Katharine Viner er nýr ritstjóri Guardian - fyrsta konan til að gegna stöðunni hjá blaðinu

Kathar­ine Viner hefur verið ráðin rit­stjóri The Guardian, en hún verður fyrsta konan til að gegna rit­stjóra­stöðu hjá einu af stóru dag­blöð­unum á Bret­landseyjum. Þá er hún fyrsta konan sem rit­stýrir Guardian, sem er er eitt af virt­ustu og útbreidd­ustu dag­blöðum Bret­lands. Frétta­vef­ur­inn Business Insider greinir frá ráðn­ing­unni.

Viner tekur við rit­stjóra­stólnum af Alan Rusbridger, sem til­kynnti í des­em­ber mán­uði síð­ast­liðnum, að hann hugð­ist láta af störfum. Hann hefur gegnt rit­stjóra­stöðu Guardian síðan árið 1995.

Viner hefur á und­an­förnum miss­erum starfað sem rit­stjóri útgáfu Guardian í Banda­ríkj­unum, en hún hóf störf hjá blað­inu árið 1997, þá 26 ára gömul. Hún gegndi til skamms tíma rit­stjóra­stöðu útgáfu Guardian í Ástralíu, en hún hleypti útgáf­unni af stokk­unum árið 2013.

Viner hlaut 53 pró­sent atkvæða starfs­manna á dög­unum, þegar starfs­fólk Guardian valdi þá sem það taldi best til þess fallið að taka við rit­stjóra­stöðu blaðs­ins. Kosn­ingin skil­aði nafni Viner á lista yfir mögu­lega arf­taka Rusbridger, og fór í starfsvið­tal hjá eig­anda Guardian, Scott sjóðnum.

Annar kandídat fyrir stöð­una var Ian Katz, rit­stjóri Newsnight sjón­varps­þátt­ar­ins á BBC, en hann var aðstoð­ar­rit­stjóri Guardian áður en hann gekk til liðs við breska rík­is­út­varpið og hafði starfað meira en tutt­ugu ár hjá blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár