Trump einu skrefi frá Hvíta húsinu

Það er raun­veru­leg ástæða að hafa áhyggjur af því að Trump gæti orðið for­seti þó flest bendi til þess að Hillary Clinton muni hafa sigur úr bítum í nóv­em­ber.

Það ríkir væg­ast sagt algjör upp­lausn í banda­rískum stjórn­málum þessa dag­ana eftir að Donald Trump náði að tryggja sér útnefn­ingu Repúblikana­flokks­ins í vik­unni. Valda­mesti maður Repúblikana­flokks­ins og leið­togi flokks­ins í þing­inu treystir sér ekki til að styðja for­seta­fram­bjóð­anda flokks­ins.

Á hinum væng stjórn­mál­anna hefur Hillary Clinton tryggt sér útnefn­ing­una ef litið er til þess að Sanders þyrfti að vinna nær 100% af þeim atkvæðum sem eftir eru í pott­inum til að sigra og engar líkur eru á að svo verði. Sanders er þó hvergi nærri hættur og segir að þegar, og ef, hann tapi þá krefj­ist hann þess að fá að hafa mikil áhrif á stefnu­mótun flokks­ins á flokks­þingi sem haldið verður í júlí. Sanders er auk þess ekki til­bú­inn enn að lofa stuðn­ingi við Clinton.

En hjá báðum flokkum hefur flest allt snú­ist um and­stöð­una við Trump og í umræð­unni í fjöl­miðlum má greina að það er að verða mönnum ljóst að sigri Clinton ekki, verði Trump for­seti með fing­ur­inn á kjarn­orku­sprengju ef honum sýn­ist svo - og er til alls vís.

Viðbrögð við sigri Trump meðal repúblikana

Í vik­unni sem leið, þegar úrslit úr stórum ríkjum eins og Pennsil­vaníu, Maryland, Connecticut og Indiana urðu ljós, stigu þeir Ted Cruz og John Kasich til hliðar, þó ekki án þess að eftir því var tekið. Eftir að Cruz hafði haldið hjart­næma ræðu eftir nið­ur­stöður þriðju­dags­kvölds­ins lágu fyrir náði hann óvart að gefa eig­in­konu sinni oln­boga­skot í and­litið í tvígang þegar hann faðm­aði mann á svið­inu. Atvikið fékk ómælda athygli og mun án efa vera það sem fólk man úr ræð­unni.

Bæði Cruz og Kasich hafa lýst því yfir að þeir hafi ekki áhuga á því að verða vara­for­seta­efni Donald Trumps. Sama hafa margir aðrir lyk­il­menn og -konur innan flokks­ins gert síð­ustu daga og því leitar Trump nú ljósum logum að ein­hverjum sem getur mýkt ímynd hans. Jafnvel að ein­hverjum sem hefur reynslu og gæti aðstoðað hann við að stjórna land­inu, eins og hann sjálfur orð­aði það.

Síðustu fjórir for­seta­fram­bjóð­endur flokks­ins (þar af tveir fyrr­ver­andi for­setar, þeir George Bush, George W. Bush, auk Mitt Romney og John McCain) hafa sagt að þeir muni hvorki mæta á flokks­þingið né lýsa yfir stuðn­ingi við Trump. Þetta er í fyrsta sinni í sög­unni sem fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­endur hafa tekið svo harka­lega afstöðu gegn arf­taka sínum.

En fjór­menn­ing­arnir eru ekki þeir einu sem ekki eru sáttir við stöðu mála en valda­mesti ein­stak­ling­ur­inn í flokknum er leið­togi flokks­ins í þing­inu, Paul Ryan. Hann fór í langt við­tal á CNN þar sem hann lýsti því yfir að hann treysti sé ekki til að lýsa yfir stuðn­ingi við Trump, í bili að minnsta kosti. Í við­tal­inu fór hann vel yfir þá þætti sem að hans mati flestum kjós­endum flokks­ins þætti Trump þyrfti að breyta svo hægt væri að sam­eina flokk­inn undir for­ystu Trump.

Viðtalið við Ryan vakti ómælda athygli enda nær und­an­tekn­inga­laus hefð fyrir því að flokk­ur­inn fylki sér að baki þeim sem vinnur sér útnefn­ingu flokks­ins. Ryan reyndi að útskýra að hann von­að­ist til þess að hans armur flokks­ins, sem er sá íhaldsami, geti náð sáttum við Trump. Til þess að svo gæti orðið þyrfti Trump að vera til­bú­inn að draga í land í ýmsum málum. Án þess að vera til­bú­inn að nefna nákvæm­lega hver þau mál væru, er ljóst að Trump greinir á við margt lyk­il­fólk í flokknum í málum eins og hvort banna eigi múslimum að ferð­ast til Banda­ríkj­anna, hvort senda eigi úr landi ell­efu millj­ónir ólög­legra inn­flytj­enda og hvort byggja eigi múr við landa­mæri Banda­ríkj­anna og Mexíkó, svo fátt eitt sé nefnt.

En Ryan sagði að það væri þó ákveð­inn lær­dómur fólg­inn í sigri Trump og hann væri sá að stjórn­mála­menn hefði misst sam­band við kjós­endur og þyrftu að hlusta betur á hvað kjós­endur vildu. Hann úti­lok­aði að reynt yrði að koma í veg fyrir að flokks­þingið myndi sam­þykkja útnefn­ingu Trump því hann hefði svo sann­ar­lega unnið og það yrði að virða. En Ryan er for­maður lands­fundar flokks­ins og ber sem slíkur ábyrgð á fram­gangi fund­ar­ins. Hann lagði áherslu á að Trump yrði að láta af tudda­skap sínum (e. Bullying) og nú yrði að ein­beita sér að því að koma reiði kjós­enda í upp­byggi­legan far­veg, flokknum til heilla. Þá bað hann flokks­fólkið sitt sér­stak­leg um að ekki láta sér detta í hug að kjósa Hillary Clinton.

Áhyggjur Ryan af stöðu mála eru ekki ein­vörð­ungu vegna þess að kann­anir benda til þess að Clinton muni að öllum lík­indum sigra Trump, heldur líka vegna þess að kosið er til bæði öld­unga­deild­ar­þings­ins og full­trúa­þings­ins sam­tímis og til for­seta. Reynslan sýnir að mun fleiri kjósa í for­seta­kosn­ingum en þau ár sem bara er kosið til þings. Algengt er að þau ár sem for­seta­fram­bjóð­andi demókrata sigrar, þá fylgir sigur í þing­deild­unum tveimur með. Í dag eru repúblikanar með meiri­hluta í báðum þing­deildum og óvin­sældir Trumps gætu hæg­lega orðið til þess að repúblikanar tapi meiri­hlut­unum.

Mótlætið

Áhuga­vert er að fylgj­ast með því hvernig Trump reyndir að spyrna sig saman við Bernie Sanders nú þegar hann er engin ógn við hann. Þó mikil munur sé á flestum skoð­unum Sanders og Trump eiga þeir það sam­merkt að vera í augum margra kjós­enda svar við von­lausum stjórn­mála­mönnum í Washington. Trump hefur ítrekað talað vel um Sanders, meðal ann­ars í tístum síð­ustu daga, en ólík­legt er að honum sé mik­ill greiði gerður með þvíþ Mögulega getur hann þó með þessu náð til kjós­enda Sanders sem gætu hugsað sér að snúa sér frekar að Trump en Clinton í kjör­klef­anum í nóv­em­ber.

Hæfi­leikar Trumps til að skapa sér óvild eru engin tak­mörk sett. Fyrr í vetur sendi hin magn­aða Adele frá sér til­kynn­ingu þar sem Trump var bannað að nota lög hennar á kapp­ræðu­fundum. Nú í vik­unni bætt­ist Rolling Stones á þann lista sem vill ekki að Trump noti tón­list sína.

Ógn sem stafar af Trump

Í vik­unni var rifjað upp þegar Donald Trump til­kynnti fram­boð sitt með því að renna sér niður rúllu­stiga í Trump bygg­ing­unni og til­kynna svo um fram­boð sitt. Fæstir höfðu nokkra trú á því að hann ætti mögu­leika á að sigra þá 17 fram­bjóð­endur sem tóku þátt í for­vali repúblik­ana. En nið­ur­staðan var þó sú að nú stendur hann uppi með pálmann í hönd­unum sem fær­ustu frétta­skýrendum lands­ins tókst ekki að sjá fyrir. Allt sem menn hafa talið að væri öruggt að virk­aði fyrir fram­bjóð­endur og allt það sem gæti eyði­lagt kosn­inga­bar­áttu hefur verið snúið á haus með fram­boði Trump. Stór hluti lands­manna kepp­ist við að lýsa óhug sínum á sam­fé­lags­miðlum yfir þeirri stað­reynd að nú sé maður með jafn öfga­fullar skoð­anir og Trump orð­inn for­seta­fram­bjóð­andi

Greina­höf­undur New York Times, Eric Brook lýsti ástand­inu í sam­fé­lag­inu ágæt­lega í grein fyrr í vik­unni, en þar bendir hann á að sagan muni dæma fólk eftir því hvort það stóð með eða á móti Trump og sagði að um væri að ræða annað ,,McCarthy moment”. Joseph McCarthy var öld­unga­deilda­þing­maður frá Wisconsin sem stýrði ofsóknum gegn fólki sem starf­aði fyrir stjórn­völd og var grunað um að vera komm­ún­istar og sitt­hvað fleira sem þótti grun­sam­legt í því ofsókn­ar­brjál­æði sem greip um sig í kringum kalda­stríðið. Í grein­inni bendir hann á að 75% kjós­enda Trumps þykir lífs­bar­átta fólks hafi versnað síð­ustu hálfa öld­ina, að tölur sýna að sjálfs­morð­s­tíðni er í sögu­legu hámarki. Fáir trú lengur á amer­íska draum­inn og traust á kerf­inu er í algjöru lág­marki hjá ungu fólki. Stað­reyndin sé sú að vel­gengni Trumps er vegna þess að fólk er reitt og upp­lifir að það eigi ekki málsvara í stjórn­mála­mönnum. Hins vegar sé Trump alls ekki rétta svarið við þess­ari upp­lausn, og verk­efnið sé að finna út úr því hvað annað getur svarað þessu kalli, svo ekki illa fari.

Kannanir sýna að 5-10 pró­sentu­stigs­mun á Clinton og Trump, Clinton í vil. Bernie Sanders hefur mælst mun sterk­ari gegn Trump en þó hann ætli sér að klára for­valið sem enn eru nokkrar vikur eftir af, þá er úti­lokað fyrir hann að fá útnefn­ing­una, nema Clinton hrein­lega hætti. Vanga­veltur um mögu­leika hans á að snúa nægi­lega mörgum ofur­kjör­mönnum fyrir lands­fund flokks­ins í júlí eru óraun­hæfar. Það er því alveg ljóst að Hillary Clinton og Donald Trump munu vera for­seta­fram­bjóð­endur flokk­anna tveggja. Flestar kann­anir benda til þess að Clinton muni sigra kosn­ing­arnar með tölu­verðum mun, því ekki er um hefð­bundna hlut­falls­kosn­ingu að ræða heldur snýst kosn­inga­kerfið um að sigra ríki. Í flestum ríkjum fær sá sem sigrar ríkið öll atkvæðin (winner takes it all).

Í ár bendir allt til þess að Nevada, Colorado, Iowa, Wisconsin, Pennsil­vanía, Virginía, Norður Karólína, Flórída og New Hamps­hire verði þau ríki sem óvíst er hvort muni kjósa Clinton eða Trump. Það er því vert að fylgj­ast með þessum ríkjum næstu mán­uð­ina.

Hvað nú?

Næstu vikur og mán­uði mætti búast við því að Trump reyni að tempra skap sitt og dragi í land með öfga­fyllstu yfir­lýs­ingar sínar til þess að sýn­ast for­seta­legri. Hann þarf að breikka þann hóps sem hann nær til ætli hann að eiga mögu­leika að sigra, og ekki verður nóg að taka mynd af sér borða tacos eins og hann reyndi í vik­unni á Cico de mayo og segj­ast elska þá sem eru af rómönsk amer­ískum upp­runa.

Það er heldur ekki nóg að fá útnefn­ingu flokks­ins, því nú þarf Trump að fara að safna fé fyrir bar­átt­una, og ekki dugar lengur að reiða sig á sína eigin fjár­muni, því upp­hæð­irnar sem þarf til að keyra for­seta­fram­boðs­kosn­inga­bar­áttu eru engir smá­aurar. Það er því ljóst að Trump þarf að fara að hringja í fjár­sterka aðila, suma sem hann hefur gagn­rýnt harka­lega fyrir hitt og þetta í gegnum tíð­ina. Líklegt er að nú þurfi hann líka að þola meiri hörku frá blaða­mönnum en Trump hefur margoft verið stað­inn af því að segja ósatt í fjöl­miðlum. Nýverið var bent á að hann hafi sagst hafa verið á móti inn­rásinni í Írak frá upp­hafi en til eru við­töl við hann frá þeim tíma sem ákveðið var að ráðst inn og þar styður hann það ein­dregið. Slíkt hefði í venju­legum kosn­ingum orðið til þess að fram­bjóð­andi þyrfti að draga sig í hlé, en svo virð­ist sem ekki séu gerðar eru sömu kröfur til Trump og ann­arra.

En stóra verk­efni hjá bæði Trump og Clinton er val þeirra á vara­for­seta­efnum, með því reyna fram­bjóð­endur oft að velja ein­hvern sem getur breikkað hóp­inn sem þau ná til. Mörg nöfn hafa verið rædd en í til­felli Trumps eins og fyrr segir, og virð­ist leitin verða erf­ið­ari en venja er þar sem margir lík­legir kandi­datar hafa þver­neitað að hafa áhuga og sá listi leng­ist með hverjum deg­inum. Svör tals­manna þeirra sem leitað hefur verið til hafa verið á þessa leið:

,,Aldrei, ekki séns,” sagði tals­maður John Kasich,

,,Hahahahahahahaha,” sagði tals­kona Jeb Bush,

,,Eins og að kaupa miða um borð á Titanic,” var svar öld­unga­deild­ar­þing­mans­ins Lindsey Graham.

Rick Perry, fyrrum rík­is­stjóri Texas og fyrrum for­seta­fram­bjóð­andi, er einn fárra sem hefur lýst áhuga sínum á að vera vara­for­seta­efni Trumps. Margt óvenju­legt hefur komið fram í umræð­unni eftir að Trump nældi sér í útnefn­ing­una og eitt af því er mikil umræða um hvort hægt verði að deila með Trump trún­að­ar­gögnum um hern­að­armá,l en hefð er að þeir sem fá útnefn­ingu flokk­anna fái inn­sýn inn í þann veru­leika sem annað þeirra er að fara að búa í eftir kosn­ing­arnar. Nú stígur fram hver fyrr­ver­andi leyni­þjón­ustu­yf­ir­mað­ur­inn fram og varar við því að Trump fái slíkar upp­lýs­ingar af ótta við að hann leki þeim til að bæta stöðu sína. For­set­inn er sá sem tekur end­an­lega ákvörðun um hversu miklar upp­lýs­ingar fram­bjóð­endur fá.

Á hinum enda stjórn­mál­anna er meiri ró þó enn sé staðan þannig að Sanders hefur ákveðið að keyra sína kosn­inga­bar­áttu þar til búið er að kjósa í öllum ríkjum. Hann hefur haft uppi miklar kröfur um að fá að hafa áhrif á nið­ur­stöður álykt­anna sem lands­fundur demókrata skilar af sér sem fara svo inn í stefnu­skránna sem Clinton fer með út í sjálfar kosn­ing­arnar. Í raun er ekki mjög óvenju­legt að sá aðili sem tapar fari fram á að hafa áhrif á stefnu­mál flokks­ins, það sama gerð­ist árið 2008 þegar Clinton tap­aði. Hún hafði tölu­verð áhrif á álykt­anir flokks­ins sér­stak­lega varð­andi mál­efni sem snertu konur. Hins vegar hefur Sanders gert lítið sem ekk­ert í því að safnað fé fyrir þing­menn né flokk­inn og hann hefur ekki gefið það til kynna að hann muni standa að baki Clinton að loknu for­val­inu, en hefð er fyrir því að sá sem tapi láti svo flokks­hags­muni á þennan hátt ganga fyrir og sjái til þess að kjós­endur sínir skili sér til þess sem vann. Talið er þó að þessi kergja muni batna með tím­anum og Sanders bakki Clinton upp að lokum.

Clinton og Trump

Síðustu daga hefur Trump ráð­ist með harka­legum hætti að Hillary Clinton og lét meðal ann­ars hafa eftir sér í vik­unni að ef hún ekki væri kona þá væri hún kannski með 5% atkvæða. Að hún spil­aði kvenna­kort­inu (e. Woman Card) ítrekað til að fá atkvæði. Ummælin fóru væg­ast sagt mjög illa í konur sem styðja Hillary Clinton í miklum mæli, og brást kosn­inga­bar­áttan hennar skjótt við og lét fram­leiða konu­kortið í snatri. Kortið hefur selst eins og heitar lummur og hefur hún safnað tveimur og hálfri milljón doll­arar á sölu korts­ins.

Hún hefur nýtt sér kvenn­fyr­ir­litn­ingu hans óspart og getur með því dregið mjög skýra línu sem sýnir hvers ólík þau eru. Þá hefur hún líka safnað saman ummælum ann­arra repúblik­ana um Trump og hefur það mynd­skeið farið víða síð­ustu daga.

Búist er við því að kapp­ræður á milli fram­bjóð­end­anna og kosn­inga­bar­áttan verði blóð­ugri en venja er, og þó er ekki venja að sýna nein vett­linga­tök. Það er raun­veru­leg ástæða að hafa áhyggjur af því að Trump gæti orðið for­seti þó flest bendi til þess að Hillary Clinton muni hafa sigur úr bítum í nóv­em­ber. Eins og ein­hver orð­aði það, þá eru Banda­ríkja­menn bara einum Clinton-skandal frá því að Trump verði for­seti Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár