Finnbjörn sjálfkjörinn forseti ASÍ

Finn­björn A. Her­manns­son er nýr for­seti ASÍ, en hann var sjálf­kjör­inn á þingi ASÍ í dag. Vara­for­setar ASÍ eru Ragnar Þór Ing­ólfs­son, Hjördís Þóra Sig­ur­þórs­dóttir og Kristján Þórður Snæ­björns­son.

ASÍ
ASÍ Finn­björn A. Her­mann­nson hefur verið kjör­inn í emb­ætti for­seta ASÍ. Hann er sautj­ándi for­seti Alþýðu­sam­bands­ins frá stofnun þess árið 1916. Mynd: ASÍ

Finn­björn A. Her­manns­son var í dag kjör­inn for­seti ASÍ. Hann var sjálf­kjör­inn í emb­ættið, í kjöl­far þess að Ólöf Helga Adolfs­dóttir ákvað að draga for­seta­fram­boð sitt til baka í morgun. 

Þingi ASÍ er fram haldið þessa vik­una, en þing­inu var frestað síð­asta haust í kjöl­far þess að þing­fund­ur­inn, sem hald­inn var á Nordica-hót­eli í Reykja­vík, leyst­ist upp.

Það gerð­ist í kjöl­far þess að Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR, sem þá var í fram­boði til for­seta ASÍ, Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Verka­lýðs­fé­lags Akraness, gengu út af þing­inu ásamt fjölda félaga úr VR, Eflingu og öðrum félögum Starfs­greina­sam­bands­ins. 

Finn­björn hefur ára­tuga reynslu af störfum í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, en  hann lét nýlega af störfum sem for­maður Bygg­iðnar, áður Tré­smíða­fé­lags Reykja­víkur, þar sem hann hafði verið í for­svari í 26 ár.

Hann gaf kost á sér í emb­ætti for­seta ASÍ fyrir rúmri viku. Í sam­tali við RÚV sagði hann að sú ákvörðun hefði verið tekin í kjöl­far þess að fólk kom að máli við hann um fram­boð. 

Varðandi deilur og klofn­ing innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sagði hann, við RÚV, að hann teldi, eftir spjall við mjög marga, að það væri „alveg hljóm­grunnur fyrir því að menn snúi bökum saman og beiti sér að verk­efnum sem við getum unnið sam­eig­in­lega og leggi per­sónu­legar vær­ingar til hliðar.“

Ragnar, Hjördís og Kristján varaforestar

Vara­for­seta ASÍ hafa einnig verið kjörnir og voru þeir allir sjálf­kjörnir. Ragnar Þór Ing­ólfs­son er fyrsti vara­for­seti, Hjördís Þóra Sig­ur­þórs­dóttir for­maður AFLs starfs­greina­fé­lags er annar vara­for­seti og Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins er þriðji vara­for­seti. Öll voru þau sjálf­kjörin í emb­ættin.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár