RÚV skráir kennitölur allra viðmælenda

Rík­is­út­varpið skráir kenni­tölur allra við­mæl­enda, í útvarpi og sjón­varpi. Per­sónu­vernd hefur ekki fengið málið til efn­is­legrar skoð­unar en Helga Sigríður Þór­halls­dóttir, stað­geng­ill for­stjóra Per­sónu­verndar, segir óljóst hvort RÚV hafi heim­ild til að safna kenni­tölum við­mæl­enda.

Margt sem þarf að skoða
Margt sem þarf að skoða Margrét Magn­ús­dóttir, skrif­stofu­stjóri RÚV, segir Rík­is­út­varp­inu heim­ilt að skrá kenni­tölur við­mæl­enda í þeim til­gangi að skoða í hve miklum mæli ólíkir þjóð­fé­lags­hópar end­ur­spegl­ast í dag­skrá RÚV. Helga Sig­ríð­ur Þór­halls­dótt­ir, stað­geng­ill for­stjóra Per­sónu­vernd­ar, seg­ir óljóst hvort RÚV hafi heim­ild til að safna kenni­töl­um við­mæl­enda.

Rík­is­út­varpið hefur um ára­bil skráð kynja­hlut­falli við­mæl­enda í sam­ræmi við stefnu RÚV í jafn­rétt­is­málum. Síð­ast­liðið haust voru gerðar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lag­inu og kenni­tölu bætt við skrán­ingu við­mæl­enda. „Ákveðið var að víkka út þessa taln­ingu í takt við nýja stefnu­á­herslu RÚV um að end­ur­spegla fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins í dag­skrá og allri starf­semi,“ segir í skrif­legu svari Mar­grétar Magn­ús­dóttur, skrif­stofu­stjóra RÚV, við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. 

Breyt­ing­arnar fel­ast í að við bætt­ist val­mögu­leik­inn kynsegin/annað við skrán­ingu við­mæl­enda, auk upp­lýs­inga um aldur og búsetu, sem hægt er að fá úr þjóð­skrá eftir skrán­ingu kenni­tölu. Í svari RÚV kemur fram að söfnun gagn­anna og vinnsla á þeim sé gerð í sam­ræmi við lög um Rík­is­út­varpið þar sem kemur fram að RÚV beri skylda til að sinna lýð­ræð­is­legu hlut­verki, meðal ann­ars með því að hafa hlut karla og kvenna sem jafn­astan í starf­semi Rík­is­út­varps­ins og í dag­skrá þess. Að mati RÚV er notk­unin heimil þar sem til­gangur …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Emil Helgason skrifaði
    Þetta er einmitt kosturinn við kennitöluna umfram önnur kerfi.
    0
  • KJ
    Kári Jónasson skrifaði
    Það er bráðnauðsynlegt að vita deili á fólki sem kemur fram í Útvarpi og Sjónvarpi bæði upp á seinni tíma og svo vegna varveislugildis efnis Ríkisútvarpsins. Þessvegna þarf kennitalan að fylgja með, og helst líka staða og heimilisfang.
    2
  • JÍ
    Jón Ívarsson skrifaði
    Þetta er þá gert með samþykki viðmælanda þar sem fréttamaður þarf að spurja um kennitöluna. Viðmælandi getur væntanlega neitað að gefa hana upp.
    1
  • Viðar Eggertsson skrifaði
    Reyndar er þetta mikilvægt vegna geymslu og varðveislu efnis bæði útvarps og sjónvarps, að það sé skýrt hverjir viðkomandi eru í hljóð- og myndupptökum. Þá dugar ekki eingöngu nöfn, heldur hjálpar til að skrá starfsheiti og t.d. fæðingardag og ár.
    Ég vann oft efni upp úr gömlum útvarpsþáttum hér forðum. Þá var gott ef skráningar á efni þátta var ítarleg, t.d. þegar ég var að vinna portrettþætti um listamenn. Þannig fann maður oft faldar perlur hér og þar í safni RÚVog gat endurútvarpað þeim í slíkum þáttum.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár