Vill banna þeim sem átt hafa í fjárhagslegum tengslum við skattaskjól að fá uppsagnarstyrk

Oddný G. Harð­ar­dóttir hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu launa­kostn­aðar í upp­sagn­ar­fresti. Kallar eftir aðgerðum fyr­ir­tækja í lofts­lags­málum, end­ur­greiðslu styrkja og þaki á laun stjórn­enda.

Oddný G. Harðardóttir vill að uppsagnarstyrkjum verði breytt.
Oddný G. Harð­ar­dóttir vill að upp­sagn­ar­styrkjum verði breytt. Mynd: Norden.org/Johannes Jansson

Oddný G. Harð­ar­dóttir, full­trúi Sam­fylk­ingar í efna­hags- og við­skipta­nefnd, leggur til að þau fyr­ir­tæki sem hafi nýtt sér skatta­skjól geti ekki fengið styrk til að greiða upp­sagn­ar­frest. Þetta kemur fram í breyt­ing­ar­til­lögu hennar við frum­varp til laga um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Í til­kynn­ingu frá þing­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar kemur fram að hann telji upp­sagn­ar­leið­ina svoköll­uðu geta unnið gegn launa­fólki í sumum til­fellum.[links]

Í nefnd­ar­á­liti gerir Oddný grein fyrir breyt­ing­ar­til­lög­unum. Fyrir það fyrsta leggur hún til að fyr­ir­tæki sem nýti sér þetta úrræði end­ur­greiði styrk­inn eftir því sem afkoma og afkomu­bati leyfir. Þetta telur hún skapa hvata fyrir fyr­ir­tæki til að halda í ráðn­ing­ar­sam­band við launa­fólk. Breyt­ing­ar­til­lagan felur í sér að end­ur­greiðslan verði í formi tekju­skatts­auka sem nemi 10 pró­sentu­stigum til við­bótar við núver­andi tekju­skatts­pró­sentu. Tekju­skatts­auk­inn yrði fyrst lagður á 2023 og yrði að hámarki næstu 10 ár.

Önnur til­laga snýr að skatta­skjólum og þeim fyr­ir­tækjum sem nýta sér þau. Í áður­nefndu nefnd­ar­á­liti segir um breyt­ing­ar­til­lög­una: „Þar er miðað við að til þess að öðl­ast rétt á stuðn­ingi sam­kvæmt lög­unum þurfi að liggja fyrir að við­kom­andi félag hér á landi eða raun­veru­legur eig­andi þess hafi ekki átt í fjár­hags­legum sam­skiptum við aðila sem stað­settur er á lág­skatta­svæði síð­ast­liðin þrjú ár.“ Fyr­ir­tæki sem verða upp­vís að því að hafa gefið rangar upp­lýs­ingar yrðu krafin um end­ur­greiðslu.

Þá leggur Oddný fram þá til­lögu að sett verði skil­yrði um áætlun í lofts­lags­málum fyrir stuðn­ingi við atvinnu­rek­endur. Miðað er við að skil­yrðið nái til fyr­ir­tækja sem segja upp tíu starfs­mönnum eða fleiri í fullu starfi. Í skil­yrð­inu felst sú krafa að fyr­ir­tæki leggi fram áætlun um árlega minnkun á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda næstu fimm árin.

Síðasti hluti nefnd­ar­á­lits­ins snýr að launa­við­miði. Í breyt­ing­ar­til­lög­unum er sett þak á mán­að­ar­laun æðstu stjórn­enda og eig­enda. Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lög­unni mega þau ekki nema hærri fjár­hæð en þremur millj­ónum króna á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár