Ísbrjótar á æðstu stöðum

Á und­an­förnum vikum og mán­uðum hafa konur í stjórn­enda­stöðum kom­ist til nýrra met­orða á mik­il­væg­ustu stöðu mann­lífs­ins, og sýnt að allt er fólki fært sem hefur þekk­ingu og hæfi­leika fram að færa. Fjöl­miðlar víða um heim hafa sér­stak­lega fjallað um fram­gang þess­ara kvenna, og hafa sumar þeirra, eins og Janet Yellen, fyrsta konan til að verða seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, verið sagðar vera að brjóta ísinn fyrir kom­andi kyn­slóðir kvenna.

Kjarninn tók saman lista yfir fimm konur sem hafa að und­an­förnu verið að koma að eða verið hluti af merki­legum ákvörð­unum í efna­hags­málum heims­ins og stjórn­mála­líf­inu.

1. Janet Yellen. Samkvæmt frá­sögnum fjöl­miðla, meðal ann­ars Forbes, er Yellen með tal­naglögg­ari mann­eskjum sem unnið hafa við Seðla­banka Banda­ríkj­anna, og er sú stofnun þó vafa­lítið með marga tal­naglögga starfs­menn

[caption id="attachment_23505" align="align­right" width="199"] Janet Yellen. Mynd: EPA.[/caption]

Janet Yellen
Janet Yellen

innan sinna vébanda. Yellen þykir afburða snjöll, og afkasta­mikil, en umfram allt nákvæmur grein­andi. Þessi 68 ára gamla kona, sem er með dokt­ors­próf frá Yale, er nú farin að láta til sín taka með stefnu­mark­andi ákvörð­unum hjá Seðla­banka Banda­ríkj­anna. Hún skrif­aði undir grein­ingu, fyrir rúmum tveimur vikum, þar sem boð­aðar voru hugs­an­legar hækk­anir á vöxtum frá núlli, en þar hefur vaxta­stigið verið í næstum sjö ár. Yellen er í 6. sæti á lista Forbes, á lista yfir valda­mesta fólk heims.

[caption id="attachment_24057" align="alignleft" width="184"] Ruth Porat. Mynd: EPA.[/caption]

porat
porat

2. Ruth Porat. Hún var í gær ráðin fjár­mála­stjóri Google og hefur þar meðal ann­ars það verk­efni að ávaxta sjóði Google upp á 38 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 5.100 millj­örðum króna. Porat var áður fjár­mála­stjóri Morgan Stanley, og var einn áhrifa­mesta konan sem starfar á fjár­mála­mark­aði í heim­inum, en fjár­mála­geir­inn er þekktur fyrir að vera heimur karla, einkum og sér í lagi þegar kemur að stjórn­ar­for­mönnum og for­stjórum.

[caption id="attachment_23862" align="align­right" width="186"] Kathar­ine Viner. Mynd: EPA.[/caption]

Katharine Viner
Kathar­ine Viner

3. Kathar­ine Viner. Hún er nýr rit­stjóri The Guardian, breska blaðs­ins og vef­mið­ils­ins, en hann nýtur mik­illar virð­ingar um allan heim, fyrir vönduð frétta­skrif og fram­úr­skar­andi vef­fjöl­miðlun. Viner hefur mikla reynslu af blaða­mennsku og fjöl­miðla­starfi, en hún er fyrsta konan í sögu Guardian sem gegnir stöðu rit­stjóra. Ráðn­ingin kom ekki mikið á óvart, þar sem Viner þótti lík­legur kandídat í starfið eftir að ljóst varð, í des­em­ber í fyrra, að Alan Rusbridger myndi hætta sem rit­stjóri.

[caption id="attachment_9214" align="alignleft" width="185"] Elizabeth Holmes. Mynd: Wikipedia.[/caption]

elizabethholmes
elizabethholmes

4. Elizabeth Holmes. Frum­kvöð­ull­inn sem hætti í Stanford 19 ára gömul, til þess að stofna fyr­ir­tæki, hefur náð ótrú­legum árangri á skömmum tíma. Holmes, sem er 31 árs gömul í dag, á helm­ings­hlut í fyr­ir­tæk­inu Theranos, sem sér­hæfir sig í blóðprufum. Eignir Holmes eru metnar á 4,7 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur meira en 600 millj­örðum króna. Í síð­ustu viku lauk Holmes síðan við það, að kynna nýj­ustu vöru­lín­una, en búist er við því að hún auki verð­mæti Theranos enn meira.

[caption id="attachment_20915" align="align­right" width="196"] Hillary Clinton. Mynd: EPA.[/caption]

clinton
clinton

5. Hillary Clinton. Verður Hillary Clinton fyrsti kvenn­for­seti Band­ríkj­anna á næsta ári? Þó það skýrist ekki fyrr en í haust, hver verði útnefn­ing Demókrata, þá er talið lík­leg­ast að hún verði þeirra full­trúi sem for­seti Banda­ríkj­anna. Eins og er virð­ist þetta standa og falla með því, hvort hún muni form­lega sækj­ast eftir því að verða for­seti. Hinn 23. mars fund­aði Clinton með Barack Obama Banda­ríkja­for­seta með Clinton í Hvíta hús­inu. Ætli hún hafi mátað stól­inn? Aldrei að vita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár