Smitum fjölgað um rúmlega 90 á einum sólarhring

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 568 hér á landi. Í gær voru þau 473. Í dag eru 6.340 í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 5.448. Tæplega 1.100 manns hafa lokið sótt­kví.

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 568 hér á landi. Í gær voru þau 473. Í dag eru 6.340 í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 5.448. Tæplega 1.100 manns hafa lokið sótt­kví. Smit af óþekktum upp­runa eru nú orðin fleiri en inn­an­lands­smit svokölluð og smit sem rekja má beint til dvalar erlendis.

Í gær lágu tólf á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins. Þá höfðu 9.768 sýni verið tekin. Á mið­nætti í gær höfðu 10.118 sýni verið tekin.

Færri sýni hafa verið tekin síð­ustu tvo sól­ar­hringa en dag­ana á undan vegna vönt­unar á sýna­tökupinnum sem nauð­syn­legir eru til rann­sókn­anna. Alma Möller land­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að von væri á send­ingu innan skamms og stærri send­ingu í kjöl­farið.

Á fund­inum í gær voru einnig boð­aðar hert­ari aðgerðir til að hefta útbreiðslu veirunnar. Til stendur að við­mið um fjölda þeirra sem mega koma saman verði lækkuð, mögu­lega í 20-40. Þá stendur einnig til að tak­marka starf­semi þar sem nánd er mikil, m.a. hár­greiðslu­stofa og nudd­stofa, svo dæmi séu tekin. Hertari fjölda­tak­mark­anir munu hafa áhrif á versl­anir og veit­inga­hús þar sem ekki er hægt að halda tveggja metra fjar­lægð milli fólks.

Tryggt að hægt verði að nálgast matvöru

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í gær­kvöldi að tryggt yrði að apó­tek og mat­vöru­versl­anir muni geta starfað áfram með þeim hætti að almenn­ingur hafi greiðan aðgang að öllum nauð­synjum og öðrum vörum.

Eins og áður hefur komið í umræð­unni er birgða­staða hér á landi góð og engin merki um að breyt­ing verði á því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár