Ruth Porat fjármálastjóri Google - á að eyða 5.100 milljörðum

Ruth Porat hefur verið ráð­inn fjár­mála­stjóri hug­bún­að­ar­ris­ans Google. Tilkynnt var um þetta í dag, en Porat, sem oft hefur verið nefnd ein valda­mesta kona heims­ins, hefur verið meðal lyk­il­stjórn­enda hjá banda­ríska fjár­fest­inga­bank­anum Morgan Stanley und­an­farin ár.

Porat mun meðal ann­ars fá það verk­efni hjá Google að marka stefn­una um það, hvernig félagið eigi að fjár­festa með sjóði félags­ins, upp á 38 millj­arða Banda­ríkja­dali, eða sem nemur rúm­lega 5.100 millj­örðum íslenskra króna. Þetta kemur fram á vef Quartz.

Wall St. just lost its brightest star to Silicon Valley. Ruth Porat jumps to @Google: http://t.co/c0l3NX01AK $GOOGL pic.twitter.com/gNcpfa7ZKj

— Matt Egan (@MattMEgan5) March 24, 2015

Porat þykir eit­ur­snjöll og tal­naglögg, og hefur meðal ann­ars leitt end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­fest­inga­banka­starf­semi Morgan Stanley frá því árið 2008, þegar fjár­mála­mark­aðir gengu í gegnum miklar hremm­ingar. Þessi skipti hjá Porat eru enn fremur sögð til merkis um það, að stærstu hug­bún­að­ar­risarnir í Sílikon dalnum í Kali­forníu séu farnir að ógna bönk­unum á Wall Street, þegar kemur að launa­þróun og bar­átt­unni um hæf­asta starfs­fólkið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár