Normalísering orðræðu ýtir undir fordóma

Formaður Sam­tak­anna '78 mun spjalla um hat­urs­orð­ræðu í ljósi hinsegin réttind­ar­bar­áttu á við­burði á vegum Hinsegin daga seinna í dag. Hún segir að í gegnum svo­kall­aða „afnæm­ingu“ normalíser­ist orðar­æða sem ýti enn frekar undir for­dóma.

Reykjavík Pride
Reykja­vík Pride Mynd: Anton Brink

Umræða um hat­urs­orð­ræðu og mörk hennar hefur verið áber­andi und­an­farin miss­eri, sér­stak­lega í ljósi nýs frum­varps um breyt­ingar á ákvæði um hat­urs­orð­ræðu í almennum hegn­ing­ar­lögum.

Rætt verður um hat­urs­orð­ræðu út frá hinsegin vinkli á Hinsegin dögum sem nú standa yfir í dag kl. 16:30 á Þjóð­minja­safni Íslands. Þorbjörg Þor­valds­dóttir, for­maður Sam­tak­anna '78, mun taka til máls, sem og aktí­vist­inn Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir. Ugla Stefanía er búsett í Bret­landi, þar sem hat­urs­orð­ræða gagn­vart trans­fólki hefur færst í aukanna und­an­farið, og mun hún fjalla um sína per­sónu­legu reynslu af slíkri orð­ræðu. Eyrún Eyþórs­dóttir, aðjúnkt í lög­reglu­fræðum við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri, mun einnig halda erindi á við­burð­inum í dag.

Þorbjörg segir í sam­tali við Kjarnann að hún muni meðal ann­ars fjalla um nýja pólska rann­sókn sem sýnir hvernig það svart á hvítu hvernig hat­urs­orð­ræða ýtir undir for­dóma í gegnum svo­kall­aða afnæm­ingu, það er þegar fólk venst ákveð­inni orð­ræðu sem normalíserar hana þar af leið­andi.

Algengast að trans fólk verði fyrir aðkasti

Þorbjörg segir að þau hjá Sam­tök­unum '78 hafi alltaf áhyggjur af hat­urs­orð­ræðu. Hún nefnir að slík orð­ræða gagn­vart hinsegin fólki hafi auk­ist hér á landi sem og ann­ars staðar. Sem dæmi tekur hún umræðu á net­inu í kjöl­far þess að frum­varp til laga um kyn­rænt sjálf­ræði var sam­þykkt fyrr í sumar. Með sam­þykkt frum­varps­ins var festur í lögum réttur ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt sjálfir og tryggja með því að kyn­vit­und þeirra njóti viður­kenn­ingar.

„Þessi umræða hefur gefið ákveðið skot­leyfi á trans fólk og hef ég miklar áhyggjur áf því,“ segir hún. Eitthvað er líka um að trans fólk verði fyrir aðkasti á götu úti. „Þetta á reyndar við um alla jað­ar­setta hópa, en algeng­ast er þetta hjá trans fólki og sér­stak­lega hjá þeim sem eru sjá­an­lega trans. Þau þurfa að glíma við tölu­vert í sínu lífi,“ segir Þorbjörg.

Drekkja spjallþráðum í jákvæðni

Þorbjörg bendir jafn­framt á að orð­ræðan sem sumir nota á net­inu – á athuga­semda­kerfum og víðar – geti verið mjög for­dóma­full. Þar sé meðal ann­ars hægt að finna hat­urs­orð­ræðu eða í það minnsta hættu­lega orð­ræðu.

Til að sporna við þessu hefur hún og Ugla Stefanía stofnað hóp á Facebook sem nefnd­ist For­dóma­vaktin. Hópurinn er hugs­aður sem staður þar sem settir eru inn linkar á for­dóma- og hat­urs­fulla umræðu og er til­gang­ur­inn að drekkja þráðunum í jákvæðni með sam­stilltu átaki. Þorbjörg segir að það vinni á móti for­dómum að lesa jákvæðu athuga­semd­irnar og gríð­ar­lega miklu máli skipti að fá fólk til að tala saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár