aða nám sem veitir rétt­indi til að sinna ýmsum verkum sem lög­reglan hefur ann­ars haft á sinni könnu, t.d. flutn­ing á föngum vegna rétt­ar­halda, vega­eft­ir­lit o.s.frv.

Kostn­að­ur­inn við landamæra­gæsl­una er mik­ill, Danir fóru fram á það við Þjóð­verja að þeir tækju á sig hluta hans en Þjóð­verjar sögðu þvert nei við þeirri beiðni. Á allra síð­ustu mán­uðum hefur dregið mjög úr flótta­manna­straumnum og mun færra fólk sinnir nú landamæra­gæsl­unni. Kostn­að­ur­inn er eigi að síður umtals­verður og vex mörgum í augum.

Þrjár milljónir skilríkja skoðaðar

Á því rúma ári sem liðið er síðan landamæra­eft­ir­litið hófst hafa danskir landamæra­verðir sam­tals rýnt í skil­ríki þriggja millj­óna fólks. Nokkur hluti þessa hóps er fólk sem ferð­ast milli land­anna vegna vinnu sinnar og það er ekki sátt við eft­ir­litið. Þótt taf­irnar vegna vega­bréfa­skoð­unar séu styttri en í upp­hafi tekur ferða­lagið til og frá vinnu tals­vert lengri tíma en áður var. Á þessu rúma ári hefur þrjú þús­und manns verið synjað um að koma til lands­ins, frá Þýska­landi og tvö hund­ruð og tutt­ugu ákærur vegna gruns um smygl á fólki.

Hverju hafa eftirlitið og skartgripalögin skilað?

Við þess­ari spurn­ingu er ekki til ein­falt svar. Tölur sýna að flótta­fólki og hæl­is­leit­endum hefur fækkað mjög að und­an­förnu. Fyrir því eru margar ástæður, danskir ráð­herrar segja að landamæra­eft­ir­litið eigi sinn þátt í því að færri reyni að kom­ast til Dan­merkur en aðstæður í Evrópu hafa líka breyst mikið og flótta­manna­straum­ur­inn ekki jafn stríður og fyrir ári síðan. Áhrif skart­gripa­lag­anna er mjög erfitt að meta. Eins og fram kom framar í þessum pistli hefur laga­á­kvæð­inu um upp­töku eigna ein­ungis verið beitt fjórum sinnum á þessu rúma ári. Ekkert liggur fyrir um að fólk hafi snúið við á landa­mær­unum þegar því varð ljóst að eigur þess yrðu hugs­an­lega gerðar upp­tækar. Líklegri skýr­ing á því hvers vegna laga­á­kvæð­inu hefur svo sjaldan verið beitt er sú að lög­regla og toll­verðir hafa átt í vand­ræðum með að fram­fylgja því. Þá er kannski auð­veld­ast að snúa blinda aug­anu að. Inger Stojberg, ráð­herra inn­flytj­enda­mála, lýsti því yfir í blaða­við­tali fyrir nokkrum dögum að skart­gripa­lögin hefðu náð til­gangi sínum. Mik­il­vægt væri að þeim sem sækj­ast eftir land­vist í Danmörku sé ljóst að þeir geti ekki komið með fulla vasa fjár til lands­ins og ætli síðan að fram­fleyta sér á kostnað sam­fé­lags­ins. „Þessar reglur eru þær sömu og gilda um Dani,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár