Erfitt fyrir flóttakonur að fóta sig á íslenskum vinnumarkaði

Í nýrri rann­sókn Starfs­greina­sam­bands­ins á högum erlendra kvenna á íslenskum vinnu­mark­aði kemur í ljóst að ýmis­legt megi gera betur til bæta stöðu þeirra. Þá sér­stak­lega þegar kemur að fyr­ir­komu­lagi flótta­manna­verk­efn­is­ins hér á landi.

Starfs­greina­sam­band Íslands birti í vik­unni nýja rann­sókn á högum erlendra kvenna á íslenskum vinnu­mark­aði. Í skýrsl­unni segir að þó að stéttarfélögin hafa þjónað þessum hópi ágæt­lega, að minnsta kosti þeim sem vissu af til­vist félag­anna og eru í föstu ráðning­ar­sam­band, þá megi margt betur fara og þá sér­stak­lega í málum flótta­kvenna. Sér­stak­lega nefna þær erlendu konur sem rætt var við í rann­sókn­inni að þörf sé á fleiri og betri íslensku­nám­skeiðum sem og tölvu­nám­skeiðum.

Rann­sóknin var fram­kvæmd í kjöl­far #metoo-sagna kvenna af erlendum upp­runa sem litu dags­ins ljós í fyrra. Í þeim sögum kom í ljós að konur í þessum hópi eru meðal þeirra valda­minnstu á vinnu­mark­aði og því í við­kvæmri stöðu gagn­vart mis­beit­ingu valds. Í skýrsl­unni segir að Starfs­greina­sam­band­inu þótti því nauð­syn­legt að skoða þennan hóp betur og athuga hvernig þær komi inn á vinnu­mark­að­inn og við hvaða skil­yrði þær starfi. Rætt var við kon­ur frá Taílandi, Fil­ipps­eyj­um, Sýr­landi og Póllandi í rýni­hópum.

Ísland orðið fjölmenningarsamfélag

[links]Í rann­sókn­inni segir að ljóst sé að Ísland er í dag orðið fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag. Vinnandi fólk af erlendum upp­runa í janúar árið 2018 var 17,2 pró­sent af öllu vinn­andi fólki á Íslandi sam­kvæmt Hag­stof­unni. Íslenskar rannsóknir hafa einnig sýnt að meiri­hluti inn­flytj­enda kemu þe til Íslands í þeim til­gangi að setj­ast að hér á landi.

Drífa Snæ­dal, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins, seg­ir að rann­sóknin sýni að ýmis­legt megi betur gera. Hún bendir á að meðal ann­ars verður að standa betur að íslensku­nám­skeiðum en meiri­hluti kvenn­anna í rann­sókn­inni sögðu að það vant­aði sár­lega túlk eða ein­hvern sem tal­aði þeirra tungu­máli til að kenna nám­skeiðin þar sem sumar þeirra töl­uðu litla sem enga ensku. Ásamt því lögðu kon­urnar áherslu á mik­il­vægi þess að geta leitað til trún­að­ar­manns í vinnu.

Drífa segir að einnig þurfi að leggja meiri áherslu á tölvu­nám­skeið en til dæmis nefndu sýr­lensku kon­urnar að takmörkuð tölvukunnátta þeirra aftr­aði þeim mikið en þær höfðu til dæmis ekki þekk­ing­una til þess að greiða reikn­ing­ana sína í heima­bank­anum eða finna hús­næði. Drífa bendir á að enn fremur sé ljóst að finna verður leiðir til að meta menntun þeirra sem koma erlendis frá til að vinna hér á landi, til dæmis að bjóða upp á raun­færni­mat í auknum mæli.

Fundu allar fyrir andlegri vanlíðan

Rætt var við kon­urnar í ólíkum rýni­hópum eftir því frá hvaða löndum þær komu. Í rann­sókn­inni var sér­stak­lega einn hópur sem átti erfitu með að fóta sig á íslenskum vinnu­mark­aði. Sá hópur sam­an­stóð af fjórum konum frá Sýrlandi en þær komu til Íslands á vegum flótta­manna­verk­efnis ásamt fjöl­skyldum sínum. Konurnar höfðu stöðu flótta­kvenna þegar þær fengu upp­lýsingar um að þær væru að fara til Íslands. Þær gátu ekki valið hvert þær færu heldur var þeim úthlutað Íslandi.

Allar kon­urnar í sýrlenska rýnihópnum töluðu um að finna fyrir and­legri vanlíðan sem gerði það að verkum að erf­ið­ara var fyrir þær að ná að fóta sig á íslenskum vinnu­mark­aði. Aðeins hluti kvenn­anna hafði fengið sál­fræði­að­stoð eftir kom­una til Íslands. Þá aðeins í eitt eða tvö skipti en jafn­framt tóku þær fram að fleiri tímar væru vænt­an­legir. [adspot]

Þurftu strax að borga skatta og húsaleigu

Sýr­lensku kon­urnar sögðu frá því hversu erfitt þeim fannst að átta sig á og takast á við það mis­ræmi sem þær sögðu að hefði verið á milli þeirra upp­lýs­inga sem þær fengu fyrir kom­una til Íslands og hins vegar þeirrar aðstoðar sem þær síðan fengu á Íslandi. Þær höfðu til dæmis fengið upplýsingar um að hluti launa þeirra rynni til ríkis­ins í formi skatts en í rann­sókn­inni segir að kon­unum hafi brugðið þegar þær átt­uði sig á því að næstum helm­ingur launa þeirra var dreg­inn af þeim.

Auk þess fengu kon­urnar þær upplýsingar að þær myndu fá aðstoð og stuðn­ing í eitt ár við að átta sig á sínu nýja umhverfi. Konurnar áttu til dæmis ekki að fara út á vinnu­mark­að­inn fyrsta árið eftir að þær komu til lands­ins en hluti þeirra hóf störf aðeins þremur mánuðum eftir kom­una til Íslands.

„Það var sagt við okkur í ... að þetta mun vera eitt ár sem við munum vera án vinnu og án að borga húsaleigu en það var svona sjokk sem sagt að við þurftum að fara strax að vinna eftir þrjá mánuði og líka borga húsleigu og allt þetta dót,“ segir ein kvenn­anna í hópnum.

Mismunandi þjónusta eftir sveitarfélögum

Enn fremur sögðu kon­urnar frá því í rann­sókn­inni hvernig það angr­aði þær að ekki væri sama þjónustan í boði fyrir allt flóttafólk á Íslandi heldur valt það á hverju sveit­arfélagi fyrir sig hvaða þjónusta var í boði. Til að mynda höfðu þær heyrt af flóttafólki sem var búsett á höfuð­borg­ar­svæð­inu og hafði haft aðgang að íslensk­unámskeiðum und­an­farin þrjú ár sem voru nið­ur­greidd af félags­þjónust­unni.

Konurnar sögðu frá því hvernig takmörkuð tölvukunnátta þeirra hafði aftrað þeim, sem dæmi höfðu þær ekki þekk­ingu til þess að greiða reikn­ing­ana sína í heima­bank­anum. Konurnar sátu sextán tíma tölvunámskeið eftir að þær komu til Íslands en þeim þótti það alls ekki nóg.

Í rann­sókn­inni segir að athuga þyrfti möguleika þess að sam­tvinna íslensk­unámskeið og tölvunámskeið eða a.m.k. gera inn­flytj­endum, sem hafa litla tölvukunnáttu, kleift að nálgast kennsl­una á auð­veldan hátt. Jafn­framt sé ljóst að ýmis­legt er ábótavant í fyr­ir­komu­lagi flótta­manna­verk­efni. Meðal ann­ars þurfi að tryggja að flóttafólk fái lágmarks­upplýsingar um þá þjónustu sem stendur þeim til boða og að það sé upplýst um réttindi og skyldur á íslenskum vinnu­mark­aði.[adspot]

Úr einum slæmum stað í aðrar slæmar aðstæður

Í heild­ina þá fannst sýrlensku kon­unum þær ekki hafa náð að verða virkir þátttak­endur í íslensku samfélagi út frá þeim stuðn­ingi sem þeim hafði verið veittur síðan þær komu til Íslands. Í rann­sókn­inni segir einnig að kon­urnar séu hræddar um hvað verði um þær og fjöl­skyldur þeirra þegar fyrsta árinu þeirra á Íslandi lýkur. Í rann­sókn­inni er þó tekið fram að eitt ár sé ekki nógu langur tími fyrir fjöl­skyldur sem koma frá stríðs­hrjáðum löndum til að fóta sig í nýju sam­fé­lagi.

Allar sýr­lensku kon­urnar sögðust mjög þakklátar Íslend­ingum fyrir að bjóða þær vel­komnar en eins og staðan væri í dag þá liði þeim eins og þær hefðu farið úr einum slæmum aðstæðum í aðrar slæmar aðstæður. Allar kon­urnar voru sammála því að Ísland væri öruggt land en þrjár kvenn­anna sáu fram á að vera heim­il­is­lausar um áramótin þar sem eig­andi húsnæð­is­ins sem þær bjuggu vildi ann­að­hvort selja húsið eða fá íbúð­ina aftur. Konurnar sögðu frá því hvernig þær leit­uðu til félags­þjónust­unnar um aðstoð en svörin sem þær hefðu fengu var að þær hefðu lært íslensku og gætu því fundið sér nýtt húsnæði sjálfar.

Stað­reyndin er aftur á móti sú að íslenskukunnátta þeirra er takmörkuð og þær hafa enga tölvukunnáttu sem gerir þeim mjög erfitt fyrir að leita sér að nýju húsnæði, sam­kvæmt rann­sókn­inni. Jafn­framt segir í skýrsl­unni að þær hafi átt mjög erfitt með að standa í skilum á dag­legum útgjöldum fjölskyld­unnar á þeim bótum eða launum sem þær hafa til ráðstöfunar á mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár