Í sporum atkvæðaveiðara í New Hampshire

Bryndís Ísfold, útsend­ari Kjarnans í kosn­ig­unum í Banda­ríkj­unum, lýsir reynsl­unni af þátt­töku í kosn­inga­bar­áttu Hillary Clinton í New Hamps­hire. Bryndís ræddi við kjós­endur og fékk að kynn­ast mun­inum á fram­bjóð­end­unum.

Hillary Clinton safnar atkvæðum í New Hampshire fyrir forvalið þar sem lýkur í nótt.
Hillary Clinton safnar atkvæðum í New Hamps­hire fyrir for­valið þar sem lýkur í nótt.

Þegar vekjara­klukkan hringdi klukkan 5:30 á laug­ar­dags­morg­un­inn stóð ég frammi fyrir því að þurfa að ákveða hvort ég ætl­aði raun­veru­lega að leggja á mig tíu tíma rútu­ferð og standa vakt­ina fyrir Hillary Clinton í New Hamps­hire í einn dag. Ég sat á rúm­stokk­inum og starði á klukk­una og var farin að telja mér trú um að Bernie Sanders væri bara bæri­legur kostur ef ég fengi að sofa lengur. Auk þess „þurfti“ ég ekk­ert að sjá kosn­inga­bar­áttu í sveiflu­ríki (e. swing state) með eigin augum. Hafði ég ekki fengið nóg af þessum próf­kjörum þegar ég þræddi gang­ana á stóru blokk­inni í Fellunum um árið? Þegar ég náði loks fullri með­vit­und og búin að sötr­aði morg­un­kaffið úr Hot for Hillary-boll­anum fór ég að gera mig til­búna fyrir nýfall­inn snjó­inn og kuld­ann í New Hamps­hire. Rann þá upp fyrir mér að ég hlyti að vera kol­geggjuð.

New Hamps­hire er lítið ríkið norð­ar­lega á norð-aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna þar sem búa ríf­lega milljón manns. Samkvæmt lögum verður ríkið að vera fyrst í for­vali flokk­anna en þar sem Iowa er tækni­lega ekki með for­val heldur opinn kjör­fund (e. caucus) eru kosn­ing­arnar í nótt þær fyrstu í ár. Kosið hefur verið í for­vali flokk­anna í New Hamps­hire í 100 ár og í ár verða 319 kjör­staðir um allt ríkið opnir. Til að bæta á flækju­stigið eru þrír litlir bæir sem hafa heim­ild til að opna kjör­staði á mið­nætti aðfara­nótt kjör­dags og loka um leið og allir hafa kosið. Þessir bæir hafa nær alltaf kosið þann fram­bjóð­anda sem hefur að lokum staðið uppi sem sig­ur­veg­ari og því varla hægt að þver­fóta fyrir atkvæða­veið­urum dag­ana fyrir kjör­dag.

Staðan fyrir forvalið

Þó kann­anir mæli Donald Trump með 34 pró­sent fylgi og mót­fram­bjóð­end­urna Ted Cruz og Marco Rubio með 13 pró­sent fylgi hvor, voru skila­boð Trump til stuðn­ings­manna kvöldið fyrir kjör­dag að allir yrðu að mæta á kjör­stað. „Þó svo konan þín segi við þig á morgun að hún sé orðin ást­fangin af öðrum manni, þó þú sért svo veikur að þú sért við dauð­ans dyr, þá verður þú að mæta og kjósa,“ sagði Trump við kjós­endur sína.

Trump ótt­ast að nið­ur­staðan verði önnur en sú sem kann­anir sýna eins og í Iowa í síð­ustu viku. Þar lenti Trump í öðru sæti þó kann­anir gerðu ráð fyrir að hann mundi vinna. Trump trónir enn á toppnum í könn­unum á lands­vísu, en for­skot hans minnk­aði milli vikna eftir tapið í Iowa. Ljóst er að nið­ur­stöður fyrstu for­kosn­ing­anna geta haft áhrif á skoð­anir allra lands­manna.

Hjá demókrötum er ekki minni stemmn­ing þó Bernie Sanders sé með tölu­vert for­skot í könn­unum. Ný könnun frá American Research Group sýnir 9 pró­sentu­stiga mun á milli Sanders og Hillary Clinton. Sanders er með 53 pró­senta fylgi meðal lík­legra kjós­enda og Clinton 44 pró­sent hjá sama hópi. Clinton nýtur frekar stuðn­ings meðal kvenna en Sanders nýtur stuðn­ings 63 pró­sent kjós­enda sem eru yngri en 49 ára. Hópur óákveð­inna skráðra kjós­enda er enn tölu­verður. Stuðn­ingur við Sanders eykst enn frekar meðal yngstu kjós­enda en þrátt fyrir að allt bendi til þess að Sanders vinni New Hamps­hire er Clinton enn með tölu­vert for­skot í flestum könn­unum á lands­vísu. 

Útspekúleruð kosningafræði

Þegar rútan okkar kom loks á áfanga­stað í smá­bænum Rochester í New Hamps­hire var aug­ljóst að sam­keppnin um atkvæði íbúa var farin að harðna, ef marka mátti risa­vöxnu Trump-skiltin sem tóku á móti okkur þegar við keyrðum yfir bæj­ar­mörkin. Það er stutt á milli kosn­inga­skrif­stofa Clinton og Sanders; ein­ungis um það bil fimmtán skref. Það sama má segja um afstöðu kjós­enda demókrata til fram­bjóð­end­anna tveggja; hún er ekki afger­andi og lítið skilur þá af.

Á kosn­inga­skrif­stof­unni hjá Hillary Clinton var komin mót­töku­nefnd sem var skipuð af bæj­ar­stjór­anum í smá­bænum og öld­ung­ar­þing­manni úr nær­liggj­andi ríki auk ann­arra. Mót­töku­nefndin hafði splæst í pizzur og kaffi fyrir sjálf­boða­lið­ana sem stigu úr rút­unni frá New York.

Á kosningaskrifstofu Hillary Clinton í Rochester í New Hampshire.
Á kosn­inga­skrif­stofu Hillary Clinton í Rochester í New Hamps­hire.

Farið var með okkur yfir hvernig best væri að tala við kjós­endur og var áhuga­vert að heyra sömu kosn­ing­at­rixin lifa góðu lífi hér í Banda­ríkj­unum eins og heima á Íslandi. Það er engin leið að ná í fólk í síma lengur í New Hamps­hire. Áreitið frá kosn­inga­veið­urum er komið á það stig að fólk er hætt að svara í sím­ann og þess vegna átti að senda okkur út af örk­inni. 

Þrátt fyrir að kosn­inga­stjórn­endur í búðum Clinton hafi ekki sagt það berum orðum var aug­ljóst að mark­miðið með hand­rit­unum sem sjálf­boða­liðar eiga að fylgja er ekki bara að fá fólk til að jánka því að kjósa Hillary Clinton heldur segja það sjálft: Ég styð Hillary Clinton. Svo er mik­il­vægt að minna fólk á hvaða kjör­staður til­heyri þeirra götu, ræða opn­un­ar­tíma þeirra og spyrja svo hvenær dags það haldi að það muni kjósa. Þetta er gert til að fólk fari yfir dag­inn sinn og það eykur líkur á því að það skili sér á kjör­stað. Sé fólk í vafa um hvorn það ætlar að kjósa á að spurja hvort það sé eitt­hvað mál eða mál­efni sem sé um að kenna. Því næst þarf að gera til­raun til að sann­færa óákveðna með því að tala út frá eigin sann­fær­ingu. Ef ekki tekst að sann­færa við­kom­andi er spurt: „Má ég þá skrá að þú sért óákveðin en að þú hall­ist að mínum fram­bjóð­anda?“. Trixið snýst um að þegar fólk hefur sagt upp­hátt að það ætli að styðji ein­hvern, jafn­vel þó það sé bara lík­lega, þá þykir óþægi­legt að svíkja það. Þrátt fyrir að það jánki ein­hverju við ein­hvern blá­ó­kunn­ugan sem aldrei mun vita hvernig við­kom­andi kaus að lokum. Svona er nú kosn­inga­fræðin útspek­úleruð og óskamm­feilin.

Kjósendur í New Hampshire

Þegar búið var að fara yfir reglur og ráð, var fólk parað saman og ákveðnum götum útdeilt þar sem pörin áttu að banka á þau hús þar sem skráðir demókratar búa. Ég lenti með áströlskum sjálf­boða­liða og bæj­ar­stjór­inn sjálfur keyrði okkur í ein­býl­is­húsa­hverfi þar sem við klof­uðum snjó­skafla, börðum á 50 hús og fengum tæki­færi til að tala um ágæti Hillary Clinton. Það að segj­ast hafa komið frá sitt­hvorum enda jarð­kringl­unnar til New Hamps­hire þótti sann­fær­andi.

Það var snjóþungt í New Hampshire á laugardag þegar undirrituð fór um Rochester og veiddi atkvæði.
Það var snjó­þungt í New Hamps­hire á laug­ar­dag þegar und­ir­rituð fór um Rochester og veiddi atkvæði.

Það kom okkur hins vegar á óvart hversu margir kjós­endur voru enn óákveðnir um hvort þau myndu styðja Sanders eða Clinton á kjör­dag. Ástæð­urnar voru marg­vís­legar en þó virt­ust flestir sam­mála um að okkar fram­bjóð­andi væri sá kandídat sem yrði lík­legri til að sigra þann repúblik­ana val­inn yrði for­seta­fram­bjóð­andi hins flokks­ins. Hins vegar sögðu margir að Sanders kveikti í þeim von um að rót­tækar breyt­ingar gætu í raun orðið á banda­ríska stjórn­kerf­inu. Heil­brigð­is­málin vega mjög þungt en þar skilur tölu­vert á milli fram­bjóð­enda demókrata. Clinton hefur sagt að hún vilji byggja ofan á Obamacare en Sanders vill að farið verið í svo­kallað „Single Payer Program“, þar sem allir eru tryggðir óháð efna­hag og kerf­inu stýrt af rík­is­vald­inu þó það verði áfram einka­rekið.

Stuðn­ingur Clinton við stríðið í Írak truflar enn marga. Fyrr­ver­andi her­maður benti hins vegar á að Sanders hefði ungur komið sér undan her­skyldu. Hér í Banda­ríkj­unum er þátt­taka í hernum tölu­vert rædd, ekki síst í for­seta­kosn­ingum enda er for­seti yfir­maður hers­ins og eigin reynsla af hernum því mik­ils metin.

Fjár­stuðn­ingur stórra hags­muna­hópa, ekki síst úr fjár­mála­greir­anum, við fram­boð Clinton kom oft upp þennan snjó­þunga laug­ar­dag í New Hamps­hire. Það var aug­ljóst að þeim sem höfðu enn ekki gert upp hug sinn þótti það aðdá­un­ar­vert að Sanders þægi ekki stórar upp­hæðir frá sterkum hags­muna­hópum.

Einn við­mæl­andi okkar benti okkur á að með því að kjósa Hillary Clinton fengi þjóðin „tvo for­seta fyrir einn“ og þó hún væri ekki viss hvor fengi atkvæðið hennar þótti henni ánægju­legt að geta kosið milli tveggja máls­met­andi fram­bjóð­enda. Það væri annað en repúblikanar byðu upp á þessa dag­anna. Áður en við kvöddum hana benti hún okkur á bæk­ling sem lá fros­inn við úti­tröpp­urnar hjá henni og hristi höf­uðið. Þar var áróður frá repúblikan­anum John Kasich um Jeb Bush mót­fram­bjóð­anda sinn. 

Munurinn á Hillary og Bernie

Þegar við höfðum bankað á öll húsin sem okkur var úthlutað og við sóttar í úthverfið náðum við að taka stutta kaffi­pásu, áður en við héldum aftur í rút­una. And­spænis kosn­inga­skrif­stof­unni fundum við kaffi­húsið The Cast & Grind. Þar er eig­and­ann stuðn­ings­maður Sanders. Sá heitir Eric Jan Adema, 43 ára. Að hætti heima­manna sett­umst við niður yfir kaffi og „maple square“, sem er eins konar ferköntuð rjóma­bolla með sýróps­rjóma, og ræddum um póli­tík við veit­inga­mann­inn.

Adema sagð­ist bera þá von í brjósti að enn væri hægt væri að breyta stjórn­mál­unum. Það væri ástæða þess að hann styddi Sanders. „Af því hann er til­bú­inn að taka á stóru bönk­unum. Allur fjár­stuðn­ing­ur­inn sem hann fær eru litlar upp­hæðir frá ein­stak­lingum, sem þýðir að þegar hann verður kos­inn verður hann ekki í skuld við ein­hverja af stóru fjár­mála­stofn­unum þessa lands og getur tæklað þær óáreittur,“ sagði Adema. Þannig mun Sanders í raun og veru getað unnið fyrir og hjálpað þeim sem eru í lægri- og milli­stétt. Þannig geta þessar stéttir lifað mann­sæm­andi lífi án þess að þurfa að reiða sig á félags­legan stuðn­ing stjórn­valda.

Eric Jan Adema með kaffikönnuna. Hann segist styðja Bernie Sanders í forvalinu í New Hampshire.
Eric Jan Adema með kaffi­könn­una. Hann seg­ist styðja Bernie Sanders í for­val­inu í New Hamps­hire.

Eins og hjá mörgum öðrum kjós­endum bar heil­brigð­is­kerfið á góma hjá Adema sem sagði Bernie Sanders vera mann­inn sem gæti raun­veru­lega breytt því. „Ég hef líka fulla trú á því að hann muni geta sett á heil­brigð­is­kerfi sem tryggir ókeypis heil­brigð­is­trygg­ingu fyrir alla lands­menn.“

Ég átti erfitt með annað en að taka undir að þetta séu mik­il­væg mál­efni og benti á að með því að kjósa Clinton fái þjóðin fyrsta kven­kyns for­set­ann. Nú þegar eru sjö­tíu lönd í heim­inum búin að kjósa sér kven­kyns þjóð­ar­leið­toga auk þess að Hillary Clinton sé lík­lega reynslu­mesti for­seta­fram­bjóð­andi allra tíma. Adema gat tekið undir það, en sagði fólkið í land­inu þurfa á bylt­ingu að halda.

Í þann mund heyr­ist flaut rút­unnar sem átti að aka okkur aftur til New York. Það er kom­inn tíma á að kveðja kjós­end­urna í New Hamps­hire. Eric Jan Adema brást ekki þeim háa kurt­eis­is­staðli sem heima­menn virð­ast hafa sett sér og skellir nokkrum ferkönt­uðum rjóma­bollum í poka og sendir okkur atkvæða­veið­ar­ana á brott með nesti.

Leiðin heim

Þegar ferðin heim var um það bil hálfnuð byrj­uðum við sjálf­boða­lið­arnir að fylgj­ast með kapp­ræðum repúblik­ana. Hlátra­sköllin hófust strax. Þegar verið var að kynna inn fram­bjóð­endur í útsend­ing­unni rugl­uð­ust kandídatarnir og vissu ekki í hvaða röð þeir áttu að ganga inn á sviðið með til­heyr­andi vand­ræða­gangi. Kapp­ræð­urnar snér­ust svo upp í árásir á milli fram­bjóð­enda. Þær beindust að mestu til Marco Rubio, öld­unga­deild­ar­þing­manns­ins frá Flórída, sem fékk ítrekað að heyra það frá Chris Christie, rík­is­stjóra New Jersey. Hann sagði Rubio vera eins og vél­menni í svörum, hann hefði enga hald­bæra reynslu sem for­seti þyrfti að hafa og í beinu fram­haldi benti Christie svo á að hann sjálfur hefði reynsl­una sem þyrfti til, haf­andi verið rík­is­stjóri. Rubio fékk svo við­ur­nefnið „Robot“ í kjöl­farið.

Ted Cruz öld­unga­deilda­þing­maður frá Texas, sem Trump sak­aði um að hafa komið þeim þeim sögu­sögnum af stað að Ben Carson væri að hætta í fram­boð­inu dag­inn sem kosið var í Iowa, bað Carson afsök­unar á fram­ferði stuðn­ings­manna sinna. Og svona koll af kolli, rak hvert furðu­málið annað.

Umræðan um pynt­ingar stóð einna helst upp úr mál­efna­legri umræðu kapp­ræð­anna, ef svo má segja. Þar kom í ljós að flestir fram­bjóð­end­urnir voru sam­mála um að leyfa svo­kall­aða „Waterboarding“-aðferð við yfir­heyrslu á ný. Allir fram­bjóð­end­urnir sóru svo að setja meiri fjár­muni í hern­að­ar­legar varnir lands­ins, taka þyrfti með enn afger­andi hætti á Norður-Kóreu sem hafði fyrr um dag­inn prófað lang­drægra flaug. Efna­hags­málin voru einnig ofar­lega á baugi. Trump virð­ist vera nokkuð nálægt Sanders í skoð­unum þegar kemur að við­skipta­samn­ingum við önnur lönd. Báðir hafa talað um hvernig slíkir samn­ingar hafa á und­an­förnum ára­tugum ýtt undir flutn­ing starfa úr landi og að end­ur­hugsa þurfi gerð slíkra samn­inga.

Óheppileg ummæli feminista

Þegar um klukku­tími var eftir af þess­ari fimmtán tíma löngu dag­skrá byrj­uðu að ber­ast fréttir af fund­inum sem Hillary Clinton hafði haldið í New Hamps­hire fyrr um kvöldið. Þar var henni til stuðn­ings fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna Madeline Albright. Sú hélt þar inn­blásna ræðu um hvers vegna konur ættu að styðja fram­boð Clinton, þá sér­stak­lega ungar konur, en kann­anir hafa sýnt að ungar konur styðja Bernie Sanders í miklu meiri mæli en Clinton. Albright benti á að Hillary Clinton hefði rutt braut­ina fyrir allar konur, hún hefði ekki bara mikla og dýr­mæta reynslu heldur kjark og dug til að breyta fyrir allar konur. Hún lauk svo máli sínu með frasa sem hún hefur gert frægan í gengum skrif sín um konur í stjórn­málum: „Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir konur sem styðja ekki aðrar konur“. Örskömmu síðar var þessa setn­ingu að finna á for­síðum allra miðla og við­brögðin væg­ast sagt ekki jákvæð.

Til að bæta gráu ofaná svart lét Gloria Steinem, einn þekkt­asti og virt­asti fem­inist­inn í Banda­ríkj­unum, hafa eftir sér í við­tali hjá Bill Mahers að lík­lega væru ungar konur svona hrifnar af Sanders af því strák­arnir væru hrifnir af Sanders. Þetta var ekki til þess fallið auka vin­sældir Hillary Clinton meðal yngri kjós­enda og allra síst kvenna sem nú keppt­ust við að svara Steinem á Twitter og í athuga­semda­kerfum. Þar var meg­in­stefið að það væru þær sjálfar sem ákveða hvern þær kjósa en ekki karl­kyns vinir þeirra. Daginn eftir baðst Steinem svo afsök­unar og sagð­ist hafa mis­mælt sig og ekki ætlað að gera lítið úr póli­tískum áhuga eða skoð­unum yngri kvenna.

Þó bæði Albright og Steinem hafi án efa ætlað að nota styrk­leika sína til að auka fylgi Clinton þá kom á óvart að þær skildu báðar látið hafa eftir sér svo umdeil­an­leg ummæli. Þessi ummæli, auk þeirrar stað­reyndar að Clinton muni lík­lega tapa fyrir Sanders í New Hamps­hire, virð­ast hafa hrist upp í her­búðum Hillary Clinton því snemma á sunnu­dag­inn kvis­að­ist út að end­ur­skoða ætti leik­fræð­ina áður en lengra yrði haldið.

Þegar heim var komið varð það ágætis léttir að sjá þá Bernie Sanders og Larry David mætta saman í sjón­varpið; í Spaug­stofu þeirra Banda­ríkja­manna, Saturday Night Life, vegna þess að frá því að fram­boð Sanders hófst hefur ítrekað verið gert grín af því hversu líkur hann þykir grínist­anum og höf­undi hinna sívin­sælu Seinfeld þátta. Það var ágætt að ljúka þessum langa degi á að sjá að Sanders átti ekki í vand­ræðum með að gera dálítið grín af sjálfum sér og hlæja með.

Með frost­bitna fingur og reynsl­unni rík­ari get ég nú horft spennt á nið­ur­stöður kosn­ing­anna til að sjá hvað kjós­endur New Hamps­hire velja sér. Kosið er í kvöld að íslenskum tíma og munu kjör­staðir loka klukkan eitt í nótt.

Þegar á öllu er á botn­inn hvolft, jafn­vel þó þetta fari ekki eins og maður hefði sjálfur kosið, getur maður huggað sig við það að það eru bara ell­efu dagar í að demókratar kjósi næst. Það verður í Nevada og repúblikanar á sama tíma í Suður-Karólínu. Þegar því er lokið eiga 47 ríki enn eftir að velja sinn fram­bjóð­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár