Kærur til lögreglu vegna kynferðisbrota orðnar 595 á árinu 2021

Lög­reglan fær 200 millj­ónir til að efla máls­með­ferð kyn­ferð­is­brota. Til stendur að beita upp­lýs­inga­tækni til að ná fram bættum máls­hraða. Huga þurfi betur að þolendum, að þeir njóti rétt­látrar máls­með­ferðar og að mál séu afgreidd innan eðli­legs tíma.

Lög­reglan mun frá 200 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag úr rík­is­sjóði á næsta ári til að efla rann­sókn og sak­sókn kyn­ferð­is­brota og efla for­varnir og þjón­ustu við þolendur kyn­ferð­is­brota í sam­ræmi við áherslur í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í meiri­hluta­á­liti fjár­laga­nefndar, en á bak­við álitið standa nefnd­ar­menn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Í álit­inu segir að kærum til lög­reglu vegna kyn­ferð­is­brota hafi fjölgað umtals­vert og það sem af er árinu 2021 séu þær 595. Það þýðir að um 1,7 til­kynn­ing hafi borist að með­al­tali á hverjum degi yfir­stand­andi árs. „Í kjöl­far aðgerða­á­ætl­unar um með­ferð kyn­ferð­is­brota sem tók til tíma­bils­ins 2018–2022 voru í fjár­lögum fyrir árið 2018 sam­þykktar til­lögur til umtals­verðrar efl­ingar lög­reglu­emb­ætt­anna til að mæta þeim áskor­unum sem þau stóðu frammi fyrir við rann­sókn og sak­sókn kyn­ferð­is­brota. Sú við­bót dugði ekki til þar sem fjöldi mála jókst umfram þá styrk­ingu. Efla þarf enn frekar þann mann­skap hjá lög­reglu og ákæru­valdi sem sinnir með­ferð kyn­ferð­is­of­beld­is­mála auk ann­arra þátta, svo sem á sviði upp­lýs­inga­tækni, til þess að ná fram bættum máls­hraða sem til­lög­unni er ætlað að mæta.“

[adspot]Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stendur til að gera upp­lýs­ingar um máls­fram­vindu kyn­ferð­is­brota­mála aðgengi­legar almenn­ingi með gagn­virkum hætti. Þegar er búið að kynna þá fram­kvæmd fyrir nýjum dóms­mála­ráð­herra, Jóni Gunn­ars­syni, og aðstoð­ar­manni hans, Brynjari Níels­syni.

Huga þarf að þolendum

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að mik­il­vægt sé að hafa í huga að þörf sé á að hugsa um kerfið í heild sinni þannig það taki til allra áskor­ana sem með­ferð kyn­ferð­is­brota feli í sér.

Þar þurfi að hugsa málið frá upp­hafi með öfl­ugum for­vörnum til að koma í veg fyrir brot og stuðla að betra sam­fé­lagi. „Þá þarf að huga að þolendum, að þeir fái þá þjón­ustu sem þörf er á í sam­ræmi við eðli brota, fái fag­legt og vandað við­mót innan kerf­is­ins og njóti rétt­látrar máls­með­ferðar og mál þeirra séu afgreidd innan eðli­legs tíma. Kerfið þarf að geta mætt breyttum þörfum sam­fé­lags­ins til að sinna þessum málum á full­nægj­andi hátt.“

Kyn­ferð­is­brotaum­ræðan hefur verið afar hávær á Íslandi á því ári sem er að líða. Í maí stigu hund­ruð íslenskra kvenna fram opin­ber­lega og greindu frá kyn­ferð­is­brotum gegn þeim í kjöl­far þess að stuðn­ings­bylgja reis upp með þjóð­þekktum manni sem tvær konur sögðu að brotið hefði á sér. Karlar voru í þetta skiptið hvattir til að taka meiri þátt í umræð­unni með það fyrir augum að þetta væri sam­fé­lags­legt vanda­mál en ekki ein­ungis kvenna­vanda­mál.

Þöggunar- og nauðgunarmenning

Umræðan náði hámarki með KSÍ-mál­inu svo­kall­aða, þar sem ásak­anir um gróf kyn­ferð­is­brot voru settar fram gegn þekktum knatt­spyrnu­mönnum og stærsta íþrótta­sam­band lands­ins lá undir ámæli fyrir að hafa þaggað málin niður.

[links]Í skýrslu sem gerð var af úttekt­ar­nefnd sem falið var að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands voru gerðar marg­hátt­aðar athuga­semdir við vinnu­brögð KSÍ.

Ákveðnar yfir­lýs­ingar sam­bands­ins á opin­berum vett­vangi hafi „borið með sér ákveðin merki þögg­un­ar- og nauðg­un­ar­menn­ingar, þar sem því var í reynd hafnað í yfir­lýs­ing­unum að mál kvenn­anna hefðu komið til vit­undar KSÍ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár