Ný stétt Konurnar geta ekki leitað réttar síns án þess að eiga á hættu að verða vísað úr landi. Lögin hvetja þannig til þess að kon­unar láti mis­rétti og áreitni á vinnu­stað yfir sig ganga. Þá getur hjóna­skiln­aður einnig leitt til þess að þær missa dval­ar­leyfið.

Hvorki fórnarlömb né vinnudýr

„Það er að verða til tvískipt samfélag, ný lágstétt fólks af erlendum uppruna sem tilheyrir viðkvæmum hópi í samfélaginu, nánast stétt þjónustu­fólks,“ segir Nichole Leigh Mosty, fyrr­verandi þingmaður Bjartrar framtíðar. Þetta fólk hefur takmarkaða möguleika á að sækja rétt sinn í samfélaginu.

Það vakti mikinn óhug þegar konur af erlendum uppruna birtu sögur sínar opinber­lega í tengslum við Metoo-átakið því þær þóttu endur­spegla hræðilegan veruleika. Þar gaf að líta sögur af ofbeldis­fullum eigin­mönnum og kynferðis­ofbeldi og áreitni á heimilum og vinnu­markaði. En slíkar sögur eru ekki nýjar af nálinni. Flest höfum við heyrt eitthvað álíka og við vitum að konur úr þessum hópi eru fjölmennasti hópurinn í Kvenna­athvarfinu. Ofbeldið getur komið upp alls staðar, á heimilum, í kerfinu og á vinnu­stöðum. Lögin gera það að verkum að hluti kvennanna getur ekki leitað réttar síns án þess að eiga á hættu að verða reknar úr landi. Við þekkjum líka dæmi þess að konur hafi brotist í gegnum langt og strangt nám til að mæta höfnun á vinnu­markaði. En hvað er samfélag okkar að gera til að hjálpa þeim til að brjótast úr aðstæðum sínum?

Kvörtun getur þýtt brottvísun

Claudie Ashonie Wilson …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár