„Ekki hægt að taka þessari „umræðu“ þegjandi“

Ástráður Eysteins­son, for­seti Hug­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands, segir ómak­lega vegið að starfs­mönnum háskól­ans og gerir athuga­semd við ummæli Hermanns Stef­áns­sonar og frétta­flutn­ing Stund­ar­innar.

Ástráður Eysteins­son, for­seti Hug­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands, telur mik­il­vægt að gæta þess að þeir sem tengdir eru umsækj­endum um störf í háskól­anum fjöl­skyldu­böndum komi hvergi nálægt með­ferð starfs­um­sókna og ákvörð­unum um ráðn­ingar. 

Þetta kemur fram í pistli sem Ástráður sendi Stund­inni í dag. Tilefnið er nýleg frétt þar sem kemur að þeir þrír aðilar sem ráðnir voru í stöðu aðjúnkts við íslensku- og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands í fyrra teng­ist ýmist þáver­andi deild­ar­for­seta, Guðna Elíssyni pró­fessor, eða núver­andi for­seta Hug­vís­inda­sviðs, Ástráði, fjöl­skyldu­böndum.

Í frétt­inni var haft eftir Sveini Yngva Egils­syni, núver­andi deild­ar­for­seta íslensku- og menn­ing­ar­deildar, að hvorki Guðni né Ástráður hefði átt aðkomu að ráðn­ing­unum. Hermann Stef­áns­son, rit­höf­undur sem sjálfur hefur starfað sem stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands und­an­farin ár, lýsti nýverið íslensku- og menn­ing­ar­deild háskól­ans sem brand­ara. „Háskóla­deild þar sem helm­ingur starfs­fólks er skyldur og vensl­aður. Hvar sem er í heim­inum væri slík deild orðin að almennu athlægi,“ skrif­aði hann í grein sem birt­ist á Kjarn­anum. Þá vakti Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við háskól­ann, einnig máls á fjöl­skyldu­tengsl­unum.

Ástráður Eysteins­son gagn­rýnir bæði skrif Hermanns Stef­áns­sonar og frétta­flutn­ing Stund­ar­innar. 

„Ég hef heyrt vel mein­andi fólk segja að það sé óheppi­legt að á sama tíma hafi ann­ars vegar verið ráðin til starfa við deild­ina hjón tengd sviðs­for­seta, og hins vegar eig­in­kona fyrr­ver­andi deild­ar­for­seta,“ skrifar hann og bætir við: „Svo kann að vera, en það er ekki hlut­verk háskóla­stjórn­sýsl­unnar að koma í veg fyrir að ákveðnir ein­stak­lingar sæki um störf sem aug­lýst eru, né heldur að láta það bitna á þeim að þeir séu vensl­aðir starfs­mönnum sem fyrir eru, hvort sem skyld­mennin eru akademískir starfs­menn eða fólk í stjórn­un­ar­störfum. Háskóli Íslands er mjög fjöl­mennur vinnu­staður á íslenskan mæli­kvarða og hefði farið á mis við marga góða starfs­menn ef hjón mættu ekki vinna við stofn­un­ina eða ekki mætti ráða til hennar fólk sem er venslað öðrum starfs­mönnum.“

Ástráður tekur fram að Hermann Stef­áns­son er með BA-gráðu og meist­ara­próf í bók­mennta­fræði við Háskóla Íslands og hefur sinnt stunda­kennslu í háskól­anum. Þá gagn­rýnir hann Stundina fyrir að vitna „án nokk­urrar gagn­rýn­innar skoð­unar, til stór­karla­lega ávirð­inga Hermanns Stef­áns­sonar, eins og þær væru vitn­is­burður sem skipti máli“.

Loks bætir hann því við að ávirð­ing­arnar hitti ekki aðeins sig og Guðna Elísson fyrir heldur einnig það fólk sem ráðið var til umræddra starfa og fag­fólkið sem bar ábyrgð á stjórn­sýsl­unni í ráðn­inga­mál­unum. „Þess vegna er ekki hægt að taka þess­ari „umræðu“ þegj­andi,“ skrifar Ástráður að lokum. 

Hér að neðan má lesa pistil Ástráðs í heild: 

Stund Hermanns

Athugasemdir við grein og frétt


Þann 17. ágúst sl. birti Hjálmar Frið­riks­son blaða­maður frétt í Stund­inni undir titl­inum „Deild­ar­for­seti segir fag­mennsku hafa ráðið ráðn­ingu fjöl­skyldu­með­lima“. Tilefnið er ráðn­ingar kenn­ara við Íslensku- og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands. Þessi frétt virð­ist hafa verið lesin af mörgum, von­andi af almennum áhuga á starf­semi Háskóla Íslands, en kannski hafa ein­hverjir talið sig finna lykt af spill­ingu – enn eina stað­fest­ingu þess að margt sé rotið í sam­fé­lagi okkar, jafn­vel í þeirri rík­is­stofnun sem lengi hefur notið hvað mests trausts meðal almenn­ings á Íslandi. 

Það verður seint sagt að málið hafi verið ræki­lega kannað af blaða­mann­inum. Hann ræðir að vísu við Svein Yngva Egilsson deild­ar­for­seta, sem greinir frá því að ráðn­ing þriggja ein­stak­linga sem tengj­ast ann­ars vegar und­ir­rit­uðum, for­seta Hug­vís­inda­sviðs, og hins vegar Guðna Elíssyni pró­fessor, fyrr­ver­andi deild­ar­for­seta, hafi átt sér stað án minnstu aðkomu okkar tveggja að ráðn­ing­unum; við hefðum alfarið sagt okkur frá ferl­inu. Blaða­mað­ur­inn bætir við: „Athygli vekur að báðir gerðu það strax við gerð aug­lýs­ingar á stöð­unum.“ Á móti orðum Sveins Yngva teflir blaða­maður til­vitn­unum úr grein sem Hermann Stef­áns­son, rit­höf­undur og bók­mennta­fræð­ingur, birti í vef­blað­inu Kjarn­anum þann 13. maí sl. Sú grein er í reynd önnur helsta „heim­ild“ blaða­manns­ins og órök­studdar full­yrð­ingar Hermanns, sem ekki eru með­höndl­aðar af minnstu gagn­rýni í frétt­inni, ganga þvert á ummæli Sveins Yngva. Svo eiga les­endur lík­lega að ímynda sér hvað þarna hafi raun­veru­lega gerst – hlýtur ekki að vera ein­hver maðkur í mysu Háskól­ans?

Fagmennska og fjóshaugur

Ég hef heyrt vel mein­andi fólk segja að það sé óheppi­legt að á sama tíma hafi ann­ars vegar verið ráðin til starfa við deild­ina hjón tengd sviðs­for­seta, og hins vegar eig­in­kona fyrr­ver­andi deild­ar­for­seta. Svo kann að vera, en það er ekki hlut­verk háskóla­stjórn­sýsl­unnar að koma í veg fyrir að ákveðnir ein­stak­lingar sæki um störf sem aug­lýst eru, né heldur að láta það bitna á þeim að þeir séu vensl­aðir starfs­mönnum sem fyrir eru, hvort sem skyld­mennin eru akademískir starfs­menn eða fólk í stjórn­un­ar­störfum. Háskóli Íslands er mjög fjöl­mennur vinnu­staður á íslenskan mæli­kvarða og hefði farið á mis við marga góða starfs­menn ef hjón mættu ekki vinna við stofn­un­ina eða ekki mætti ráða til hennar fólk sem er venslað öðrum starfs­mönnum. Hins vegar þarf vita­skuld að gæta þess vel að þeir sem tengdir eru umsækj­endum fjöl­skyldu­böndum komi hvergi nálægt með­ferð starfs­um­sókna og ákvörðun um ráðn­ingu.   

Grein Hermanns Stef­áns­sonar hefst sem brúna­þungt svar við grein sem Hjalti Snær Ægisson, dokt­or­snemi og stunda­kenn­ari við Íslensku- og menn­ing­ar­deild á Hug­vís­inda­sviði HÍ, birti í Kjarn­anum, þar sem hann deilir á Braga Ólafsson rit­höf­und fyrir að selja fyr­ir­tæki bók­ar­verk sem fór ekki á almennan markað. En reiði Hermanns bein­ist síðan að háskóla­deild Hjalta, deild sem Hermann kallar „forað“, og blaða­maður Stund­ar­innar vitnar til þessa ummæla Hermanns: „Háskóla­deildin sem Hjalti Snær starfar við er til dæmis ekki bein­línis neitt kirkju­skrúð­hús og nær að ætla að hún sé slétt sagt spillt því hún er rekin eins og fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki. Ástráður Eysteins­son pró­fessor hefur ráðið þar mág­konu sína til starfa, Heiðu Jóhanns­dóttur, sem og svila, Björn Þór Vil­hjálms­son. Við deild­ina starfar Guðni Elísson og einnig kona hans, Alda Björk Valdi­mars­dóttir. Nýverið voru tvær stöður aug­lýstar, mér er ókunn­ugt um hvort ætt­ar­tré þurfi að fylgja umsóknum en löngu ljóst að deildin getur ráðið hvern sem henni sýn­ist og skutlað allri fag­mennsku á fjós­haug­inn ef henni býður svo við að horfa“.

Eymdarstuna og kindabyssa

Ég gæti litið á ummæli Hermanns sem æru­meið­ingar og atvinnuróg, því að vita­skuld kom ég hvergi að þessum ráðn­ingum, ekki frekar en Guðni; það gerði annað fólk sem er ótengt umsækj­endum um störfin. En hvernig á að bregð­ast við svona gusu­gangi? Í grein sinni bætir Hermann við: „Talaði ein­hver um með­virkni kunn­ingja­sam­fé­lags­ins? Þetta er hreinn brand­ari. Háskóla­deild þar sem helm­ingur starfs­fólks er skyldur og vensl­aður. Hvar sem er í heim­inum væri slík deild orðin að almennu athlægi.“ Nú er þess að geta að við Íslensku- og menn­ing­ar­deild starfa á fimmta tug fastra kenn­ara í mörgum greinum, auk nokk­urs fjölda stunda­kenn­ara, og einn þeirra síð­ar­nefndu hefur á liðnum árum einmitt verið Hermann Stef­áns­son. Ég veit ekki til að honum hafi verið tekið illa er hann sneri aftur á fornar slóðir, þar sem hann lauk áður BA-prófi og síðar meist­ara­prófi í bók­mennta­fræði. En nú sér hann svart þegar talið berst að þess­ari deild og sér­stak­lega bók­mennta­fræð­inni: „Ekki hef ég ýkja margt heyrt úr ranni bók­mennta­fræð­innar und­an­farin tíu ár nema ámóta dap­ur­lega beyglaða sýn og birt­ist í grein Hjalta Snæs, þessa eymd­arstunu úr ætt­ar­móti, þetta nið­ur­koðn­aða vand­læt­ing­ar­taut sem markast af átak­an­legum skorti á reynslu af öllu lífi og öllum veru­leika og áhuga­leysi á bók­menntum, metn­að­ar­leysi, hug­leysi, aum­ingja­skap.“

Ansi hefur farið illa fyrir okkur, ég verð að segja það. „Bók­mennta­fræði er dauð“, segir Hermann. „Bók­mennta­fræði er blaður“. Og loka­orð hans eru: „Þetta er búið. Ekkert eftir nema að grípa kinda­byssu og skjóta þetta“ (þess­ara ummæla er ekki getið í Stund­inni). Ef Hermann á við kinda­byssu eins og þá sem notuð var í kaup­fé­lag­inu í heima­þorpi mínu hér áður fyrr, þegar ég vann þar á slát­ur­tíð og heyrði lömbin þagna álengdar, þá vill hann að minnsta kosti ekki vera sá heigull að skjóta úr laun­sátri, heldur í miklu návígi og jafn­vel horfast í augu við skot­mörkin um leið og hann tekur í gikk­inn. Það er þakk­ar­vert.

Ávirðingar

Ég sá enga ástæðu til að taka offors og stór­mæli Hermanns alvar­lega. Þau geta ekki talist til mál­efna­legrar gagn­rýni sem háskóla­fólk á í senn að ástunda og bregð­ast við. Nú er þessi pist­ill hans hins­vegar orðin heim­ild hjá blaða­manni, að ætla mætti mark­tæk heim­ild í frétt hjá miðli sem vill stunda sam­fé­lags­gagn­rýni. Því skal ítrekað að hvorki ég né Guðni Elísson tókum nokkurn þátt í umræddum ráðn­ingum í Háskóla Íslands. Þetta væri hægt að fá stað­fest með ýmsum vitn­is­burði í skól­anum og er hægt að kalla eftir honum sé áhugi fyrir slíku. Þegar fyrir lá, eftir að tveir fasta­kenn­arar deild­ar­innar höfðu látið af störfum, að aug­lýst yrðu fjögur 50% aðjunkts­störf, þ.e. í bók­mennta­fræði, kvik­mynda­fræði og menn­ing­ar­fræði – og svo rúmu ári síðar tvö lekt­ors­störf í bók­mennta­fræði og kvik­mynda­fræði – vissum við Guðni í bæði skiptin að ein­stak­lingar tengdir okkur hefðu hug á að sækja um þessi störf. Þess vegna  komum við ekki nálægt gerð aug­lýs­ing­anna, hvað þá mati á umsóknum, við­tölum við umsækj­endur, eða ákvörðun um hverjir væru hæf­astir til þess­ara starfa. Ráðn­ingar við skól­ann eru ekki mót­aðar af geð­þótta. Dóm­nefndir og val­nefndir starfa eftir skýrt mörk­uðum hæfni­við­miðum. Sviðs­for­seti hefur svo það hlut­verk að fara yfir nið­ur­stöður, kanna hvort eðli­lega hafi verið staðið að málum og stað­festa nið­ur­stöð­una ef allt reyn­ist með felldu. Þessu verki sinntu stað­genglar í umræddum til­vikum, fólk í ábyrgð­ar­stöðum utan deild­ar­innar.

Allt var því gert til að tryggja vönduð og óhlut­dræg vinnu­brögð. Ef blaða­maður treysti ekki orðum Sveins Yngva Egils­sonar um það, hefði kannski átt að kanna málið betur í skól­anum, í stað þess að leita, án nokk­urrar gagn­rýn­innar skoð­unar, til stór­karla­lega ávirð­inga Hermanns Stef­áns­sonar, eins og þær væru vitn­is­burður sem skipti máli. Og þær ávirð­ingar hitta ekki ein­göngu okkur Guðna Elísson fyrir, heldur líka það fólk sem ráðið var til umræddra starfa, og síð­ast en ekki síst þá hópa fag­fólks sem bar ábyrgð á allri stjórn­sýsl­unni í þessum ráðn­inga­málum. Þess vegna er ekki hægt að taka þess­ari „umræðu“ þegj­andi.

Höfundur er for­seti Hug­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár